Sjómannadagsblaðið - 2022, Page 42
B rynjólfur Gunnar Hall-
dórsson fæddist í Reykja-
vík árið 1937 og ólst upp í
Laugarnesinu. Ekki verður annað
sagt en að hafið hafi kallað á hann
frá blautu barnsbeini, en Brynjólf-
ur minnist þess að hafa stolist
út á sjó með vinum sínum þegar
hann var aðeins níu ára gamall.
Hann hafi í slagtogi við tvo vini
sína á svipuðu reki sjósett bát sem
þeir fundu í fjörunni skammt frá
vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar
myndhöggvara. „Þaðan drógum
við bátinn á Kirkjusand, þar sem
við sáum að það voru rifur í bátn-
um, sem við fylltum í með tvist,“
segir Brynjólfur. Öðrum strákum
í hverfinu hafi ekki litist á blikuna
þegar þeir sáu sjó í bátnum en það
hafi ekki stöðvað þá félaga.
Þeir hafi því ýtt úr vör og kom-
ist út á miðja ytri höfnina áður
en þeim hætti að lítast á blikuna.
„Það var kominn sjór upp á hné og
við byrjum því að ausa með stíg-
vélunum okkar. Við veifuðum til
skútu sem kom siglandi til okkar.
Mennirnir um borð kölluðu á okk-
ur: „Hvað eruð þið að flækjast?“
áður en þeir köstuðu til okkar fötu
til að ausa með. Því næst drógu
þeir okkur í átt að fjörunni áður en
þeir tilkynntu okkur að við gæt-
um róið restina,“ segir Brynjólfur.
„Þannig bjargaðist þetta.“
Hann segist ekki hafa þorað að
segja neinum frá svaðilförinni og
það hafi ekki verið fyrr en hálfum
mánuði síðar sem hann fékk tiltal
frá föður sínum – „sem bað mig
vinsamlegast um að þvælast ekki
svona aftur,“ segir Brynjólfur og
hlær. „Börn í gamla daga voru svo
frjáls.“
Sextán ára gamall flæktist
Brynjólfur með vini sínum til
Sandgerðis, þar sem honum
bauðst að vera kokkur um borð
í Guðbjörgu. Þrátt fyrir að hafa
enga reynslu af eldamennsku
sló Brynjólfur til og greip gamla
kokkabók frá Jóninnu Sigurðar-
dóttur. „Ég var alveg ægilega sjó-
veikur,“ segir Brynjólfur, en það
kom ekki í veg fyrir að hann gæti
eldað kjötsúpu ofan í áhöfnina.
„Sama hvað ég gerði, ef það var
heitt þá var það í lagi.“
Allt fraus sem frosið gat
Samhliða því að klára nám
við Stýrimannaskólann sigldi
Brynjólfur á Ólafi Jóhannessyni,
togara frá Patreksfirði, og togar-
anum Mars. Það var á síðarnefnda
skipinu sem Brynjólfur lenti í
einni minnisstæðustu atburðarás
ævi sinnar, sem síðar hefur verið
nefnd Nýfundnalandsveðrið.
Það var um vaktaskipti að
kvöldi 9. febrúar 1959 þegar brast
á aftakaveður N-NA af Nýfundna-
landi í Kanada. Þar höfðu íslensk
skip verið að veiðum við hinn
svokallaða Ritubakka, þar á
meðal Þorkell Máni úr Reykjavík,
Harðbakur frá Akureyri, Vöttur frá
Eskifirði og Mars, hvar Brynjólf-
ur var um borð. Þrátt fyrir að von
hefði verið á slæmu veðri kom það
skipverjum í opna skjöldu, aftaka-
veðrið brast á eins og hendi væri
veifað og menn þekktu ekki til
slíkrar ísingar.
„Við náðum að drífa trollið inn
og þegar búið var að gera allt sjó-
klárt var farið að slóga og lóna upp
í veðrið. Frostið var svo mikið og
sjórinn var svo kaldur, mínus tvær
gráður, vindurinn var um 10 vind-
stig. Við höfðum oft verið í svoleiðis
roki áður, en frostið var svo mikið
og sjórinn svo kaldur að það fraus
nærri allt sem kom inn. Maður sá
þegar pusið kom á brúna og það
fraus, seig aðeins niður og svo var
það fast. Svona hlóðst á skipið.“
Brynjólfur minnist þess hvernig
allir vírar og kaðlar á Mars hlóðu
utan á sig ís þannig að jafnvel
grennstu spottar voru orðnir eins
og faðmar að ummáli. Vanturinn
á skipinu, sem var uppi á brúnni,
var þannig orðinn einn klaka-
bunki. „Allir voru því ræstir út til
að berja klaka,“ segir Brynjólfur.
Dekkið var orðið ísilagt og skipið
því mjög þungt, sem gerði allar
veltur þeim mun dýpri og þyngri.
„Við höfðum stundum bakborðs-
beitivind til að fá pusið skáhallt
yfir skipið svo það lenti ekki allt
á brúnni. Ég var í því að reyna að
halda einum glugga opnum svo-
leiðis að maður sæi út, allt hitt var
orðið frosið. Baráttan um nóttina
var í þessu, að halda skipinu vel til
upp í veðrið.“
63 föðurlaus börn
Morguninn eftir tilkynnti loft-
skeytamaður að ekki hefði náðst
samband við togarann Júlí frá
Hafnarfirði. „Júlí svarar ekkert,“
hefur Brynjólfur eftir loftskeyta-
manninum og bætir við að þá hafi
mönnum orðið ljóst að togarinn
væri farinn. Allir um borð fórust í
því sem er talið vera eitt hörmuleg-
asta sjóslys í útgerðarsögu Íslands.
„Þarna skeði ótrúlegt sjóslys.
Þetta voru 30 menn. 63 börn urðu
föðurlaus, flest úr Hafnarfirði.
Enginn veit almennilega hvers
vegna Júlí fórst. Kannski tókst
þeim ekki að gera almennilega
sjóklárt. Það sem bjargaði okkur
var að við vorum að byrja túrinn
og vorum því léttari á sjónum.“
Fleiri skip lentu í miklum hrakn-
ingum í veðrinu, til að mynda
Þorkell Máni, sem hafði þá lagst
á hliðina og fengið sjó inn um
brúargluggann bakborðsmegin.
Brynjólfur telur að snarræði vél-
stjórans um borð hafi bjargað því
að ekki hafi farið verr hjá Þorkeli
Mána. Öllu lauslegu var hent frá
borði, davíðurnar fjórar aftan á
bátadekkinu voru logsoðnar af og
björgunarbátunum sleppt, „enda
orðnir eitt klakastykki,“ að sögn
Brynjólfs, sem bætir við að það hafi
„bjargað þeim mikið“.
Eftir að skipverjar höfðu brotið
klaka í einn og hálfan sólarhring
fór veðrið loksins að lægja og seg-
ir Brynjólfur að Mars og Þorkell
Máni hafi lónað saman í suðaust-
ur í átt að heitari sjó. Þrátt fyrir
hrakningana segist Brynjólfur
ekkert hafa verið uggandi við að
fara aftur á sjó.
„Nei. Meðan á þessu havaríi stóð,
eitt skipið hafði farið niður og ann-
að var í vandræðum, þá held ég að
enginn hafi hugsað þegar við vor-
um að berja klakann að við vær-
um að redda okkur til að sökkva
ekki. Hugsunin fór ekki svo langt.
Það var bara verk að vinna og það
var gengið í það af krafti að berja
klakann.“ Það hafi ekki verið fyrr
en á heimstíminu, sem tók fjóra
sólarhringa, þegar menn um borð
í Mars náðu loksins sambandi við
fjölskyldur sínar að þeir „fóru að
hugsa hvað þeir hefðu sloppið vel,“
segir Brynjólfur.
Brynjólfur g. Halldórsson skipstjóri var 50 ár á sjó og hefur nú
verið 20 ár í landi. Hann hefur marga fjöruna sopið og oft komist
í hann krappan, til að mynda í hinu alræmda nýfundnalandsveðri
árið 1959 þegar Júlí fórst með 30 sjómönnum innanborðs.
Brynjólfur ræðir atburðina, lærdóminn og ferilinn.
Brynjólfur gunnar Halldórsson skipstjóri er
fæddur í reykjavík og alinn upp á Laugarnesi.
Hann á langan starfsaldur að baki á sjó, en
hafið kallaði strax þegar hann var strákur.
Mikilvægt
að leyfa fólki
að sanna sig
Frostið var svo mikið
og sjórinn svo kaldur að
það fraus nærri allt sem
kom inn. maður sá þegar
pusið kom á brúna og það
fraus, seig aðeins niður
og svo var það fast.
Svona hlóðst á skipið.
42 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2