Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 50

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 50
50 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 er almennt viðurkennd og ætti því að vera óþarfi að þrefa frekar um það hver var fyrsti skutt- ogari landsmanna. Hitt er svo annað mál að tilkoma Barða var undanfari skjótra og viðamikilla breytinga; um áramótin 1978- 1979 áttu Íslendingar orðið hvorki fleiri né færri en 79 skuttogara og sjávarútvegur landsmanna hafði tekið miklum stakkaskiptum á tæpum áratug.“ Magni Kristjáns- son var fyrsti skipstjóri á Barða, sem var í tæp níu ár í þjónustu Síldarvinnslunnar þar til skipið var selt aftur til Frakklands. Það kvaddi Neskaupstað 24. október árið 1979. Barði var bylting „Ég sótti skipið til Frakklands og var með Barða í eitt ár, þar til ég fór til Japan til að taka við nýjum togara, Bjarti, sem Síldarvinnslan lét smíða fyri sig þar. Barði var bylting á sínum tíma og mikil framför. Þetta var lipur togari og kraftmikill. Hann togaði vel. Hann markaði líka mikla framför fyrir áhöfnina. Menn voru vanir að vera sex til átta í káetum en í Barða voru allar hásetakáetur tveggja manna,“ segir Magni. Barði fór til fyrstu veiða hér við land í febrúar 1971 og fjórum mánuðum síðar hafði skipið farið í ellefu túra og borið að landi afla að verðmæti um fimmtán milljónir króna, sem nam rúmlega fjórðungi kostnað- arverðs skipsins. „Já, já, við fisk- uðum vel og vorum duglegir. Við fengum líka frjálsar hendur varð- andi breytingar sem við töldum nauðsynlegar. Þannig létum við setja færiband í skipið sem lagt var úr aðgerðadekkinu og fram í stefni þar sem við útbjuggum ísklefa. Þetta var mikil vinnuhagræðing fyrir mannskapinn.“ Átta tonn af háfi Magni segir að þeir hafi þó stund- um lent í ýmsum uppákomum á veiðum. „Ég man til dæmis eftir túr þar sem við vorum á Grinda- víkurdýpi og ekki búnir að fiska mikið. Þá fengum við skyndilega ein átta tonn af háfi í trollið. Við höfðum svo sannarlega engan áhuga á þeim afla en ég hringdi samt austur til að spyrja hvað ég ætti að gera við þetta. Þeir sögðu okkur að hirða þetta og sendu okkur nákvæmar leiðbeiningar um hvernig við ættum að gera að háfnum, sem er náskyldur hákarli. Svo sigldum við af stað austur með suðurströndinni og eftir átta klukkustundir var loks búið að gera að aflanum. Maður fékk sko ekki hýrt auga þegar maður kom niður til að spyrja hvernig gengi,“ segir Magni og hlær. Hann segist ekkert vita hvað hafi orðið um háfana þegar komið var aust- ur. „Við vildum bara ekkert vita það, við skömmuðumst okkar svo mikið fyrir að koma með þetta. En áður en við komum í höfn á Norð- firði fengum við mjög gott holl af þorski og fylltum skipið. En vegna háfanna þurftum við að ryðja ísklefann og fylla hann af fiski í staðinn. Það var ýmislegt sem gerðist á Barða!“ Hólmatindur frá Eskifirði Þess má að lokum geta að fáein- um dögum eftir að Barði sigldi til heimahafnar í Neskaupstað sigldi annar skuttogari, Hólmatindur, til heimahafnar á Eskifirði 20. des- ember 1970 eins og fjallað er um í júníblaði Austurlands, málgagns Alþýðubandalagsins á Austur- landi, ári síðar þar sem fjallað er um þessa tvo fyrstu skuttogara landsmanna. - bv Íslendingur höfundur skuttogaranna n Austurland, málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi, frá 6. júní 1971, er helgað þeim tímamótum sem urðu við upphaf skuttogaravæðingar í íslenskum sjávarútvegi í árslok 1970 þegar fyrstu eiginlegu skuttogararnir sigldu til hafnar í neskaupstað og á Eskifirði. í blaðinu er einnig fjallað um frumkvöðlastarf Andrjesar Gunnarssonar vélstjóra í Reykjavík, sem fæddur var í Austur-Land- eyjum 1904. Hann lagði sem ungur maður stund á vélsmíði í Vest- mannaeyjum og hjá Héðni í Reykjavík og lauk síðan vélstjóranámi árið 1929, tuttugu og fimm ára að aldri. Andrjes fór þá til sjós og var m.a. á togurum, þar sem hugmyndin að skuttogara kviknaði eins og fram kemur í viðtali sem Ingólfur Stefánsson, skipstjóri í Reykjavík, tók við Andrjes fyrir ritstjórn Austurlands. áttuðu sig ekki á hagræðinu Þar segir að skipstjórar á þessum tíma hafi almennt ekki gert sér grein fyrir ágæti þeirrar hagræðingar að taka vörpuna inn um skut togaranna í stað þess að innbyrða hana við skipshlið eins og tíðkaðist á síðutogurunum. Það var þó ekki fyrr en Andrjes hætti til sjós og réðst til Vélaverkstæðis Patreksfjarðar að hann gat farið að móta hugmynd sína um fyrsta skuttogarann. Tækifærið gafst loks þegar togaranefnd nýsköpunarstjórnarinnar auglýsti eftir hugmyndum um nýsköpunartogarana. Þá kynnti Andrjes nefndinni hugmyndina, sem hlaut engan hljómgrunn enda þótt ýmsir skipstjórar víða um land hefðu þegar sýnt henni áhuga. „Ekki var ég þó búinn að fá smíðað líkan af skipinu, en mjög full- komin lýsing var þá til, og fékk ég síðan Sigurð jónsson, ágætan hagleiksmann, til að gera líkan af skipinu, sem var tilbúið um mitt sumar 1945. Ýmislegt var þó ógert, þótt skrokkurinn væri kominn. Vann ég svo við að smíða búnað skipsins um haustið. í lok ársins 1945 sýndi ég svo líkanið fullbúið heima hjá Friðþjófi jóhannessyni, útgerðarmanni, hafði hann mikinn áhuga á hugmyndinni. Ekki vaknaði samt áhugi togaranefndarinnar, þótt líkanið væri fullgert, reyndi ég árangurslaust að fá togaranefndina til að hlusta á mig. Ekki rökstuddi nefndin áhugaleysi sitt, hugmyndin var bara talin óhæf og við það sat,“ segir Andrjes í viðtalinu. Fairtry LH 8 fyrsti skuttogari heimshafanna Andrjes gafst þó ekki upp, enda hugðist hann fá einkaleyfi fyrir hugmyndinni og sigldi því til Englands veturinn 1946 til að hitta ráðamenn ytra og fleiri hagsmunaaðila. Á þeim fundum gaf hann nákvæma lýsingu á togaranum og búnaði slíks skips sem tækni- menn „teiknuðu upp og skráðu“. En allt var á sömu bókina lært, segir Andrjes í viðtalinu og varð hann að lokum „fórnarlamb skrif- finnsku og málæðis“. Ekki frétti Andrjes meira af málum ytra fyrr en „verksmiðjuskipið og skuttogarinn Fairtry LH 8 sigldi fullbúið á fiskimiðin 1953“. Var hann að sögn í meginatriðum í samræmi við smíðalýsingu Andrjesar þótt ýmislegt væri öðruvísi, svo sem fram- stæðari brú en á líkaninu og fleira. dula breidd yfir skut líkansins í Austurlandi segir enn fremur frá ítrekuðum tilraunum Andrjesar til að koma skipslíkaninu á framfæri á sjávarútvegssýningunni í Reykjavík 1946, sem tókst að lokum, „en þar var líkanið fljótlega gert hornreka og breidd dula yfir afturenda þess“. í blaðinu segir enn fremur að margir íslenskir togarasjómenn hafi harmað „að ís- lenskir ráðamenn skyldu ekki hafa borið gæfu til þess að nýta hug- mynd hans“. Andrjesi entist þó aldur til að sjá hugmynd sína um skuttogara verða að veruleika, enda varð hann háaldraður; lést á St. jósefsspítalanum í Hafnarfirði 18. maí árið 2003, að verða 99 ára að aldri. Þess má geta að lokum að í Sjómannadagsblaðinu 1987 birtist ítarlegt viðtal við Andrjes. - bv Fairtry LH 8, var smíðaður í Skotlandi fyrir Fresh Frozen Foods Ltd. í Edinborg, eins og fram kemur í bók Konráðs rúnars Friðfinnssonar, Togarar. Svo komu skuttogarar, sem út kom 2016. Barði nK 120 á togveiðum í grindavíkurdýpi árið 1977. Mynd/kristinn Benediktsson Þetta var lipur togari og kraftmikill. Hann togaði vel. Hann markaði líka mikla framför fyrir áhöfnina. menn voru vanir að vera sex til átta í káetum en í barða voru allar hásetakáetur tveggja manna.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.