Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 50
50 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
er almennt viðurkennd og ætti
því að vera óþarfi að þrefa frekar
um það hver var fyrsti skutt-
ogari landsmanna. Hitt er svo
annað mál að tilkoma Barða var
undanfari skjótra og viðamikilla
breytinga; um áramótin 1978-
1979 áttu Íslendingar orðið hvorki
fleiri né færri en 79 skuttogara og
sjávarútvegur landsmanna hafði
tekið miklum stakkaskiptum á
tæpum áratug.“ Magni Kristjáns-
son var fyrsti skipstjóri á Barða,
sem var í tæp níu ár í þjónustu
Síldarvinnslunnar þar til skipið
var selt aftur til Frakklands. Það
kvaddi Neskaupstað 24. október
árið 1979.
Barði var bylting
„Ég sótti skipið til Frakklands og
var með Barða í eitt ár, þar til ég
fór til Japan til að taka við nýjum
togara, Bjarti, sem Síldarvinnslan
lét smíða fyri sig þar. Barði var
bylting á sínum tíma og mikil
framför. Þetta var lipur togari og
kraftmikill. Hann togaði vel. Hann
markaði líka mikla framför fyrir
áhöfnina. Menn voru vanir að vera
sex til átta í káetum en í Barða
voru allar hásetakáetur tveggja
manna,“ segir Magni. Barði fór til
fyrstu veiða hér við land í febrúar
1971 og fjórum mánuðum síðar
hafði skipið farið í ellefu túra og
borið að landi afla að verðmæti
um fimmtán milljónir króna, sem
nam rúmlega fjórðungi kostnað-
arverðs skipsins. „Já, já, við fisk-
uðum vel og vorum duglegir. Við
fengum líka frjálsar hendur varð-
andi breytingar sem við töldum
nauðsynlegar. Þannig létum við
setja færiband í skipið sem lagt var
úr aðgerðadekkinu og fram í stefni
þar sem við útbjuggum ísklefa.
Þetta var mikil vinnuhagræðing
fyrir mannskapinn.“
Átta tonn af háfi
Magni segir að þeir hafi þó stund-
um lent í ýmsum uppákomum á
veiðum. „Ég man til dæmis eftir
túr þar sem við vorum á Grinda-
víkurdýpi og ekki búnir að fiska
mikið. Þá fengum við skyndilega
ein átta tonn af háfi í trollið. Við
höfðum svo sannarlega engan
áhuga á þeim afla en ég hringdi
samt austur til að spyrja hvað ég
ætti að gera við þetta. Þeir sögðu
okkur að hirða þetta og sendu
okkur nákvæmar leiðbeiningar
um hvernig við ættum að gera að
háfnum, sem er náskyldur hákarli.
Svo sigldum við af stað austur
með suðurströndinni og eftir átta
klukkustundir var loks búið að
gera að aflanum. Maður fékk sko
ekki hýrt auga þegar maður kom
niður til að spyrja hvernig gengi,“
segir Magni og hlær. Hann segist
ekkert vita hvað hafi orðið um
háfana þegar komið var aust-
ur. „Við vildum bara ekkert vita
það, við skömmuðumst okkar svo
mikið fyrir að koma með þetta. En
áður en við komum í höfn á Norð-
firði fengum við mjög gott holl af
þorski og fylltum skipið. En vegna
háfanna þurftum við að ryðja
ísklefann og fylla hann af fiski
í staðinn. Það var ýmislegt sem
gerðist á Barða!“
Hólmatindur frá Eskifirði
Þess má að lokum geta að fáein-
um dögum eftir að Barði sigldi til
heimahafnar í Neskaupstað sigldi
annar skuttogari, Hólmatindur, til
heimahafnar á Eskifirði 20. des-
ember 1970 eins og fjallað er um í
júníblaði Austurlands, málgagns
Alþýðubandalagsins á Austur-
landi, ári síðar þar sem fjallað er
um þessa tvo fyrstu skuttogara
landsmanna. - bv
Íslendingur höfundur skuttogaranna
n Austurland, málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi, frá
6. júní 1971, er helgað þeim tímamótum sem urðu við upphaf
skuttogaravæðingar í íslenskum sjávarútvegi í árslok 1970 þegar
fyrstu eiginlegu skuttogararnir sigldu til hafnar í neskaupstað og
á Eskifirði.
í blaðinu er einnig fjallað um frumkvöðlastarf Andrjesar
Gunnarssonar vélstjóra í Reykjavík, sem fæddur var í Austur-Land-
eyjum 1904. Hann lagði sem ungur maður stund á vélsmíði í Vest-
mannaeyjum og hjá Héðni í Reykjavík og lauk síðan vélstjóranámi
árið 1929, tuttugu og fimm ára að aldri. Andrjes fór þá til sjós og
var m.a. á togurum, þar sem hugmyndin að skuttogara kviknaði
eins og fram kemur í viðtali sem Ingólfur Stefánsson, skipstjóri í
Reykjavík, tók við Andrjes fyrir ritstjórn Austurlands.
áttuðu sig ekki á hagræðinu
Þar segir að skipstjórar á þessum tíma hafi almennt ekki gert sér
grein fyrir ágæti þeirrar hagræðingar að taka vörpuna inn um
skut togaranna í stað þess að innbyrða hana við skipshlið eins og
tíðkaðist á síðutogurunum. Það var þó ekki fyrr en Andrjes hætti
til sjós og réðst til Vélaverkstæðis Patreksfjarðar að hann gat
farið að móta hugmynd sína um fyrsta skuttogarann. Tækifærið
gafst loks þegar togaranefnd nýsköpunarstjórnarinnar auglýsti
eftir hugmyndum um nýsköpunartogarana. Þá kynnti Andrjes
nefndinni hugmyndina, sem hlaut engan hljómgrunn enda þótt
ýmsir skipstjórar víða um land hefðu þegar sýnt henni áhuga.
„Ekki var ég þó búinn að fá smíðað líkan af skipinu, en mjög full-
komin lýsing var þá til, og fékk ég síðan Sigurð jónsson, ágætan
hagleiksmann, til að gera líkan af skipinu, sem var tilbúið um mitt
sumar 1945. Ýmislegt var þó ógert, þótt skrokkurinn væri kominn.
Vann ég svo við að smíða búnað skipsins um haustið. í lok ársins
1945 sýndi ég svo líkanið fullbúið heima hjá Friðþjófi jóhannessyni,
útgerðarmanni, hafði hann mikinn áhuga á hugmyndinni. Ekki
vaknaði samt áhugi togaranefndarinnar, þótt líkanið væri fullgert,
reyndi ég árangurslaust að fá togaranefndina til að hlusta á mig.
Ekki rökstuddi nefndin áhugaleysi sitt, hugmyndin var bara talin
óhæf og við það sat,“ segir Andrjes í viðtalinu.
Fairtry LH 8 fyrsti skuttogari heimshafanna
Andrjes gafst þó ekki upp, enda hugðist hann fá einkaleyfi fyrir
hugmyndinni og sigldi því til Englands veturinn 1946 til að hitta
ráðamenn ytra og fleiri hagsmunaaðila. Á þeim fundum gaf hann
nákvæma lýsingu á togaranum og búnaði slíks skips sem tækni-
menn „teiknuðu upp og skráðu“. En allt var á sömu bókina lært,
segir Andrjes í viðtalinu og varð hann að lokum „fórnarlamb skrif-
finnsku og málæðis“. Ekki frétti Andrjes meira af málum ytra fyrr
en „verksmiðjuskipið og skuttogarinn Fairtry LH 8 sigldi fullbúið á
fiskimiðin 1953“. Var hann að sögn í meginatriðum í samræmi við
smíðalýsingu Andrjesar þótt ýmislegt væri öðruvísi, svo sem fram-
stæðari brú en á líkaninu og fleira.
dula breidd yfir skut líkansins
í Austurlandi segir enn fremur frá ítrekuðum tilraunum Andrjesar
til að koma skipslíkaninu á framfæri á sjávarútvegssýningunni í
Reykjavík 1946, sem tókst að lokum, „en þar var líkanið fljótlega
gert hornreka og breidd dula yfir afturenda þess“. í blaðinu segir
enn fremur að margir íslenskir togarasjómenn hafi harmað „að ís-
lenskir ráðamenn skyldu ekki hafa borið gæfu til þess að nýta hug-
mynd hans“. Andrjesi entist þó aldur til að sjá hugmynd sína um
skuttogara verða að veruleika, enda varð hann háaldraður; lést á
St. jósefsspítalanum í Hafnarfirði 18. maí árið 2003, að verða 99
ára að aldri. Þess má geta að lokum að í Sjómannadagsblaðinu
1987 birtist ítarlegt viðtal við Andrjes. - bv
Fairtry LH 8, var smíðaður í Skotlandi fyrir Fresh Frozen Foods Ltd. í Edinborg, eins og fram kemur í bók Konráðs rúnars
Friðfinnssonar, Togarar. Svo komu skuttogarar, sem út kom 2016.
Barði nK 120 á togveiðum í
grindavíkurdýpi árið 1977.
Mynd/kristinn Benediktsson
Þetta var lipur togari
og kraftmikill. Hann
togaði vel. Hann markaði
líka mikla framför fyrir
áhöfnina. menn voru
vanir að vera sex til átta
í káetum en í barða voru
allar hásetakáetur
tveggja manna.