Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 56

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 56
56 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 Þrjátíu og fimm ár eru liðin frá strandi Barðans gK undan Hólahól- um á Snæfellsnesi. áhöfninni var allri bjargað við erfiðar að- stæður, haugasjó og éljagang, og er ekki síst talið að snarræði þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar hafi skipt sköpum. Talið er að röng staðarákvörðun hafi valdið strandinu, auk þess sem radar skipsins var bilaður og skekkja í Loran-tæki Barðans. Þ að var að morgni laugar- dagsins 14. mars árið 1987 sem neyðarkall barst frá áhöfn Barða GK 475, rúmlega 130 tonna stálskips í eigu útgerðarfé- lagsins Rafns frá Sandgerði. Níu manna áhöfnin hafði verið að veiðum undan vestanverðu Snæ- fellsnesi og var í þann mund að draga inn netin þegar báturinn strandaði við Dritvík. Dýrvitlaust veður var á strandstað, norð-norð- vestan hvassviðri eða stormur, éljagangur og dimmviðri sem gerði Eðvaldi Eðvaldssyni skip- stjóra erfitt að sjá til lands. Mikið högg kom á bátinn, svo mikið að áhafnarmeðlimir töldu að þeir hefðu lent í árekstri við annan bát, og síðan ólag sem bar bátinn á svipstundu inn í skorninginn þar sem hann strandaði. Háir hamrar eru allt í kringum strandstaðinn og fór báturinn fljótt á hliðina, skorðaður milli kletta. Báturinn lá á stjórnborðshliðinni uppi í klett- unum og er áætlað að hann hafi hallað um 70 eða 80 gráður þegar verst lét. Sjórinn gekk linnulaust yfir skipið og inn í stýrishúsið. Áhöfn- in hafði komið sér fyrir í korta- klefanum, inn af stýrishúsinu, og ekki leið á löngu áður en það tók að fyllast. „Stýrishúsið var opið og gekk sjórinn þar í gegn og annað hvert brot gekk yfir okkur þannig að við vorum allan tímann meira eða minna í sjó. Við gátum ekki annað gert en beðið,“ sagði Berg- þór Ingibergsson, stýrimaður á Barðanum, í samtali við Morgun- blaðið daginn eftir. Vægast sagt ömurleg aðkoma Áhöfnin sendi út neyðarkall á sjöunda tímanum um morguninn og voru björgunarsveitir frá Ólafsvík, Hellissandi og Breiðuvík kallaðar út klukkan 7:15. Þær voru komnar á strandstað um hálftíma síðar og varð þeim fljótt ljóst að þær gætu lítið aðhafst frá kletta- veggnum. Ekkert lífsmark sást um borð, mannlaus björgunarbáturinn var á floti hjá skipinu og ekki voru neinar aðstæður til að koma línu úr landi að Barðanum. „Þetta var vægast sagt ömurleg aðkoma,“ eins og Emanúel Ragnarsson, formaður Sæbjargar í Ólafsvík, komst að orði í samtali við Morgunblaðið. Á sama tíma og björgunar- sveitirnar voru að átta sig á aðstæðum nálgaðist þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, strandstaðinn óðfluga. Um borð var fimm manna áhöfn; flugstjóri, flugmaður, læknir, stýrimaður og sigmaður, en hún hafði ekki getað tekið af stað frá Keflavík um leið og útkallið barst vegna ísingar og óveðurs. Þegar þyrlan var komin að Dritvík klukkan 8:13 varð áhöfninni ljóst hversu erfið björgunarskilyrðin voru. „Við flugum nokkra stund yfir og könnuðum allar aðstæður. Bát- urinn lá á hliðinni og möstrin voru það neðarlega að við vorum hrædd- ir um að þau myndu slást upp ef hann rétti sig,“ sagði Páll Halldórs- son, flugstjóri TF-SIF. Engin hreyfing sást um borð í Barðanum og var óttast að áhöfnin kynni að vera af. Ekki leið þó á löngu áður en björgunarsveitir og áhöfn TF-SIF sáu skipstjóranum bregða fyrir í einum gluggan- um á stýrishúsinu. Þá tók áhöfn þyrlunnar til starfa og flutti lækni áhafnarinnar, Guðmund Björnsson, í land þar sem hann kom sér upp aðstöðu – „eins konar heilsugæslu- stöð“ – og beið þess að taka á móti skipverjum. Tekin var ákvörðun um að hífa áhöfn Barðans um borð í TF-SIF og ljóst var að mikið væri undir. Að sögn Bergþórs stýri- manns var „eini möguleikinn að komast um borð í þyrluna“. Líklega hefði enginn komist í land Sem fyrr segir voru björgunar- aðstæður erfiðar, aftakaveður og allir skipverjar í einum hnapp í kortaklefa Barðans. Ekki var talið forsvaranlegt að senda sigmann niður í bátinn og hætta þannig lífi eins manns til viðbótar. Sam- bandi var komið á milli TF-SIF og Barðans með svokallaðri tengilínu sem tekið var á móti í brú bátsins, beint niður um brúardyrnar og í hendurnar á áhöfn bátsins. Erfitt reyndist að koma björgunarlykkj- unni að skipverjunum. „Þó svo að við höfum æft hífingar við allar mögulegar aðstæður höfum við aldrei gert okkur grein fyrir að þessi staða gæti komið upp, að hífa menn út um dyr á brú,“ sagði Sigurður Steinar Ketilsson, fyrrver- andi skipherra, sem þá var stýri- maður á TF-SIF, við Morgunblaðið. Ekki bætti úr skák að þarna var haugasjór „með einhverju versta sjólagi sem við þekkjum“ að sögn Sigurðar. Þó hafi sex fiskiskip dælt olíu í sjóinn fyrir utan strandstað- inn til að lægja hann, sem talið er að hafi haft sitt að segja. Björgunin sjálf gekk því ekki hnökralaust fyrir sig. Ekki var hægt að sjá hvernig skipverjarnir voru í björgunarlykkjunni, auk þess sem ýmsir hlutir flæktust fyrir þeim. Engu að síður var búið að bjarga sex mönnum um borð í TF- SIF tæplega 40 mínútum eftir að þyrlan kom á vettvang, sem flutti mennina til Guðmundar læknis í landi þar sem hann hlúði að þeim. Ekki tók nema sjö mínútur að ferja mennina þrjá sem eftir voru úr Barðanum og upp á land. Þrátt fyr- ir erfiðar aðstæður slasaðist enginn skipverji við björgunina, þó svo að þeir hafi allir verið mjög kaldir og hraktir. Sjórinn var jökulkaldur og talið er að málalyktir hefðu orðið aðrar ef mennirnir hefðu verið klukkustund lengur í sjónum. „Við höfðum ekki þrek til að taka við neinu og hefðum örugglega ekki komist allir í land, líklegast enginn okkar. Þetta var orðin spurning um hvað við héldum lengi út. Báturinn gat brotnað hvenær sem er og stýr- ishúsið farið,“ sagði Bergþór um aðstæðurnar um borð. Guðmundur læknir skoðaði alla skipverjana og voru flestir þeirra lítið lemstraðir en sendir á sjúkra- húsið í Ólafsvík til frekar aðhlynn- ingar. Skipstjórinn var verst á sig kominn og talinn lífshættulega kaldur. Hann var fluttur á Borg- arspítalann í Reykjavík, þar sem hann var þó fljótt úrskurðaður úr allri hættu. Allir skipverjarnir lifðu því hrakningarnar af, þrátt fyrir uggvænlegar aðstæður og erfið björgunarskilyrði. Sigurður Stein- ar, stýrimaður í TF-SIF, taldi að árangurinn væri að þakka vel sam- hæfðri áhöfn þyrlunnar, sem hefði æft slíkar björgunaraðgerðir tvisvar til þrisvar í viku – „og þar að auki erum við með gott tæki,“ sagði Sig- urður og vísaði þar til TF-SIF. Bilaður radar og skekkja í Loran Til þess að varpa skýrara ljósi á að- draganda atburðanna fór fram sjó- próf hjá bæjarfógetanum í Keflavík þremur dögum eftir strandið, þriðjudaginn 17. mars. Þar tjáði Eð- vald skipstjóri réttinum að honum hefði láðst að staðsetja skipið rétt á korti að morgni strandsins. Hann hefði þó séð vitann á Malarrifi og því getað áttað sig á staðsetningu skipsins. Ekki hefði bætt úr skák að radarinn um borð í Barðanum hefði haft tilhneigingu til að „detta út,“ auk þess sem Loran-tækið ætti það til að sýna skekkju. Ómögulegt hefði verið að sjá til lands vegna veðurs, sem einkenndist af éljagangi og dimmviðri. Við sjóprófið kom jafnframt fram að brú Barðans hefði verið mannlaus þegar slysið varð. Skip- stjórinn hefði sjálfur verið niður í matsal ásamt öðrum úr áhöfninni og ákveðið að láta skipið reka á með- an. Í brúnni var neyðartalstöð sem skipverjar sögðu að hefði ekki verið notuð, hins vegar hefði verið stuðst við VHF-örbylgjustöðina til þess að kalla á hjálp. Strax hefði náðst samband við Höfrung II og ekki verið seinna vænna, þar sem önnur hurðin hefði brotnað og sjór tekið að flæða inn í brúnna. Nánar má fræðast um strand Barðans í fjölmiðlaumfjöllun þess tíma, auk þess sem slysinu eru gerð skil í bók Óttars Sveinssonar Útkall Alfa TF-SIF. – sój „Gátum ekki annað gert en beðið“ Við flugum nokkra stund yfir og könnuðum allar aðstæður. báturinn lá á hliðinni og möstrin voru það neðarlega að við vorum hræddir um að þau myndu slást upp ef hann rétti sig. -- Páll Halldórsson, flugstjóri TF-SiF

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.