Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 56
56 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
Þrjátíu og fimm ár eru liðin frá strandi Barðans gK undan Hólahól-
um á Snæfellsnesi. áhöfninni var allri bjargað við erfiðar að-
stæður, haugasjó og éljagang, og er ekki síst talið að snarræði
þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar hafi skipt sköpum. Talið er að
röng staðarákvörðun hafi valdið strandinu, auk þess sem radar
skipsins var bilaður og skekkja í Loran-tæki Barðans.
Þ að var að morgni laugar-
dagsins 14. mars árið 1987
sem neyðarkall barst frá
áhöfn Barða GK 475, rúmlega 130
tonna stálskips í eigu útgerðarfé-
lagsins Rafns frá Sandgerði. Níu
manna áhöfnin hafði verið að
veiðum undan vestanverðu Snæ-
fellsnesi og var í þann mund að
draga inn netin þegar báturinn
strandaði við Dritvík. Dýrvitlaust
veður var á strandstað, norð-norð-
vestan hvassviðri eða stormur,
éljagangur og dimmviðri sem
gerði Eðvaldi Eðvaldssyni skip-
stjóra erfitt að sjá til lands. Mikið
högg kom á bátinn, svo mikið að
áhafnarmeðlimir töldu að þeir
hefðu lent í árekstri við annan bát,
og síðan ólag sem bar bátinn á
svipstundu inn í skorninginn þar
sem hann strandaði. Háir hamrar
eru allt í kringum strandstaðinn
og fór báturinn fljótt á hliðina,
skorðaður milli kletta. Báturinn lá
á stjórnborðshliðinni uppi í klett-
unum og er áætlað að hann hafi
hallað um 70 eða 80 gráður þegar
verst lét.
Sjórinn gekk linnulaust yfir
skipið og inn í stýrishúsið. Áhöfn-
in hafði komið sér fyrir í korta-
klefanum, inn af stýrishúsinu, og
ekki leið á löngu áður en það tók
að fyllast. „Stýrishúsið var opið og
gekk sjórinn þar í gegn og annað
hvert brot gekk yfir okkur þannig
að við vorum allan tímann meira
eða minna í sjó. Við gátum ekki
annað gert en beðið,“ sagði Berg-
þór Ingibergsson, stýrimaður á
Barðanum, í samtali við Morgun-
blaðið daginn eftir.
Vægast sagt ömurleg aðkoma
Áhöfnin sendi út neyðarkall á
sjöunda tímanum um morguninn
og voru björgunarsveitir frá
Ólafsvík, Hellissandi og Breiðuvík
kallaðar út klukkan 7:15. Þær voru
komnar á strandstað um hálftíma
síðar og varð þeim fljótt ljóst að
þær gætu lítið aðhafst frá kletta-
veggnum. Ekkert lífsmark sást um
borð, mannlaus björgunarbáturinn
var á floti hjá skipinu og ekki voru
neinar aðstæður til að koma línu
úr landi að Barðanum. „Þetta var
vægast sagt ömurleg aðkoma,“ eins
og Emanúel Ragnarsson, formaður
Sæbjargar í Ólafsvík, komst að orði
í samtali við Morgunblaðið.
Á sama tíma og björgunar-
sveitirnar voru að átta sig á
aðstæðum nálgaðist þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-SIF,
strandstaðinn óðfluga. Um borð
var fimm manna áhöfn; flugstjóri,
flugmaður, læknir, stýrimaður og
sigmaður, en hún hafði ekki getað
tekið af stað frá Keflavík um leið
og útkallið barst vegna ísingar og
óveðurs. Þegar þyrlan var komin að
Dritvík klukkan 8:13 varð áhöfninni
ljóst hversu erfið björgunarskilyrðin
voru. „Við flugum nokkra stund yfir
og könnuðum allar aðstæður. Bát-
urinn lá á hliðinni og möstrin voru
það neðarlega að við vorum hrædd-
ir um að þau myndu slást upp ef
hann rétti sig,“ sagði Páll Halldórs-
son, flugstjóri TF-SIF.
Engin hreyfing sást um borð í
Barðanum og var óttast að áhöfnin
kynni að vera af. Ekki leið þó á
löngu áður en björgunarsveitir og
áhöfn TF-SIF sáu skipstjóranum
bregða fyrir í einum gluggan-
um á stýrishúsinu. Þá tók áhöfn
þyrlunnar til starfa og flutti lækni
áhafnarinnar, Guðmund Björnsson,
í land þar sem hann kom sér upp
aðstöðu – „eins konar heilsugæslu-
stöð“ – og beið þess að taka á móti
skipverjum. Tekin var ákvörðun
um að hífa áhöfn Barðans um borð
í TF-SIF og ljóst var að mikið væri
undir. Að sögn Bergþórs stýri-
manns var „eini möguleikinn að
komast um borð í þyrluna“.
Líklega hefði
enginn komist í land
Sem fyrr segir voru björgunar-
aðstæður erfiðar, aftakaveður og
allir skipverjar í einum hnapp í
kortaklefa Barðans. Ekki var talið
forsvaranlegt að senda sigmann
niður í bátinn og hætta þannig
lífi eins manns til viðbótar. Sam-
bandi var komið á milli TF-SIF og
Barðans með svokallaðri tengilínu
sem tekið var á móti í brú bátsins,
beint niður um brúardyrnar og í
hendurnar á áhöfn bátsins. Erfitt
reyndist að koma björgunarlykkj-
unni að skipverjunum. „Þó svo að
við höfum æft hífingar við allar
mögulegar aðstæður höfum við
aldrei gert okkur grein fyrir að
þessi staða gæti komið upp, að
hífa menn út um dyr á brú,“ sagði
Sigurður Steinar Ketilsson, fyrrver-
andi skipherra, sem þá var stýri-
maður á TF-SIF, við Morgunblaðið.
Ekki bætti úr skák að þarna var
haugasjór „með einhverju versta
sjólagi sem við þekkjum“ að sögn
Sigurðar. Þó hafi sex fiskiskip dælt
olíu í sjóinn fyrir utan strandstað-
inn til að lægja hann, sem talið er
að hafi haft sitt að segja.
Björgunin sjálf gekk því ekki
hnökralaust fyrir sig. Ekki var
hægt að sjá hvernig skipverjarnir
voru í björgunarlykkjunni, auk
þess sem ýmsir hlutir flæktust fyrir
þeim. Engu að síður var búið að
bjarga sex mönnum um borð í TF-
SIF tæplega 40 mínútum eftir að
þyrlan kom á vettvang, sem flutti
mennina til Guðmundar læknis í
landi þar sem hann hlúði að þeim.
Ekki tók nema sjö mínútur að ferja
mennina þrjá sem eftir voru úr
Barðanum og upp á land. Þrátt fyr-
ir erfiðar aðstæður slasaðist enginn
skipverji við björgunina, þó svo að
þeir hafi allir verið mjög kaldir og
hraktir. Sjórinn var jökulkaldur og
talið er að málalyktir hefðu orðið
aðrar ef mennirnir hefðu verið
klukkustund lengur í sjónum. „Við
höfðum ekki þrek til að taka við
neinu og hefðum örugglega ekki
komist allir í land, líklegast enginn
okkar. Þetta var orðin spurning um
hvað við héldum lengi út. Báturinn
gat brotnað hvenær sem er og stýr-
ishúsið farið,“ sagði Bergþór um
aðstæðurnar um borð.
Guðmundur læknir skoðaði alla
skipverjana og voru flestir þeirra
lítið lemstraðir en sendir á sjúkra-
húsið í Ólafsvík til frekar aðhlynn-
ingar. Skipstjórinn var verst á sig
kominn og talinn lífshættulega
kaldur. Hann var fluttur á Borg-
arspítalann í Reykjavík, þar sem
hann var þó fljótt úrskurðaður úr
allri hættu. Allir skipverjarnir lifðu
því hrakningarnar af, þrátt fyrir
uggvænlegar aðstæður og erfið
björgunarskilyrði. Sigurður Stein-
ar, stýrimaður í TF-SIF, taldi að
árangurinn væri að þakka vel sam-
hæfðri áhöfn þyrlunnar, sem hefði
æft slíkar björgunaraðgerðir tvisvar
til þrisvar í viku – „og þar að auki
erum við með gott tæki,“ sagði Sig-
urður og vísaði þar til TF-SIF.
Bilaður radar og skekkja í Loran
Til þess að varpa skýrara ljósi á að-
draganda atburðanna fór fram sjó-
próf hjá bæjarfógetanum í Keflavík
þremur dögum eftir strandið,
þriðjudaginn 17. mars. Þar tjáði Eð-
vald skipstjóri réttinum að honum
hefði láðst að staðsetja skipið rétt á
korti að morgni strandsins. Hann
hefði þó séð vitann á Malarrifi og
því getað áttað sig á staðsetningu
skipsins. Ekki hefði bætt úr skák að
radarinn um borð í Barðanum hefði
haft tilhneigingu til að „detta út,“
auk þess sem Loran-tækið ætti það
til að sýna skekkju. Ómögulegt hefði
verið að sjá til lands vegna veðurs,
sem einkenndist af éljagangi og
dimmviðri.
Við sjóprófið kom jafnframt
fram að brú Barðans hefði verið
mannlaus þegar slysið varð. Skip-
stjórinn hefði sjálfur verið niður í
matsal ásamt öðrum úr áhöfninni
og ákveðið að láta skipið reka á með-
an. Í brúnni var neyðartalstöð sem
skipverjar sögðu að hefði ekki verið
notuð, hins vegar hefði verið stuðst
við VHF-örbylgjustöðina til þess
að kalla á hjálp. Strax hefði náðst
samband við Höfrung II og ekki
verið seinna vænna, þar sem önnur
hurðin hefði brotnað og sjór tekið að
flæða inn í brúnna.
Nánar má fræðast um strand
Barðans í fjölmiðlaumfjöllun þess
tíma, auk þess sem slysinu eru gerð
skil í bók Óttars Sveinssonar Útkall
Alfa TF-SIF. – sój
„Gátum ekki
annað gert
en beðið“
Við flugum nokkra
stund yfir og könnuðum
allar aðstæður. báturinn
lá á hliðinni og möstrin
voru það neðarlega að
við vorum hræddir um að
þau myndu slást upp ef
hann rétti sig.
-- Páll Halldórsson, flugstjóri TF-SiF