Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Side 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur
ferð til að kynnast þessum morgunferð-
um gámaskipanna.
Þriðjudagsmorguninn 12. júlí héldum
við félagar saman niður í Sundahöfn en
erfiðlega gekk þó að komast þangað því
allar aðkomuleiðir að höfninni voru
lokaðar af lögreglu. Um morguninn hafði
komið upp eldur á athafnasvæði Hring-
rásar og var slökkvistarfi ekki lokið. Eftir
að skipstjórinn hafði tjáð lögreglunni að
hann þyrfti að komast til skips, ásamt
fleiri skipverjum sem einnig biðu, var
veitt heimild til að halda för áfram niður
á athafnasvæði Eimskipa. Strax og um
borð var komið lögðu skipverjar síðustu
hönd á undirbúning fyrir brottför, aðal-
vél gangsett og landgangur tekinn.
Klukkan var hálf átta þegar Magnús gaf
fyrirmæli um að landfestum skyldi
sleppt. Skipið seig mjúklega frá bryggj-
unni og 5.400 kW aðalvélin fór að vinna
sína vinnu við að koma skipinu hægt og
bítandi upp í fulla ferð sem er 15 hnútar.
Selfoss er eitt fjögurra gámaskipa í
eigu Eimskipa, smíðaður í Danmörku
1991 fyrir danska útgerð en Eimskip
keypti skipið 1999. Þegar talað er um
stærðir gámaskipa þá er ávallt talað um
hversu margar 20 feta gámaeiningar þau
taka og því minna horft til tonnatölunn-
ar. Selfoss er skráður sem 724 gámaein-
ingaskip en mesta lengd hans eru 127
metrar. Skipið er flokkað sem svokallað
sellugámaskip (cellular container) sem
táknar að í lestum þess eru sporbrautir
fyrir gámanna sem þeir sitja í. Sellurnar
gera það að verkum að ekki þarf að
sjóbúa gáma í lestum sem gerir það að
verkum að minni þungi er um borð í
skipinu af sjóbúningarbúnaði. Hægt er
að lesta fjórar gámahæðir í lestum en á
þilfari geta gámarnir aftur við brú farið
í 7 hæðir en eftir því sem framar dregur
lækka gámahæðirnar. Á fremstu lestar-
lúgu eru aðeins þrjár hæðir því öðrum
kosti sæist ekkert fram fyrir skipið.
Burðargeta skipsins er 8.600 tonn. Há-
marksþungi 20 feta gáms getur verið 30
tonn sem þýðir að ef allir gámar sem
lestaðir eru um borð í skipið eru í há-
marksþunga gæti skipið einungis lestað
um 286 gáma. Það er því djúpristan sem
ræður hvenær skipið er fulllestað en ekki
heildar gámaflutningsgeta þess. Mörgum
þykja gámaskipin oft vera mikið hlaðin
enda ekki nema von því stærsti hluti
gámanna sem skipin bera eru fluttir á
þilfari. Á Selfossi er gert ráð fyrir hægt sé
að lesta 497 gáma á þilfarið sem er 68%
af heildargámaflutningsgetu skipsins.
Mikil hlaup
Um borð eru 11 skipverjar sem ganga
sínar vaktir áfram þrátt fyrir að skipið
teljist vera í heimahöfn en á skut þess
Stefnan tekin út Sundin með nýja vitann á Skarfagarði milli krananna.
Stýrimennirnir Finnur Magni Finnsson og Bragi Finnbogason.
Morgunmaturinn að verða tilbúinn. Fv. Björgvin Björgvinsson 1. vélstjóri, Gunnar Rafn Skarphéðinsson
vélavörður, Ólafur Skúlason bátsmaður og Arngrímur Jónsson háseti.