Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Blaðsíða 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur Hin árlega ljósmyndakeppni Sjó- mannablaðsins Víkings er nú hald- in í tíunda sinn. Margir sjómenn hafa sent inn myndir sínar á þessum 10 ár- um og að þessu sinni eru myndir þegar farnar að berast. Skilafrestur er til 30. nóvember næstkomandi. Á síðasta ári bárust 120 myndir í keppnina og höfðu aldrei eins margir sjómenn tekið þátt í keppninni og þá. Vonumst við að enn fleiri áhugaljósmyndarar til sjós taki þátt að þessu sinni og sýni svo um muni hversu víða íslenska sjómanna- ljósmyndara er að finna. Reglur keppninnar eru mjög einfaldar eða að ljósmyndarinn hafi verið til sjós. Myndir mega vera af sjó og landi og efniviðurinn er hverjum og einum frjáls. Þær þurfa ekki að vera teknar á árinu sem þýðir að þið sjómenn góðir getið leitað í myndasafninu ykkar. Ljósmynd- irnar geta verið á stafrænu formi eða hverju öðru prentuðu formi. Skyggnur eru einnig gjaldgengar. Ekki er þörf á fyrir þá sem skila myndum á stafrænu að láta prentaðar myndir með. Dómnefnd Sjómannablaðsins Víkings er skipuð þremur mönnum sem velja þrjár myndir sem hljóta verðlaun blaðs- ins auk tólf annarra mynda sem síðan halda áfram og taka þátt í norrænni ljós- myndakeppni sjómanna. Eins og endranær verða veglegir vinn- ingar í boði. Fyrstu verðlaun að þessu sinni verður fjarnámskeiðið, Allt um ljósmyndun, sem ljósmyndari.is gefur. Hvetjum við lesendur blaðsins að skoða síðu þeirra. Í öðru og þriðja sæti verða síðan bókaverðlaun. Norræna keppnin verður haldin í Finnlandi í febrúar n.k. en þar keppa til verðlauna sjómenn frá öllum Norður- löndunum. Verðlaunasætin í þeirri keppni eru fimm og hafa íslenskar myndir nokkrum sinnum unnið til verð- launa í þeirri keppni. Hafa skal í huga þegar ljósmyndir eru sendar inn til keppninnar að sá sem sendir hana inn verður að vera sá sem ýtti á afsmellarann á myndavélinni. Allar ljósmyndir skulu merktar ljósmyndara. Með hverri mynd þarf að vera örstutt lýsing á myndinni þar sem henni er gefið nafn sem og hvar og hvenær hún var tekin. Þá skulu vera upplýsingar um á hvaða skipi ljósmyndarinn var á. Mikil- vægt er að senda myndirnar í sem mestri upplausn. Sjómannablaðið Víkingur áskilur sér rétt til að birta allar myndir er taka þátt í keppninni án endurgjalds í blaðinu. Það sama á einnig við um myndir sem fara áfram í Norðurlandakeppnina gagnvart þeim norrænu velferðartímaritum sjó- manna, sem standa að keppninni, varð- andi birtingarrétt án endurgjalds. Hvetjum við ykkur enn og aftur til dáða bak við myndavélina en myndir skulu sendar stafrænt á iceship@heims- net.is en á pappírs- eða diskaformi til Sjómannablaðsins Víkings merkt: Sjómannablaðið Víkingur, Ljósmyndakeppni 2011 Grensásvegi 13 108 Reykjavík Ekki missa af þessari einstæðu ljós- myndakeppni sjómanna og möguleik- anum á að komast í úrvalskeppni sjó- manna á Norðurlöndum. Hilmar Snorrason Ljósmyndakeppni sjómanna 2011

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.