Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 13
Sjómannablaðið Víkingur – 13
var á hefðbundnum flutningaskipum.
Þeirra staður er í brúnni þar sem þeir
sitja við hleðslutölvu skipsins og skrá
niður allar færslur á gámum. Taka þarf
út úr hleðsluforriti losaða gáma og setja
lestuðu gámana á rétta staði í lestina.
Ekki er lengur nægjanlegt að segja að
þessi og hinn gámurinn séu í viðkom-
andi lest heldur þarf staðsetning gáms að
skrást nákvæmlega til að útreikningar
stöðugleika skipsins og stressi þess séu
réttir. Eitt af vandamálum gámaskipa er
það mikla álag sem getur komið á bol
skipanna þar sem lestun fer fram í sam-
ræmi við losunarhöfn farmsins og því oft
ekki hægt að jafna farmþunganum jafnt
milli lesta skipsins. Þetta þurfa stýri-
mennirnir að passa upp á svo ekki
skapist hætta á að skipið brotni.
Meðan skipverjarnir á Selfossi voru að
vinna sín venjubundnu skipsstörf notaði
ég tímann til að skoða skipið hátt og
lágt mér til fróðleiks og ánægju. Klukku-
stundirnar liðu ótrúlega hratt og áður en
ég vissi af voru hásetarnir byrjaðir að
loka lestarlúgum. Lestarlúgur gámaskipa
eru engar smásmíðar en hver lúga á Sel-
fossi vegur um 19 tonn að þyngd en
kranarnir fóru létt með þær. Ég heyrði
að aðalvélin var gangsett og kranarnir
felldir niður í stóla sína. Ekki þurfti að
huga að landgang því enginn slíkur var
settur upp enda fóru hvorki skipverjar í
land né að landfólk kæmi um borð.
Ekkert var að vanbúnaði hjá skipverj-
unum að sleppa landfestum og halda
heim á leið.
Selfoss lagðist aftur að bryggju í
Sundahöfn rétt um fjögurleytið og nú var
megin þorri skipverjanna á leið í sitt
reglubundna frí. Yfirmennirnir sigla
aðeins eina ferð í einu en undirmenn-
irnir fara tvær og síðan eina í frí. Hinn
skipstjóri Selfoss, Guðmundur Haralds-
son, og hans teymi tækju við skipinu á
miðnætti og færu með farminn frá
Grundartanga ásamt farmi lestuðum í
Reykjavík og Vestmannaeyjum til
Þórshafnar, Immingham og Rotterdam.
Ég vill þakka Magnúsi vini mínum
og áhöfn hans fyrir skemmtilegan dag
og að umbera forvitni mína skríðandi
um allt skipið eins og ég væri tollari í
ham.
(Fyrir áhugasama má finna fleiri ljós-
myndir frá ferðinni með Selfossi á slóðinni
https://picasaweb.google.
com/100095574473348743282/Selfoss)
Reykjavík fyrir stafni.
Selfoss að koma til Reykjavíkur.