Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur
stýra skipinu enn um sinn með því að
hella olíu stöðugt á glussakerfi stýris-
vélarinnar, en skyndilega brotnuðu fest-
ingar stýrisrammans og við það slóst
stýrið stjórnlaust. Nú varð ekki við neitt
ráðið og lagðist skipið djúpt á stjórn-
borðshliðina í 15 metra ölduhæð eða
meira. Mikil ísing hlóðst á yfirbyggingu
og möstur en skipskrokkurinn var næst-
um alltaf í kafi.
Ingólfur skipstjóri hafði staðið á
stjórnpalli, við opinn gluggann frá því
að veðrið skall á, andlitið saltstorkið og
hrímað, maðurinn sjálfur algjört hraust-
menni. Hann gaf fyrirmæli um að dæla
olíu í sjóinn, til þess að koma í veg fyrir
að brotsjóirnir lentu af fullum krafti á
skipinu, og skipaði mér að senda út
neyðarkall. Samband var haft við banda-
rískt veðurathugunarskip sem var í tals-
verðri fjarlægð og hefði þurft að sigla til
okkar á móti óveðrinu. Aðstoðar var því
ekki að vænta þaðan.
Bandarísk björgunarflugvél kom frá
flugvelli á Grænlandi „Blue West One“.
Hún flaug fyrir ofan óveðrið. Flugmenn-
irnir sendu okkur hvatningarorð og ég
man að ég svaraði: „A friend in need is a
friend indeed“.
Næst var brotist aftur í klefa stýris-
vélarinnar og tókst að binda stýris-
rammann hart í bakborða. Ingólfur
ákvað nú að ná skipinu fyrir vind eftir
svo langa dvöl á stjórnborðshliðinni. Það
tókst með því að knýja vélina til hins
ýtrasta, og lagðist skipið yfir á bakborðs-
hliðina. Auðveldaði það vinnuaðstöðu
við rennibekk í vélarrúmi, auk þess sem
olíuverk aðalvélar starfaði betur.
Héldu undir rennibekkinn
Margra er að minnast úr áhöfninni sem
vann verk sitt sem ein heild. 1. stýrimað-
ur var Guðmundur Hjaltason, síðar skip-
stjóri hjá Samskipum, þrekmenni og
dugnaðarforkur.
Á meðan stýris- og vélarafls naut við
og hægt var að andæfa gegn sjó og vindi,
stóð bátsmaðurinn, Haukur Andrésson,
við stýrið. Honum treysti Ingólfur best
að lúta fyrirmælum hans. Haukur báts-
maður var yfirvegaður og athugull af-
burðamaður. Tel ég að hann hafi staðið
við stýrið stanslaust í tæpa tvo sólar-
hringa. Haukur lærði seinna til trésmiðs,
enda hagleiksmaður.
Mánudaginn 26, janúar hafði veðrinu
slotað nokkuð og gátu vélstjórar þá hafið
bráðabirgðaviðgerð. 2. vélstjóri í ferð
þessari, var Geir Jónsson, sem fenginn Klakabarningur um borð í Drangajökli.
Vatnajökull og Drangajökull (fremra skipið) í Harbourside í New Jersey sem snemma á 6. áratugnum varð aðalviðkomustaður Jöklaskipa í Bandaríkjunum í stað
New York. Að kvöldi 28. júní 1960 hvolfdi Drangajökli á Pentlandsfirði. Mannbjörg varð. Sjóréttur komst ekki að neinni ákveðinni niðurstöðu um orsakir óhappsins
og skipverjar sögðu í blöðunum: „Óskiljanlegt hvers vegna skipið sökk.“ Mynd úr 2. b. sögu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.