Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29 Frá Massachusetts í Bandaríkjunum skrifar okkur skipstjórinn Gunnar Guðmundsson, tryggur lesandi um árabil og höfundur ófárra greina í Víkingnum. Honum rann blóðið til skyldunnar er hann sá áskorun ritstjóra í síðasta tölu- blaði og hefur þegar sent okkur fróðlegar og skemmtilegar minningar af sjónum. Í næsta tölublaði munum við til dæmis lesa um skondin atvik á Belgaum gamla þar sem Gunnar var hjálparkokkur. Gunnar byrjar þó frásögn sína fyrir vestan. New Bedford Ég var að fá Víkinginn og sá þar áskorun ritstjóra til sjómanna, að senda Víkingn- um frásagnir af upplifun okkar á sjónum, eins og hann tekur til orða. Ég fór að velta þessu fyrir mér. Maður hlýtur að hafa frá einhverju að segja eftir 52 ár á sjónum. Datt mér þá í hug að senda hon- um dagbókarbrot frá túr sem ég fór um áramótin 1962-´63 á trollbáti frá New Bedford. Fyrir þá sem ekki þekkja til er New Bedford stærsta fiskveiðihöfn Bandaríkjanna og liggur skammt fyrir sunnan Boston. Héðan eru gerðir út um 300 bátar, mest trollbátar, 50 til 100 tonn að stærð. Hér eru engir stórir togarar. Báturinn sem ég var á þennan eftirminnilega túr var 60 tonn. Yellow Tail og flúka Nú verð ég að útskýra svolítið eðli veiðanna þarna áður en ég held lengra. Svo skiljist betur það sem á eftir kemur. Á þessum miðum var mikið veitt af kolategund, ekki ósvipaðri rauð- sprettu, sem við köllum Yellow Tail (gula skottið). Nafnið kem- ur til af því að sporðurinn á hvítu hliðinni er gulur. Þarna er líka önnur kolategund, flúk, ekki ósvipuð smálúðu, en það verður ekki sagt að hún velti upp í bátana, því miður, sem er kannski ástæða þess að hún er í háu verði. Er þetta ekki gamla góða hagspekin um framboð og eftirspurn? Flúk er því eftirsótt en á veturna heldur hún sig á djúpu vatni en á sumrin við ströndina. Svo veiðist hér líka þorskur og ýsa, þó er það ekki nema svipur hjá sjón í dag, miðað við það sem áður var. Ofveiði er kennt um. Erik the Red Í áhöfninni voru sex karlar, þar af þrír bræður, Bob skipstjóri, Thor stýrimaður og Teddy vélstjóri, einn Portúgali og tveir Íslendingar, ég og Björn Eiríksson. Karlarnir við höfnina köll- uðu hann Erik the Red, Eirík rauða. Hann var í meðallagi hár, þrekinn, en ekki feitur, búlduleitur, dálítið freknóttur, með mikið hrokkið rautt hár sem nafnið var dregið af. Ári eftir þá atburði er hér segir frá fór Eiríkur fyrir borð og drukknaði. Líkið náðist þó og var Eiríkur jarðsettur í New Bedford. En þá er að segja frá túrnum. Dagbókin Dagbókin 26. desember 1962: Hætt við að fara vegna veðurs. Fimmtudagur 27. desember: Farið frá New Bedford kl. 11.00. Haldið suðvestur á fimm og hálfri sjómílu suður frá Gray Head. Föstudagur 28. desember: Kl. 01.00 kastað á 50 föðmum. 3 til 4 körfur af flúka. Laugardagur 29. desember: Kl. 06.00 kastað við Hudson Canyon (sem er gil í landgrunninu) um 100 sjómílur suðaustur af New York. Norðvestan kaldi og bjartviðri. Kl 23.20, slæm veðurspá. Sunnudagur 30. desember: Kl. 01.20 híft upp og gert sjó- klárt, lagt af stað í land kl. 01.40. Stefna norðaustur. Veðrið herðir stöðugt svo verður að breyta stefnu og halda upp í sjó og vind. Mánudagur 31. desember: Um kl. 02.00 á hægri ferð. Stórsjór og um 80 mílna stormur. Tekur þá báturinn yfir sig mikinn sjó, stafna á milli og upp í glugga. Framan við lúkars- kappann var stór loftventill fyrir lúkarinn. Sjórinn reif hann frá dekkinu og lagði niður á lúkarskappann svo þar var eftir stórt gat á dekkinu. Samt kom sáralítill sjór í lúkarinn því frostið svo Boston er stundum kölluð hin evrópska borg Bandaríkjanna. Gunnar Guðmundsson Í kröppum dansi út af New York New Bedford, stærsta fiskveiðihöfn Bandaríkjanna. Myndin sýnir vel gerð trollbátanna sem eru uppistaðan í fiskveiðiflota borgarinnar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.