Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Qupperneq 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Qupperneq 37
Sjómannablaðið Víkingur – 37 stokk tímunum saman og smátínast þaðan í opið dauðans gin; og fá enga björg veitt. Það sást raunar ekki nema með höppum og glöppum, fyrir særokinu.“1 Hannes Hafstein ráðherra ávarpaði mannfjöldann sem hnípinn fyllti planið hjá Ellingsen. Honum var ákaflega brugðið. Það var varla mánuður síðan hann kom að utan þar sem hann hafði notið allra lífsins lystisemda í Kaup- mannahöfn, gengið um hallarsali og vingast við Friðrik VIII, hinn nýja kon- ung Danaveldis, um leið og hann fylgdi þeim gamla, Kristjáni IX, til grafar. Þá var hann stór, nú var hann óumræðilega lítill. Höfuðskepnurnar urðu ekki beisl- aðar þótt ráðherra Íslands bæði menn að grípa til bjargráða. Á höfninni lá fjöldi skipa, þar af sex gufuskip, en ekkert þeirra réði við að sigla út í veður- haminn. Kvótinn á Fiskiþingi Kristján Ragnarsson er einn þeirra á Fiskiþingi, sem eru fylgjandi kvótakerf- inu, en hafði áður verið andsnúinn því. En hvers vegna? Eftir aðalfund LÍÚ fyrr um haustið fer Kristján, til Kanada í boði Magnúsar Gústafssonar, forstjóra Hamp- iðjunnar til að kynna sér fiskveiðistjórn- un þar. Kanadamenn hafa þá tekið upp kvótakerfi, þar sem aflaheimildum er úthlutað til sjávarútvegsfyrirtækja, sem 1 „Stórslysið á Viðeyjarsundi“, Ísafold 11. apríl 1906. þá geta hagrætt innan fyrirtækjanna og stundað hagkvæmari útgerð. „Þarna sannfærist ég um það að kvótakerfi sé lausnin á bæði vanda und- angenginna ára og þeirra sem framundan voru,“ segir Kristján í samtali við sögu- ritara. Og hann heldur áfram: „Hafrannsóknastofnunin lagði þá til heildarafla af þorski um 200.000 tonn, en árið 1981 var þorskaflinn um 460.000 tonn. Ég hafði nefnt það á aðalfundi okkar um haustið 1983 að miðað við þær aflaheimildir yrði að leggja öðru hverju skipi á árinu 1984. Ég taldi nauð- synlegt að kvóta yrði úthlutað á hvert og eitt skip og ábyrgðin væri þá komin á herðar hvers og eins og hver útgerðar- maður ákvæði hvenær hann fiskaði sínar heimildir. Menn gátu þá líka fært til aflaheimildir skipa innan sömu út- gerðarinnar til hagræðingar og fækkunar skipa. Þetta kom auðvitað stærri fyrir- tækjum meira til góða en öðrum, en þegar opnaðist fyrir frjálst framsal 1990 komu þessi ákvæði öllum til góða. Það var mikið heillaspor að mínu mati og ótrúlegt að það skyldi gerast í stjórnartíð vinstri stjórnar. Það var mikið áfall fyrir marga, þegar kvótakerfinu var komið á að fá í hend- urnar blað, sem á stóð hve mikið mætti fiska. Það var nánast ólýsanlegt, því á þeim tíma var sá mestur og bestur, sem mestan fisk bar að landi. Þó illa hafi gengið á einhverjum tíma átti alltaf að gera betur næst. Ég taldi alltaf rétt að miða við aflareynslu síðustu þriggja ára, eins og gert var í Kanada, en það gat komið misjafnlega niður á útgerðum og gerði það í mörgum tilfellum. Það var reynt að bæta slíkt upp eftir föngum. Það er alveg ótrúlegt að takast skyldi á svona stuttum tíma að ganga frá úthlutun í árs- byrjun 1984 án þess að kæmi til mála- ferla í einu einasta tilfelli, í raun alveg einstakt.“ Kvótakerfið, hugsanlega ekki til ef ... Þegar litið er yfir þetta tímabil, er ljóst að Fiskifélagið og þing þess hafa haft veruleg áhrif á mótun fiskveiðistefn- unnar og stjórnun fiskveiða. Eftir samþykkt Fiskiþings 1983, sem öll þá- verandi hagsmunasamtök innan sjávarút- vegsins stóðu að, hafði myndast sam- staða um kvótakerfið, sem í raun var erfitt að standa gegn. Einnig lá fyrir á þessum árum að það var eindreginn vilji Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi sjáv- arútvegsráðherra, að taka upp kvótakerfi. Á hinn bóginn má telja nokkuð víst að hefði ekki náðst samstaða á Fiskiþingi um að leggja til að veiðunum yrði stjórn- að með kvótakerfið til eins árs til reynslu haustið 1983, hefði það dregist að koma kerfinu á. Hugsanlega hefði kerfið aldrei orðið til, því ógnin sem steðjaði að, hrikalegur niðurskurður þorskveiði- heimilda og bágt ástand þorskstofnsins, hjaðnaði nánast strax aftur. Þorsk- stofninn braggaðist hratt og aflinn jókst næstu árin eftir 1984. Surprise GK 4 frá Hafnarfirði. Myndin er tekin í seinna stríði. Íslenski fáninn er málaður á kinnunginn og brúna svo Þjóðverjar sjái greinilega að skipið er frá hlut- lausri þjóð. Karlarnir eru á síld og myndin því tekin 1941. Í marsmánuði það ár voru þrjú íslensk skip skotin niður af Þjóðverjum, línuveiðarinn Fróði, togarinn Reykjaborg og línuveiðarinn Pétursey. Alls 28 sjómenn féllu. Í kjölfarið voru allar siglingar íslenskra skipa til og frá Englandi stöðvaðar og stóð svo fram á sumar. Fóru þá sumir togararnir á síld en það hefur varla gerst í annan tíma á stríðsárunum, slík voru uppgripin í kringum siglingarnar. Mynd: Úr safni Hafliða Óskarssonar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.