Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur Enn og aftur ætlum við að ferðast um netheima í leit að skemmti- legum síðum. Sumarið að klárast og enn einn veturinn framundan. Léttum okkur lundina með því að skemmta okkur um stund á áhugaverðum net- síðum en ég minni lesendur á; endilega sendið blaðinu áhugaverða tengla sem þið rekist á og teljið að eigi leið til lesenda blaðsins. Fyrsta síðan sem við skoðum hefur reyndar valdið dálitlum usla enda er til- gangur hennar að vekja athygli á mikil- vægi siglinga fyrir eyríki. Eitthvað sem við þurfum líka að lifa við. En á síðunni www.noships.com er fjallað um átaksverk- efnið Seafarers Awareness sem varir í viku á hverju ári. Að þessu sinni var búið til myndband sem sjá má á síðunni og hefur það farið fyrir brjóstið á mörgum. Bretar hafa verið í átaki að kynna mikilvægi siglinga og þar eru samtök útgerðarmanna Chamber of Shipping engin undantekning. Síða þeirra www. british-shipping.org hefur að geyma áhugavert efni um siglingar sem og bæk- ur fyrir skipstjórnendur sem ég hvet ykkur til að skoða. Heitasta netefni sumarsins er eflaust sigling strandferðaskipsins Nordnorge frá Bergen til Kirkenes í Noregi. Bæði net- verjar og sjónvarpsáhorfendur í Noregi og nágrannalöndum sátu límdir yfir þessari siglingu sem margir töldu tómt rugl að senda út í beinni útsendingu. Ekki nema von að svo hafi margir hugs- að því ferðin tók 136 tíma. Slóðin á þessa klukkutíma er www.nrk.no/hurti- gruten og er það vel þess virði að kíkja á siglingu skipsins enda mjög áhugavert efni. Ég hef reyndar ekki haft tíma til að horfa á alla siglinguna en hægt er að velja sér svæði til að skoða. Það eru fleiri en Bretar sem eru að vekja athygli á siglingum en frændur vorir Danir hafa ávallt sýnt kaupskipa- sjómennsku mikla athygli. Á slóðinni www.worldcareers.dk er að finna viðtöl við fólk úr öllum geirum þessa greinar sem lýsa því hversu áhugaverð störf þeirra eru. Ég verð að segja að ég heill- aðist af þessari framsetningu en reyndar hafa Danir kvartað undan að svo virðist sem ekki sé lengur pláss fyrir eldri sjó- menn enda séu á síðunni aðeins viðtöl við ungt fólk. Þetta eru Danir í hnot- skurn. Fyrir alla þá sem eiga í vændum sigl- ingar um svæði þar sem eiga má von á sjóræningjum þurfa sannarlega að eiga næstu síðu í uppáhaldsflipanum sínum á vafranum. Síðan www.shipping.nato.int gefur nýjustu upplýsingar um stöðu mála á einstökum svæðum. Þá eru þar leið- beiningar til áhafna um undirbúning, varnir og hegðun sem best er að beita lendi menn í þeim ósköpum að fá þessa villimenn um borð. Síða fyrir alla þá sem eru að fylgjast með fréttum úr skipaheiminum eða þá að leita upplýsinga um skip, skipshluti eða mismunandi gerðir skipa er að finna á slóðinni http://bestshippingnews.com. Nú getur þessi hópur andað léttar eftir skoðun síðunnar sem mér finnst vera mjög fræðandi og áhugaverð. Eflaust hafa allir lesendur þessara pistla einhverntíma dundað sér við að búa til pappírsflugvélar og skip. Að vísu er hér oftast um að ræða sömu hönn- unina en nú er hægt að útvíkka gerð pappírsskipalíkana. Slóðin www.walden- font.com/papermodels er reyndar um aðeins flóknari skipslíkön en þessi gömlu góðu en hér er bara að taka nýja stefnu. Reyndar er mögulegt að hlaða niður teikningar af einu slíku án greiðslu og þarf aðeins að prenta skjalið á mis- munandi þykkan pappír og svo er hægt að hefjast handa. Eftir miklar umræður um Landeyja- höfn og dýpkunarframkvæmdir þar er ekki úr vegi að skoða síðu sem fjallar um dýpkunarskip með meiru. Slóðin á síðuna er www.theartofdredging.com og þar má meðal annars sjá nýjustu hug- myndir eða tækni í dýpkunum. Eitthvað sem gæti nýst í Landeyjarhöfn - eða hvað? Oft er ég spurður eftir síðum sem bjóða upp á atvinnu fyrir sjómenn erlendis. Hér kemur því ein slík á slóð- inni www.tos.nl. Hér er um hollenska síðu að ræða en þegar ég skoðaði síðuna var fjöldinn allur af störfum í boði. Lokasíðan að þessu sinni er hreint út sagt stórkostleg og jafnframt með flott- ustu síðum sem ég hef fundið á vegferð minni um netið. Síðan fjallar um nýjasta verkefni A.P. Møller skipafélagsins, 18.000 teu‘s gámaskip, sem finna má á slóðinni www.worldslargestship.com. Þar eru ótrúlega góðir myndbútar af væntanlegum skipum og skemmtilegt að sjá samanburðinn á skipinu og banda- rískum íþróttamannvirkjum. En sjón er sögu ríkari og ætla ég því ekki að missa mig í lýsingarorðum á síðunni. Njótið vel þessarar síðu og munið að skemmtun er nauðsynleg og í stað þess að eyða löngum stundum á Facebook er hægt að nýta tölvutímann til að verða meðvitaðri um hvað er að gerast úti í hinum stóra skipaheimi. eftir Hilmar Snorrason

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.