Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 70
Á Vísindavöku næstu helgi
mun tölvuleikjafyrirtækið
Parity sýna nýja leikinn sinn
Island of Winds. Leikurinn
sækir innblástur frá 17.
aldar Íslandi þar sem íslensk
náttúra, þjóðsögur og kynja-
verur koma við sögu.
Tölvuleikjafyrirtækið Parity mun
sýna nýja leikinn sinn Island of
Winds á Vísindavökunni þann 1.
október næstkomandi. Í fyrir-
tækinu Parity starfar saman fólk
úr ólíkum áttum sem sameinast
í áhuga sínum á tölvuleikjum
og tölvuleikjagerð, segir María
Guðmundsdóttir, stofnandi og
framkvæmdastjóri Parity. „Það er
mjög fjölbreyttur og hæfileikaríkur
hópur sem vinnur hér og hann býr
yfir alls kyns menntun, reynslu og
áhugamálum auk fjölbreytileika í
aldri og kynjum.“
Hún segir fyrirtækið stefna á
útgáfu leiksins á næsta ári. „Svo
er stefnan sett á fleiri leiki í sama
heimi og við viljum nýta okkur
þá heima og verur sem við höfum
skapað með öðrum sögum og
nýjum leikjakerfum.“
Sótt til fortíðar
Island of Winds tölvuleikurinn
sækir innblástur frá 17. aldar Íslandi
að sögn Maríu. „Við erum að tala
um íslenska náttúru, þjóðsögur og
kynjaverur. Hugmyndin kviknaði
út frá því að okkur langaði að segja
sögu sem var hvorki tengd vík-
ingum né goðafræðinni og þá datt
okkur í hug galdrafárið á Íslandi og
þegar Stóri dómur lá eins og mara
yfir allri þjóðinni. Okkur langaði
líka að aðalpersónan væri kona sem
væri ekki að vaxa úr grasi (e. com-
ing of age) líkt og margir tölvuleikir
og kvikmyndir skapa, heldur kona
með reynslu sem þarf að takast á
við ýmsa fortíðardrauga.“
Sækja til nýrra hópa
Island of Winds er einspilunarleik-
ur segir María. „Leikurinn er ætl-
aður fólki sem hefur ekki mikinn
Tölvuleikur fyrir upptekið fólk
María Guð-
mundsdóttir
er stofnandi og
framkvæmda-
stjóri Parity.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Tölvuleikurinn Island of Winds sækir innblástur frá 17. aldar Íslandi.
tíma til að spila tölvuleiki en vill
upplifa dýpri tölvuleikjaspilun en
einfaldur símaleikur gefur.“
Island of Winds er þróaður með
það í huga að draga að fólk sem er
ekki vant að spila tölvuleiki á PC
tölvur en langar að prufa, segir
hún. „Við gerum viðmótið ein-
faldara þannig að það er alltaf auð-
velt að nálgast hvaða takka þú átt
að nota og svo geta þátttakendur
horft á myndbönd ef þeir hafa ekki
spilað leikinn í langan tíma.“
Þróun tölvuleikja tekur sinn
tíma að sögn Maríu, en þau nota
leikjavélina Unreal og ýmis tól
til að flýta ferlinu. „Með Island of
Winds vildum við ná þessu sorg-
mædda vori á Íslandi sem er nær
allt árið um kring og því er mikil
áhersla á útlitið og andrúmsloftið í
leiknum, til dæmis fossar og mikill
vindur, sem er frekar dýrt fyrir
vinnsluminnið og því þurfum við
að aðlaga okkar vinnu að því en
við viljum alls ekki að leikurinn
verði Island of „lognmolla“.
Mikil gróska í greininni
Undanfarin ár hefur verið mikil
gróska í tölvuleikjageiranum
hér á landi. „Það er svo sannar-
lega rétt. Nú eru um
20 tölvuleikjafyrir-
tæki starfandi hér á
landi og nokkur orðin
frekar stór. CCP ruddi
auðvitað brautina fyrir
okkur, bæði með því
að sýna hvað
tölvuleikir geta
orðið stór hluti
af útflutningstekjum
landsins, en einnig
með þeirri þekkingu
sem skapast með svo
stóru fyrirtæki, bæði hjá starfs-
fólki og í hugbúnaðargerð.“
Hún segir mikil tækifæri til að
vaxa enn frekar. „En í því felst
góður stuðningur á nýsköpunar-
stigi fyrirtækjanna, skilningur
á þeirri fjölbreyttu menntun og
reynslu sem geirinn þarf, hvort
sem það speglast í menntakerfinu
sjálfu eða með því að auðvelda
aðgengi að sérfræðingum hvaðan
sem er úr heiminum.“
Tækniþróunarsjóður skiptir
miklu máli
CCP er enn stærsta tölvuleikja-
fyrirtæki landsins en fleiri fyrir-
tæki eru í hröðum vexti, að hennar
sögn. „Þar má helst þakka Tækni-
þróunarsjóði í formi styrkja og
skattaafsláttar á þróunarkostnaði,
en einnig eru íslenskir vísisjóðir
að fjárfesta í greininni og hafa
góðan skilning á þeim tækifærum
sem íslensk tölvuleikjafyrirtæki
geta skapað á heimsvísu. Geirinn
er löngu búinn að slíta
barnsskónum en við
þurfum að opna enn
fleiri dyr til að vaxa
hraðar.“
Eins og fyrr segir ætla
þau að sýna leikinn á
Vísindavökunni 1.
október. „Þar munum
við fara yfir þróunar-
ferlið og leyfa fólki að
skyggnast á bak við
tjöldin. Næst er svo
að halda áfram með
markaðsherferð
og þróun tölvu-
leiksins svo við
fáum glæsilega
vöru á markað
á næsta ári.“ n
Veðurfræði + geimvísindi
líffræði + tónlist + tungumál
gervigrein
d + loft og v
atn + o.fl.
háskólar +
plöntur +
sólkerfiðkrabbar +
vélmenni + eldgos
vísindin
lifna við!
i
við!i din
við!
vísindavakaka
i davaka
Laugardalshöll
laugardagur 1. október
kl. 13.00 - 18.00
6 kynningarblað 24. september 2022 LAUGARDAGURvísindavak a r annís