Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 82
Sjónrænt
skipulag
á síðum
dagbókar
getur
hjálpað
mörgum
við að
halda
rútínu og
skipulagi.
Rútína, haustlitir, súpur, teppi
og rigningardagar einkenna
haustið sem nú er gengið í
garð. Margir taka haustinu
fagnandi en aðrir gráta sum-
arið og stemninguna sem því
fylgir. Fréttablaðið hefur tekið
saman tillögur að skemmti-
legum og nytsamlegum hug-
myndum fyrir haustið.
Fyrsta haustlægðin gengur
yfir landið um helgina
með tilheyrandi gulum
viðvörunum víða. Jafnvel
má búast við snjókomu
eða slyddu á Norðurlandi-Eystra.
Þá er um að gera að taka
haustinu fagnandi, hjúfra sig uppi
í sófa og horfa á sjónvarpið, elda
góðan mat og borða saman. Ef
veðrið leyfir er dásamlegt að fara
í skógarferð með nesti og skoða
haustlitina.
Margir segja haustið sína uppá-
haldsárstíð. Sérstaklega þau sem
sem vilja fasta rútínu, en haustið
er hinn fullkomni tími til að
skipuleggja sig og komast aftur í
rútínu eftir sumarið.
Á norðurhveli jarðar eru
mánuðirnir september, október
og nóvember almennt taldir
til hausts, en á suðurhveli eru
mánuðirnir mars, apríl og maí
haustmánuðir. n
Það getur alltaf
verið gaman að
elda mat en það
er sérstaklega
gaman þegar
fjölskyldan
gerir það saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Karamellupopp-
ið er auðvelt að
útbúa og það
er sérstaklega
bragðgott.
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Haustið í allri sinni dýrð
Göngutúr í
haustlitunum
er frábær af-
þreying fyrir alla
fjölskylduna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Skógarferð
Litir haustsins í allri sinni
dýrð eru mikið sjónarspil svo
skógarferð er fullkomin af-
þreying á haustin. Nýttu tæki-
færið og skoðaðu og safnaðu
laufunum sem fallið hafa af
trjánum. Þau má til dæmis
nota í föndur síðar meir.
Kærkomið er að taka
með sér nesti og setjast
niður í skóginum, njóta ferska
loftsins og jafnvel gæða sér
á bolla af heitu súkkulaði.
Haustlitirnir myndast einnig
vel svo sniðugt er að taka
fjölskyldumyndir í skóginum,
ein hugmynd er að kasta upp
hrúgu af laufum og reyna að
ná mynd þegar þau falla aftur
til jarðar.
Af hverju koma haustlit-
irnir? Sólarljós ræður mestu í því sambandi, en hiti getur einnig haft
veruleg áhrif á myndun litarefna. Sumar plöntur mynda til dæmis
rauðan lit (antósíanín-síanídín) í laufblöðum á haustin, en hversu
sterkur liturinn verður fer eftir hitasveiflu. Rauði liturinn getur verið
mjög sterkur ef dagshiti á hausti er hár og næturhiti miklu lægri.
Þetta gerist sjaldan í Reykjavík.
HEIMILD: VÍSINDAVEFURINN
Hafðu það kósí uppi í sófa
Þegar grátt og blautt er úti
er fullkomið að eiga kósí dag
í sófanum og slaka á. Popp
í skál, teppi, jogginggalli og
eitthvað skemmtilegt að
horfa á er uppskrift að góðum
degi.
Við mælum með kvikmynd-
inni Prey og þáttunum Under
the Banner og Heaven á Dis-
ney+, þáttunum Uncoupled,
Ozark og Partner Track á Net-
flix og gamalli góðri klassík líkt
og Konungi ljónanna, Aladdín,
Casablanca og Clueless.
Þá er alltaf forvitnilegt og
gaman að horfa á heimildar-
myndir og -þætti. Við mælum
með Keep Sweet Pray and
Obey, Alien Worlds, Fan-
tastic Fungi, Seaspi-
racy og The Kee-
pers, sem allt
er aðgengilegt
á Netflix.
Eldaðu mat
Hluti af haustrútínunni er
að byrja að elda kvöldmat. Á
sumrin leyfum við okkur frekar
að setjast á veitingastað, fá
okkur hamborgara í vegasjoppu
á ferðalaginu eða taka með
okkur skyndibita heim. Með
dimmari og kaldari dögum getur
bæði það að borða mat og elda
mat verið skemmtileg og góð
stund.
Þegar tími gefst til er frá-
bært að elda mat saman, öll
fjölskyldan, eða þú með maka
þínum eða vinum. Hina dagana
er kjörið að skipta matseldinni
á milli fjölskyldumeðlima,
mamma eldar einn daginn,
pabbi annan daginn og krakk-
arnir þann þriðja, til dæmis.
Hin fullkomna haustsúpa
1 blaðlaukur
2 gulrætur
1 kúrbítur
1 eggaldin
1 bufftómatur
2 kartöflur
½ rófa
2½ bolli af grænmetis- eða
kjúklingasoði
1 msk. ólífuolía
1 msk. fersk basilíka
1 msk. sítrónusafi
Salt og pipar
Skerið laukinn smátt, annað
grænmeti í grófa bita og setjið í
ofnskúffu. Blandið saman ólífu-
olíu og vel af salti og pipar og
nuddið á grænmetið. Hellið
um hálfum bolla af soðinu yfir
grænmetið og bakið í ofni við
200°C í 40 mínútur. Snúið græn-
metinu eftir 20 mínútur svo það
bakist jafnt. Maukið grænmetið í
blandara, í nokkrum skömmtum,
með hluta af soðinu og setjið í
stóran pott. Bætið afganginum
af soðinu út í pottinn ásamt
smátt skorinni ferskri basilíku og
sítrónusafa. Þynnið með vatni ef
súpan er of þykk. Kryddið eftir
smekk. Gott er að toppa súpuna
á disknum með rauðu pestói eða
rjóma. n
Skipuleggðu þig
Að loknu sumarfríi er gott
að komast aftur í rútínu með
haustinu. Þegar skólar og leik-
skólar byrja að nýju og rútínan
i vinnunni tekur við er gott
að skipuleggja sig. Í snjall-
símum eru til alls konar öpp
til að halda utan um skipu-
lagningu og margir nota einnig
dagatalið í símanum en við
mælum einnig með því að nota
dagbók.
Sjónrænt skipulag á síðum
dagbókarinnar getur hjálpað
mörgum við að halda rútínu og
skipulagi. Skrifaðu hjá þér hve-
nær þú átt að skila verkefnum,
tímasetningar funda og æfinga
hjá bæði þér og börnunum,
afmælisdaga og aðra merkis-
atburði. Ef þú vilt vera sérstak-
lega skipulögð eða skipulagður
skaltu litakóða það sem þú
skrifar í bókina.
Geggjað karamellupopp
til að njóta í sófanum:
100 g sykur
3 msk. smjör
½–1 dl rjómi
Sjávarsalt
1 poki popp eða einn meðal-
stór pottur af poppi
Setjið sykurinn á pönnu og
bræðið við vægan hita. Passið
að hafa hitann ekki of háan
og fara hægt af stað. Takið
pönnuna af hellunni þegar
sykurinn er allur bráðinn og
bætið smjörinu saman við og
hrærið vel. Hellið rjómanum
út í karamelluna og hrærið þar
til karamellan er þykk og fín.
Í lokin er saltinu bætt saman
við. Hellið poppinu í skál og
sósunni yfir poppið.
34 Helgin 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ