Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 13
Sameinumst til verndar sjálfstæði
þjóðarinnar
Sjötta þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíal-
istaflokksins telur að flugvallarsamningurinn, sem
samþykktur var á Alþ. 5. okt. 1946 gegn eindregnum
vilja þjóðarinnar, feli í sér geigvænlega hættu fyrir
fullveldi og framtíð Islendinga í landi sínu, og tengi
Island því víðtæka herstöðvakerfi, sem Bandaríkin
hafa komið sér upp víðsvegar um heim.
Þingið telur það eitt helzta hlutverk flokksins að
berjast af alefli fyrir því, að samningnum verði sagt
upp, þegar er ákvæði hans leyfa, og verði uppsögn
hans skilyrðislaust lögð undir dóm þjóðarinnar, ef
ekki verður samkomulag um hana á Alþingi.
Þar til samningurinn verður felldur úr gildi, legg-
ur þingið áherzlu á, að við framkvæmd hans verði
hagsmuna Islendinga gætt til hins ýtrasta og settar
öflugar skorður við yfirgangi bandaríska liðsins í
samræmi við þau réttindi, sem þó felast í samningn-
um sjálfum. Þar sem reynsla fyrsta árs samningsins
sannar að meiri hluti Alþ. og núverandi ríkisstjórn
skeyta í engu um réttindi íslendinga á Keflavíkur-
flugvellinum, að hann lýtur í einu og öllu yfirráð-
11
á.