Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 61
uga aðstoð í baráttu þeirra og starfi. Sumir þættir
flokksstarfsseminnar svo sem fræðslustarfið og
starfsemi meðal kvenna hefur færst í fastara form.
Eigi að síður hefur starfsemi Sósíalistaflokksins
verið í mörgu áfátt. Hvorki útbreiðsla Þjóðviljans
né fjölgun flokksmanna er í viðunandi hlutfalli við
áhrif og möguleika flokksins. Ýms sósíalistafélög
eru lítt starfandi og flokknum hefur ekki tekizt að
skapa þá virku starfsemi allra flokksmanna, sem
nauðsynleg er. Starfi flokksins í verkalýðshreyfing-
unni hefur á ýmsum sviðum verið mjög ábótavant
og er sumsstaðar um afturför að ræða.
Það er þjóðarnauðsyn, að allir íslenzkir sósíalist-
ar taki nú höndum saman um að byggja enn betur
upp, stækka og styrkja Sósíalistaflokkinn, treysta
sambönd hans og starf meðal alþýðunnar og færa
starfsemi hans enn meir út á meðal allrar þjóðar-
innar.
Til þess að þetta megi takast, þarf flokkurinn að
temja sér enn betur jákvæða gagnrýni á eigin starfi
og gefa öllum flokksmönnum sem bezt skilyrði til
virkrar starfsemi og þátttöku í ákvörðunum um
stefnu og starfsemi Sósíalistaflokksins.
Þingið telur að til eflingar flokksstarfsins séu
eftirfarandi verkefni.
Stóraukin útbreiðsla Þjóðviljans
Undanfarin tvö ár hefur Sósíalistaflokkurinn lagt
kapp á að koma upp prentsmiðju fyrir Þjóðviljann,
59