Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 14
um Bandaríkjaliðsins, að samningurinn sjálfur og
fjölmörg íslenzk lagafyrirmæli hafa verið þver-
brotin á hinn herfilegasta hátt, heitir þingið á alla
þjóðholla Islendinga að sameinast til varnar gegn
yfirgangi hins erlenda stórveldis og erindreka þess
innanlands.
Heill og framtíð íslenzku þjóðarinnar er undir því
komin að henni takist að verjast erlendri ásælni og
hrinda henni af höndum sér eins fljótt og auðið er.
Stjórnmálaályktun
6. þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins fagnar þeim mikla árangri, sem náðist fyr-
ir alla alþýðu og íslenzku þjóðina í heild sinni þau
tvö ár, sem flokkurinn tók þátt í stjórn landsins.
Framfarir þessara ára hafa markað djúp spor, sem
erfitt verður að afmá og haft gagnger áhrif á alla
þróun þjóðfélagsins og íslenzk stjórnmál.
Fiskiskipafl. var tvöfaldaður, f jórföldun flutnings-
skipafl. tryggð, nýjar síldarverksmiðjur reistar, sem
tvöfalda afköstin, ný hraðfrystihús reist og hafist
handa um að koma upp fullkomnum verksmiðjum
til vinnslu sjávarafurða. Lánsfjárskilyrði útgerðar-
innar voru stórbætt og fiskverðið til sjómanna og
útgerðarmanna hækkað um 45%. Nýrra markaða
var aflað, sem hafa úrslitaþýðingu fyrir þjóðarbú-
12