Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 71
Auðstéttin hefur því a. m. k. 7—10-faldan blaða-
kost á við Sósíalistaflokkinn gegn málstað alþýð-
unnar, auk fjölmargra annarra áróðursleiða, sem
valdaaðstaða og fjármagn auðstéttarinnar skapar
henni og aldrei hafa verið notfærð á ósvífnari hátt
en einmitt síðan núverandi ríkisstjórn settist að
völdum, er misnotkun Ríkisútvarpsins ljósast dæmi
þess.
Sósíalistaflokkurinn verður því einn að heyja bar-
áttuna gegn þessu fjársterka og skipulagða áróð-
urskerfi auðvaldsins. Til þess að það megi takast er
höfuðnauðsyn að efla blaðakost og útgáfustarfsemi
flokksins, og allir flokksmenn verða að kosta kapps
um að fylgjast sem bezt með þeim dægurmálum,
sem efst eru á baugi, svo að þeir geti túlkað sjónar-
mið og stefnu flokksins í dægurmálunum á sem skel-
eggastan hátt.
1 dægurbaráttunni verður flokkurinn þó ætíð að
hafa fyrir augum hið sósíalistiska markmið sitt og
miða starfsemi sína við það. Þingið leggur því ríka
áherzlu á það, að fræðsla um kenningar marxismans
verði stórum aukin í flokknum.
1) Allar deildir flokksins leggi á það höfuðáherzlu
að fjölga áskrifendum Réttar.
2) Flokkurinn setji sér það mark að safna fyrir
næsta reglulegt þing 1500 áskrifendum að bóka-
útgáfu flokksins.
3) Flokkurinn komi sér upp bókasjóðum, sem greiði
69