Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 45
fyrirmyndar söltunarstöð, sem síldarútvegsnefnd
annast rekstur á, þar sem hægt er að reyna ýmsar
nýjungar í síldarsöltun og miðla reynslu til annarra
saltenda.
8. Hraðað verði sem allra mest byggingu tunnu-
verksmiðja þeirra, sem ákveðið hefur verið að reisa
á Siglufirði og Akureyri. Þá skulu og byggðar
tunnuverksmiðjur, þar sem söltun er svo mikii, að
það teljist hagkvæmt og skal stefnt að því, að allar
síldartunnur, sem notaðar eru hér á landi, séu smíð-
aðar innan lands.
9. Hraðað verði sem allra mest byggingu síldar-
niðursuðu- og niðurlagningarverksmiðju þeirrar,
sem ákveðið hefur verið að reisa á Siglufirði, með
það fyrir augum að reynsla fáist í þessari atvinnu-
grein, sem hægt verði að byggja á frekari fram-
kvæmdir á sviði niðursuðuiðnaðar í þeim sjávar-
plássum, sem vel liggja við til þeirrar framleiðslu.
10. Ríkið afli sér 2—3 skipa er geti rúmað um
5000 mál síldar hvert til flutninga á síld til bræðslu,
er veiðist langt frá síldarverksmiðjum, t. d. síld frá
Faxaflóa, ísafjarðardjúpi eða Austfjörðum. Skipin
séu útbúin fullkomnum löndunartækjum og verði
flutningskostnaður sem lægstur.
11. Komið sé upp tækjum í síldarverksmiðjunum
til þess að hagnýta þau verðmæti, sem fara til ónýtis
í úrgangsvatni frá þeim.
43