Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 19
1. Barátta fyrir algerðu sjálfstæði þjóðarinnar og
utanríkisstefnu, er sé óháð erlendum stórveldum.
Herstöðvarsamningnum sé sagt upp þegar Is-
land hefur rétt til þess. Staðið sé á verði um samn-
ingsbundin réttindi Islendinga og allri frekari á-
sælni vísað á bug.
2. Áframhald nýsköpunarinnar og einbeiting allra
krafta þjóðarinnar, vinnuafls, fjármagns og gjald-
eyris, að framleiðslunni í sjávarútvegi, landbúnaði
og iðnaði, þannig að tryggt sé að hver hönd hafi
jafnan verk að vinna við þjóðnýt störf.
3. Lögð verði rík áherzla á að afla nýrra, öruggra
markaða og viðskiptasambanda, með það fyrir
augum að tryggja þjóðina, svo sem framast er
kostur fyrir kreppum og viðskiptasveiflum auð-
valdsheimsins.
4. Skipulagning á innflutningi til landsins og nýt-
ingu fjármagnsins með þarfir framleiðslunnar
og nýsköpunarinnar og heildarhagsmuni þjóðar-
innar fyrir augum. Heildarstjórn, samkvæmt á-
ætlun, á atvinnulífi þjóðarinnar, að svo miklu
leyti sem kostur er með ríkjandi framleiðsluhátt-
um.
5. Ráðstafanir til að lækka verðlag og framleiðslu-
kostnað, með aukinni tækni og afköstum, betra
skipulagi á atvinnu- og verzlunarmálum, er létti
byrðum óhófslegs gróða braskara og milliliða af
framleiðslunni og öðrum þeim ráðstöfunum, sem
nauðsynlegar kunna að reynast og framleiðslu*
stéttirnar koma sér saman um.
17
2