Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 42
tiltæki ríkisstjórnarinnar svo og þau höft sem hún
hefur lagt á atvinnulífið muni kalla atvinnuleysi og
hrun yfir þjóðina ef stjórnin fær að halda áfram á
sömu braut.
Með skírskotun til tillagna flokksins um nýjan
málefnasamning í umræðunum um stjómarmyndun
s. 1. vetur, telur þingið höfuðverkefni þjóðarinnar í
áframhaldandi uppbyggingu á, sviði sjávarútvegsins
vera sem hér segir:
I. Efling sjávarútvegsiðnaðar:
1. Ríkið reisi fiskiðjuver á eftirtöldum stöðum á
næstu árum: Höfn í Hornafirði, Suðurnesjum fyrir
verstöðvar á Reykjanesi, Isafirði og á Norðurlandi
á þeim stað, er bezt yrði talinn liggja fyrir af-
greiðslu báta er stunda veiðar fyrir Norðurlandi.
Á öðrum þeim stöðum, þar sem þörf reynist (svo
sem í Hafnarfirði, Akranesi og víðar) ef bæirnir •
koma ekki upp sjálfir þessum fyrirtækjum. Enn-
fremur að ríkið taki á sama hátt við fiskiðjuverun-
um, sem bæjarfélög eða samtök útgerðarmanna eru
að reisa, ef þess er óskað. Fiskiðjuver þessi skulu
rekin með svipuðu fyrirkomulagi og síldarverksmiðj-
ur ríkisins, og kjósi útvegsmenn og sjómenn full-
trúa í stjórn fiskiðjuveranna.
I fiskiðjuverum þessum skal vera fiskmóttökustöð
með aðstöðu til aðgerðar á fiski og ennfremur til
flutnings og söltunar á þeim fiski, sem ekki reynist
unnt að vinna á annan hátt. Þá skulu í fiskiðjuver-
40