Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 18
mið sitt. En næsta verkefni hans er ekki þjóðnýting
i stórum stíl eða gerbreyting framleiðsluháttanna í
sósíalistískt horf nú þegar, heldur barátta fyrir
efnahagslegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði lands-
ins, fyrir stórstígum atvinnulegum framkvæmdum,
sem grundvöll fyrir bættum kjörum og auknu öryggi
alls almennings, fyrir menningarlegum og félagsleg-
um framförum, fyrir eflingu alþýðusamtakanna, og
tryggingu virks lýðræðis og samtakafrelsis fólks-
ins, gegn ógnun hins nýja fasisma. Flokkurinn verð-
ur því að einbeita kröftum sínum að því, að sam-
fylkja öllinn framfaraöflum þjóðarinnar um þessi
verkefni, án tillits til skoðana manna á þjóðmálum
að öðru leyti, eða annarra ágreiningsefna vegna
mismunandi afstöðu þeirra til framleiðslunnar.
Framleiðslustéttimar og samtök þeirra og allir
þeir, sem eiga afkomu sína undir því, að framleiðsla
landsmanna aukist og eflist, að stýrt verði hjá
kreppu og atvinnuleysi, að Island verði efnahags-
lega sjálfstætt, verða að taka höndum saman til
þess að koma þessari stjóm frá, áður en henni tekst
að vinna frekari skemmdarverk og sameinast um
nýja stjóm, er styðst við samtök fólksins í landinu.
Þessi samtök geta verið allsráðandi, ef þau koma
sér saman. Sósíalistaflokkurinn mun vinna að því,
eftir því sem hann framast megnar, að slíkt sam-
komulag geti tekizt. Þingið telur að það verði að
byggjast á eftirfarandi meginatriðum, sem nánar
er gert grein fyrir í samþykktum þingsins um hina
einstöku málaflokka:
16