Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 23

Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 23
8. Beituverð á komandi vertíð verði lækkað. 9. Stuðningslán verði veitt öllum þeim útgerðar- fyrirtækjum, sem töpuðu á síldarútgerðinni í sum ar. Lánið verði veitt á svipaðan hátt og gert var 1945. Endurgreiddar verði þær 4 kr. af verði hvers síldarmáls, sem haldið var eftir vegna fiskábyrgðarlaganna. 10. Ákveðið verði að afborganir yfirstandandi árs af stofnlánum útvegsins og fyrirtækja sem starfa í beinu sambandi við útgerðina, verði ekki innheimtar á þessu ári. n. Ráðstafanir til þess að tryggja sölu sjávarafurða Þjóðin öll og þó einkum þær stéttir þjóðarinnar, sem að framleiðslu sjávarafurða starfa, eiga af- komu sína undir því hvort allar sjávarafurðir selj- ast og hve góðu verði. Þessvegna verða þessar stétt- ir að hafa fyllstu tryggingu fyrir því að allt sé gert, sem hugsanlegt er til þess að tryggja sem mestan og öruggastan markað og sem hæst verð. Bezta tryggingin er að fulltrúar þessara stétta hafi sjálf- ir yfirstjórn sölunnar, í samstarfi við þau sölusam- tök, sem mynduð eru á hverju sviði. Það er líka æskilegt að sölu sjávarafurðanna sé haldið utan við flokkabaráttuna, og reynt sé að tryggja samstarf þeirra stétta, sem að sjávarútveginum starfa, hvern- ig sem stjóm iandsins er háttað á hverjum tíma.

x

Þingtíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi
https://timarit.is/publication/1694

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.