Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Síða 64
60
Fyrir BúnaSarsamband Vestfjarða: Kristinn Guðlaugsson,
Núpi. Páll Pálsson, Þúfum. Gunnar Þórðarson, Grænumýrar-
tungu.
Fyrir Búnaðarsamband Húnavatnssýslu: Jakob H. Líndal,
Lækjamóti. Hafsteinn Pétursson, Gunnsteinsstöðum.
Fyrir Búnaðarsamband Skagfirðinga: Kristján Karlsson,
skólastjóri, Hólum. Jón Sigurðsson, Reynistað.
Fyrir Búnaðarsamband Eyjafjarðar: Ólafur Jónsson, Akur-
eyri, Hólmgeir Þorsteinsson, Hrafnagili.
Fyrir Búnaðarsamband Þingeyinga: Sigurður Jónsson, Arnar-
vatni. Helgi Kristjánsson, Leirhöfn.
Fyrir Búnaðarsamband Austurlands: Björn Hallsson, Rangá.
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum. Sigurður Jónsson, Stafafelli.
Fyrir Búnaðarsamband Suðurlands: Guðjón Jónsson. Ási, Guð-
mundur Erlendsson, Núpi, Páli Stefánsson, Ásólfsstöðum, Þór-
arinn Helgason, Þykkvabæ, Þorsteinn Sigurðson, Vatnsleysu.
Búnaðarþing er háð annaðhvort ár í Reykjavík. Skrifstofa
Búnaðarfélagsins er í Lækjargötu 14, Reykjavík. Félagið gefur
út búnaðarrit, það fá félagar ókeypis. Þá gefur það og út sér-
stakar skýrslur um ýmsar greinar starfsemi sinnar og fræði-
rit, er áhræra búnað. Starfsmenn félagsins eru:
Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmálastjóri, hefir umsjón
með öllum framkvæmdum félagsins. Sveinbjörn Benediktsson,
ritari. Gunnar Árnason, aðstoðarmaður. Pálmi Einarsson, jarð-
yrkjuráðunautur. Ásgeir Jónsson. vatnsvirkjaráðunautur. Ragnar
Ásgeirsson, formaður garðyrkjustöðvarinnar á Laugavatni og
leiðbeinandi í garðyrkju. Klemenz Kristjánsson, formaður til-
raunastöðvarinnar á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Gunnlaugur Krist-
mundsson, sandgræðsluvörður. Páll Zophóníasson, nautgripa-
ræktarráðunautur. Halldór Pálsson, sauðfjárræktarráðunautur.
Theodór Arnbjarnarson, hrossaræktarráðunautur og gjaldkeri.
Ólafur Sigurðsson, ráðunautur í klaki og veiði í ám og vötnum.
Allir, sem þess æskja, geta fengið upplýsingar um búnaðar-
mál, annað hvort á skrifstofu félagsins eða hjá starfsmönnum
þess.
BÚNAÐARSAMBÖND.
Á þessari öld hafa myndazt búnaðarsambönd. Þau eru bundin
við landsfjórðunga eða sýslur. Búnaðarsamböndin hafa sem fé-
laga búnaðarfélög sveitanna og einstaklinga. Þessi eru búnaðar-
sambönd: