Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Page 65
61
Ræktunarfélag Norðurlands, stofnað 1903. Það ’var fyrst félag
elnstaklinga, en breyttist síðan í búnaðarsamband. Nú er því
skipað í þessar deildir:
Búnaðarsamband Þingeyinga, stofnað 1928.
Húnvetninga — 1928.
Skagfirðinga — 1931.
Eyfirðinga — 1932.
Önnur búnaðarsambönd eru þessi:
Búnaðarsamband Austurlands stofnað 1903.
Vestfjarða — 1907.
Suðurlands — 1919.
Borgfirðinga — 1910.
Kjalarnesþings — 1912.
Dala- og Snæf.s. — 1914.
Búnaðarsamböndin vinna að búnaðarumbótum, svæði. Þau kjósa fulltrúa á búnaðarþing. hvert
BÚNAÐARFÉLÖG SVEITANNA.
Hið fyrsta þeirra var stofnað 1842. Það var í Svínavatns- og
Bólstaðarhliðarhreppum. Nú eru búnaðarfélög í öllum hreppum
á landinu. Tala þeirra er (1937) 217, en jarðabótamenn 4585.
Aðalverkefni búnaðarfélaganna er að vinna að jarðabótum; þær
eru árlega mældar af trúnaðarmönnum sambandanna og hafa
áður verið metnar til dagsverka. Tala jarðabótadagsverka hefir
verið: Árið 1892: 29000 dagsverk,
— 1900: 56000
— 1936: 610000
Á árunum 1892—1936 hafa búnaðarfélögin alls unnið að jarða-
bótum 9,6 millj. dagsverka.
ítarlegar skýrslur um jarðabætur búnaðarfélaganna, stofnár
þeirra, styrk, tölu félaga o. fl. er að finna í Aldarminningu
Búnaðarfélags íslands, II. bindi, bls. 186—207. Auk þeirra bún-
aðarfélaga sem nú hafa verið nefnd og vinna að alls konar bún-
aðarumbótum, hafa verið stofnuð félög, sem hafa sérstök verk-
efni. Af þeim má nefna:
Nautgriparæktunarfélög. Hið fyrsta þeirra var stofnað 1903,
nú eru þau 95. Nær % kúaeigenda er í þessum félögum.
L