Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Side 66
62
Hrossaræktarfélög. Hið fyrsta þeirra var stofnað 1904. Nú eru
þau 51.
Eftirlits- og fóðurbirgðafélög. Hið fyrsta þeirra var stofnað
1902. Nú eru þau 35.
Sauðfjárræktarbú. Hið fyrsta þeirra var stofnað í Suður-Þing-
eyjarsýslu árið 1897; nú eru þau 8.
Mjólkurbú. Hið fyrsta var stofnað 1900; það var rjómabú. 1906
urðu félög þessi flest, eða 34. Nú eru aðeins 4 starfandi. Full-
komin mjólkurbú hafa verið stofnuð:
Mjólkursamlag Kaupfélags Eyfirðinga, stofnað 1927. Mjólkur-
magn þess var 1937 2,75 milljón lítrar.
Mjólkurbú Flóamanna, stofnað 1928. Mjólkurmagn þess var
1937 5,03 milljón lítrar.
Mjólkurbú Ölfusinga, stofnað 1928. Mjólkurmagn þess var
1937 0,89 milljón lítrar.
Mjólkursamlag Borgfirðinga, stofnað 1932. Mjólkurmagn þess
var 1937 1,5 milljón lítrar.
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga, stofnað 1934. Mjólk-
urmagn þess var 1937 0,3 milljón lítrar.
Mjólkurfélag Reykjavíkur, stofnað 1917. Mjólkurmagn þess
var 1937 4,3 milljón lítrar.
Mjólkursamsalan í Reykjavík var stofnuð 1935. Mjólkurmagn
hennar var (frá mjólkurbúum og einstaklingum) 1937 5,3 milljón
lítrar.
Mjólkurframleiðslan í landinu er talin að hafa verið:
Mjólk alls Mjólk á mann
Ár millj. lítra Mannfjöldi lítrar
1901 38 78.470 480
1934 59 114.743 514
Fyrr á öldum er talið að mjólkurframleiðslan hafi verið meiri,
eða sem nemi 2—4 ltr. að meðaltali á hvern mann daglega.
FÉLAG ÍSLENZKRA MJÓLKURFRÆÐINGA.
Það var stofnað 1938. Tilgangur þess er að efla mjólkuriðnað
í landinu, og þekkingu í þeim efnum, svo og að koma skipulagi
á kennslu í mjólkurfræði. Formaður er Sigurður Guðbrandsson.
HIÐ ÍSLENZKA GARÐYRKJUFÉLAG.
Það var stofnað 1885. Tilgangur þess er að vinna að því að
efla garðyrkju í landinu. Það gefur út ársrit, heldur garðyrkju-
sýningar o. fl. Formaður þess er N. Tybjerg.