Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Side 93

Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Side 93
legum efnum. Steypið ætíð prófstein úr steypuefninu. Það er oft mikil áhætta að byggja úr því heilt hús að óreyndu. Steypuefnin verða að vera af réttum kornastærðum, mölin hæfilega gróf og sandurinn hæfilega fíngerður. Ef mölin er of gróf, leggst steypan illa í mótin og verður holótt. Ef sandurinn er of grófur verður hún hrjúf, sementið rennur brott með vatn- inu þegar hún er hrærð eða sett í mótin og steypan verður gisin og óþétt. Ódýrastir verða þeir veggir, sem hlaðnir eru úr steinum. Steinasteypan verður þó að hafa farið fram áður en byrjað er að byggja. Steinarnir eru steyptir í mótum. Steypublandan er 1 : 7 og ekki notað meira vatn en svo að steypuefnið verði gegn- rakt. Því er þjappað vel í mótin með þar til gerðum áhöldum. Steinarnir eru teknir úr mótunum 10—15 mínútum síðar. Tvöfaldir steinveggir, steyptir að þurru torfi og í mótum, eru næstir hlöðnum steinveggjum að dýrleika. Hvor veggur verður þá að vera 11 cm. að þykkt, en torfið í miðjunni 18 cm. Torfið er lagt tvöfalt og á rönd og það verður að vera gegnþurrt og má ekki vera hart, og ekki sendið eða leirrunnið. Steypublanda í tvöföldum veggjum er höfð 1 : 8 (1 : 3 : 5). — Það er nauðsyn- legt að hagræða steypuefninu vel í mótunum og að pjakka það og þjappa því niður. Krókjárn þarf að hafa til að rifa það upp, eftir að hellt er úr hverri fötu, því annars vill mölin setjast neðst og í lögum, sérstaklega ef menn af ógætni hafa haft of mikið vatn í steypunni. Gerið steypuna þannig að ekki þurfi að húða húsin utan og að það nægi að kústa þau upp úr sterkri sementsblöndu, með ofurlitlu af fínum sandi. Það hefir gefizt vel að smyrja þessa blöndu á veggina með höndunum einum saman, en nauðsynlegt er þá að hafa vettlinga. Síðast er farið yfir steypuna með bursta og hún lituð með Medusamálningu eða kalkvatni með ofurlitlu af sementi í til styrktar. Nauðsynlegt er að hafa vatnsþéttiefni í steypu grunnveggja og neðsta gólfi húsa. Biklímdan pappa má þó nota í þess stað. Grunnveggi þá, sem í jörð eru, verður vel að bika utan, eftir að þeir hafa verið holufylltir og kústaðir. Málning. Málningin er ekki fyrst og fremst til skrauts, heldur til varnar og viðhalds. Sérstaklega er nauðsynlegt að mála vel glugga og þök. Málning á þökum er nauðsynlegt að endurnýja með 5 ára
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943
https://timarit.is/publication/1692

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.