Bændablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022 Smámunasafnið er ekki minja- safn, ekki landbúnaðarsafn eða verkfærasafn, búsáhaldasafn, nagla- eða lyklasafn né heldur járnsmíðasafn, heldur allt þetta og meira til. Svo segir Sigríður Rósa Sigurðardóttir, safnstýra á Smámuna- safni Sverris Hermannssonar í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit. „Það sem mér finnst einstakt við Smámunasafnið er öll umhyggjan, væntumþykjan og natnin sem Sverrir sýndi hverjum einstökum hlut, hversu fallega hann bjó um munina, öll vinnan sem hann lagði í safnið sem hann vildi að yrði til sýnis fyrir komandi kynslóðir. Það sést svo vel á þessu safni að allir hlutir eiga sinn tilverurétt,“ segir Sigríður Rósa. Hún hefur starfað á safninu undanfarin 16 ár, þar af stýrt safninu frá árinu 2015. „Það eru forréttindi að vinna við eitthvað sem manni finnst skemmtilegt. Smámunasafnið er einstakt safn á heimsvísu.“ Smíðaverkfæri Sverris sjálfs skipa stóran sess á safninu, en á því er hægt að sjá þróunarsögu hinna ýmsu tóla og tækja. Sem dæmi eru þar heflar af öllum stærðum og gerðum, gamlir og nýir. „Sverrir safnaði yfir þúsund hlutum á hverju ári, allt frá grammófónsnálum til heilu einkasafnanna af smíðaverkefnum,“ segir Sigríður Rósa. Gaf Eyjafjarðarsveit safnið árið 2003 Sverrir gaf Eyjafjarðarsveit safn sitt árið 2003, með því skilyrði að undir það fengist rúmgott húsnæði. Það er að sögn Sigríðar vel staðsett í Sólgarði, en Sverrir var ungur að árum vinnumaður í Saurbæjarhreppi og gerði upp kirkjur þar. Áður hafði hann haldið sjálfur utan um safngripi sína heima hjá sér við Aðalstræti 38 á Akureyri. Hann var Innbæingur, fæddur árið 1928 og lést sumarið 2008. Hann var húsasmíðameistari að mennt og sérhæfði sig í að gera upp gömul hús. Fékk hann margvíslegar viðurkenningar fyrir ómetanleg störf sín á því sviði. „Sverrir fór höndum um mörg elstu og sögufrægustu húsin á Akureyri og nágrenni og tók einnig þátt í endurgerð og viðhaldi nokkurra kirkna í Eyjafirði,“ segir Sigríður en þar má nefna Grundarkirkju, Grenivíkurkirkju og Möðruvallakirkju, en flestar risu þær á 19. öld. „Safnarinn Sverrir var ekki síður við störf en húsasmíðameistarinn, vökult söfnunarauga hans hvikaði hvergi en hann varðveitti timbur og nagla ásamt öðrum hlutum úr þessum gömlu húsum sem annars hefðu lent á haugunum. Úr þessum gamla við og nöglum útbjó hann sýningargripi, sem jafnframt eru einstakir minjagripir.“ Sigríður segir hann hafa komið munum haganlega fyrir í sérsmíðuðum sýningarkössum eða á fjölum og úr varð einstakt augnayndi. „Frágangur hans var meira í ætt við myndlist, enda sjónarmið safnarans fagurfræðilegt, hann vildi hvergi hafa það sem hann sjálfur kallaði sjóngalla.“ Sigríður segir Smámunasafnið bera lönguninni til að varðveita gott vitni, þar megi finna sérstæða næmni til að sjá í hlutum það sem aðrir sjá ekki, viljann til að gefa hversdagslegum hlutum merkingu með því að setja þá í stærra samhengi. Smámunasafnið í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit: Einstakt safn á einstökum stað Sigríður Rósa Sigurðardóttir, safnstýra Smámunasafnsins í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit, við styttu sem ber nafnið Sámur. Sverrir Hermannsson var fyrirmyndin. Hann safnaði smámunum í yfir 70 ár og eru nú uppistaða þeirra muna sem sýndir eru á safninu. Félagar í Geðlist gerðu styttuna. Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Smámunasafnið hefur verið í Sólgarði frá árinu 2003 þegar Sverrir gaf Eyjafjarðarsveit safn sitt. Hönnuðir þess eru Finnur Arnar Arnarsson og Þórarinn Blöndal. Myndir / MÞÞ Þetta nestisbox átti Sverrir og hafði með sér til vinnu árum saman. Innrömmuð dúkkulísa. LÍF&STARF HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.