Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 2
Ég veit um eina sem var að skila þrettánda parinu og önnur fimmta parinu í Vest- mannaeyjum. Heiðrún Hauksdóttir, einn af skipuleggjendum verkefnisins Hjúkrunarfræðingar útskrifast Brautskráning fór fram í gær af nýrri braut innan Háskóla Íslands, Hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf. Um er að ræða sex missera nám í hjúkr- unarfræði fyrir þau sem hafa lokið öðru háskólanámi. Þetta var í fyrsta skipti sem útskrifað var frá brautinni og rektor Háskóla Íslands talaði um tímamót í sögu háskólans. Athöfnin fór fram í hátíðarsal skólans og var hátíðleg og skemmtileg en meðal annars var boðið upp á tónlistaratriði. MYND/KRISTINN INGVARSSON hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI Heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla fer af stað í Katar eftir 29 daga en mótið er einstakt fyrir margar sakir. RÚV er með sýningarétt mótsins hér á landi og verður einvalalið sérfræðinga á sjónvarpsskjáum landsmanna í kringum mótið. Hjá RÚV verður Heimir Hall- grímsson eitt af stóru andlitunum í teymi sérfræðinga, hann mun dvelja í Katar ásamt fréttamanni RÚV hluta af mótinu. Heimir þekkir vel til í Katar eftir að hafa starfað þar sem þjálfari. Heimir var á dögunum ráðinn landsliðsþjálfari Jamaíku. Margrét Lára Viðarsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrrverandi landsliðskonur, verða í hópi sérfræðinga en þar verða einn- ig Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, og Ólafur Kristjánsson, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Breiðabliki. Mótið hefst 20. nóvember og lýkur 18. desember. Um er að ræða fyrsta Heimsmeistaramótið sem ekki fer fram að sumri, þegar Katar fékk mótið á nokkuð umdeildan hátt var planið að mótið færi fram að sumri. Það varð hins vegar fljótt ljóst að kappleikir í hitanum í Katar að sumri yrðu ekki að veruleika. n HM-teymið í Efstaleiti klárt í slaginn Heimir þekkir hverja þúfu í Doha og verður í stóru hlut- verki hjá RÚV. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR benediktboas@frettabladid.is LEIKSKÓLI Enn vantar 83 stöðugildi á leikskólana í Reykjavík. Það sem af er hausti hefur verið nokkur starfs- mannavelta í leikskólunum og starfs- fólk stoppar stutt við. Skýrir það að hluta af hverju mönnun hefur í heildina lítið breyst undanfarnar vikur. Þetta kom fram í minnis- blaði Helga Grímssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar, á borgarráðsfundi á fimmtudag. Meirihlutinn benti á í bókun sinni að staðan á vinnumarkaði sé með þeim hætti að erfiðara reyn- ist að ráða fólk inn á leikskólana. Fulltrúar Sjálfstæðisf lokks lýstu áhyggjum af mönnunarvandanum og bentu á að erfitt verði að leysa leikskólavandann ef ekki verður tekið á mönnunarvandanum. Flokkur fólksins rifjaði upp tillögu sem gæti hjálpað. „Sú tillaga laut að því að ráða eldra fólk sem það vill og getur, fólk yfir sjötugu til að vinna í leikskólum. Í þeim aldurshópi er mikill mannauður,“ segir í bókun flokksins. n Stoppað stutt í leikskólum Fólk stoppar stutt sem ræður sig inn á leikskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Síðasta mánuðinn hafa sjálf- boðaliðar prjónað þúsundir sokka fyrir úkraínska her- menn. Enn er hægt að taka þátt. lovisa@frettabladid.is SAMFÉLAGSMÁL Sjálfboðaliðar víða um land hafa frá því í september prjónað þúsundir ullarsokka sem eiga að fara í byrjun næsta mánaðar til Úkraínu. Verkefnið kallast Sendum hlýju og er nú að hefjast síðasta vika þess. Heiðrún Hauksdóttir er ein þeirra sem hefur komið að skipulagningu og að því að prjóna og segir þátttök- una hafa verið frábæra, en að enn sé hægt að taka þátt. Heiðrún segir að hún hafi um langa hríð sinnt sjálfboðastarfi auk þess sem hún hefur alltaf haft áhuga á alþjóðasamskiptum og það hafi verið hvatinn að hennar þátttöku. „Ég hef verið í ýmsum verkefnum og sent hjálpargögn í gegnum Pólland í samskiptum við pólska aðila,“ segir Heiðrún og að þar megi nefna sund- föt, heimilistæki og ýmislegt annað sem Íslendingar hafa verið tilbúnir til að gefa. „Að gefa ullarsokka er eitthvað sem við öll getum tekið þátt í. Sama hvort það er að prjóna eða gefa sokka sem maður fékk einhvern tímann að gjöf. Sumir jafnvel kaupa sokka og lauma í kassann. Það kemur allt að gagni,“ segir Heiðrún en kass- arnir eru staðsettir í verslunum N1, Nettó, Krónunnar og Samkaupa og verða þar út næstu viku. „Það er svo dásamlegt að sjá hversu mikill áhuginn er. Ég veit um eina sem var að skila þrettánda parinu og önnur fimmta parinu í Vestmannaeyjum.“ Sokkarnir eru ætlaðir úkraínsk- um hermönnum. „Á austurvíg- stöðvunum getur verið verulega kalt. Miklu kaldara en við þekkjum og þá skiptir máli að þeir séu með góða sokka í skónum en ekki síður þegar þeir sofa. Kal og drep eru alvarleg vandamál,“ segir Heiðrún en stefnt er að því að tæma alla kassana 31. október og senda svo út í gámi. Enn er hægt að taka þátt en á heimasíðu verkefnisins, sendum- hlyju.is, er að finna uppskriftir að sokkum og leiðbeiningar um hvern- ig á að prjóna þá. Auk þess er þar að finna upplýsingar um alla móttöku- staði um allt land. n Íslenskir ullarsokkar á leið til Úkraínu í þúsundatali Hugrún Hauksdóttir og Nijole Sambariene eru meðal þeirra sem safnað hafa sokkunum sem ætlaðir eru úkraínskum hermönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 Fréttir 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.