Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 84
njall@frettabladid.is
Brimborg hefur sagt frá því á heima-
síðu sinni að von sé á 30 eintökum af
Ford Bronco til landsins í nóvember.
Sagt er að fyrirtækið hafi náð einstök-
um samningum við Ford í Bandaríkj-
unum um að fá bílinn langt á undan
öðrum mörkuðum í Evrópu. Um er að
ræða tvær útgáfur bílsins, Wildtrak
með 2,7 lítra EcoBoost vélinni sem
skilar 330 hestöflum og Raptor með
þriggja lítra, 418 hestafla vélinni.
Bronco verður þó ekki með ódýrari
bílum því að grunnverð Wildtrak-
útgáfunnar er 20.950.000 kr. og Rap-
tor-útgáfan bætir þremur milljónum
við það verð. Talsvert langt verður þó
í næstu sendingu sem er áætluð um
mitt næsta ár. n
Ford Bronco kemur í nóvember
Meðal staðalbúnaðar í Ford Bronco Wildtrak eru 35 tommu dekk og HOSS
2.0 fjöðrunarkerfi með Bilstein-dempurum. MYND/FORD
njall@frettabladid.is
Fyrstu kaupendur Ineos Grenadier
jeppans munu fá bíla sína afhenta
í desember en fyrstu framleiðslu-
bílarnir munu rúlla af færibandinu í
Hambach í þessum mánuði. Nokkur
eintök af fyrirframleiðslubílum hafa
sést á götunum, meðal annars hér á
Íslandi, en hann hefur verið prófaður
víða.
Ineos Grenadier mun kosta frá 8
milljónum króna í Bretlandi. Ineos
verður seldur í 200 bílasölum um
heim allan en einnig verður hægt að
panta hann beint af heimasíðu fyrir-
tækisins. Hann verður með tveimur
BMW-vélum, annars vegar þriggja
lítra, sex strokka dísilvél sem skilar
246 hestöflum og svo 281 hestafls
bensínvél með 450 Nm togi. Lággír
og læstur millikassi er staðalbúnaður
ásamt átta þrepa sjálfskiptingu. n
Fyrstu Grenadier afhentir fyrir jól
Ineos Grenadier hefur sést á Íslandi í sumar en þessi mynd af bílnum var
tekin úti á Granda. MYND/NJÁLL GUNNLAUGSSON
Porsche Taycan er um það
bil að fá andlitslyftingu
og herma heimildarmenn
innan Porsche að útgáfa með
þremur mótorum sé á leiðinni
líka. Er þeirri útgáfu eflaust
ætlað að velgja Tesla Model S
Plaid undir uggum.
njall@frettabladid.is
Njósnamyndir náðust af Porsche
Taycan við prófanir á Nurburgring
á dögunum og virðist það vera eins
konar GT-útgáfa, með vindskeiðum
að framan og aftan ásamt loftdreif-
ara undir bílnum.
Taycan Turbo S á þegar besta
tímann fyrir rafdrif inn fram-
leiðslubíl á Nurburgring en sá tími
er 7 mínútur og 33 sekúndur. Búast
má við að þriggja mótora Taycan
með yfir 1.000 hestöf l til að spila
úr geti gert einhverjar rósir, sér-
staklega þar sem að þrír mótorar
opna möguleika á að dreifa átaki
mótoranna enn betur sem mun
hjálpa upp á betri brautartíma. n
Porsche Taycan á leiðinni
með þremur mótorum
Myndir af breyttum Porsche Taycan á Nurburgring gefa orðróm um þriggja mótora útgáfu byr undir báða vængi.
MYND/AUTO EXPRESS
Barónsstígur 8-24
Akureyri 24/7
Reykjanesbær 24/7
Disney Princess
Tea Party
4.499 kr.stk
Laser X With Blaster
12.999
Science & Play
Shuttle
3.999
Yamaha Viper
Snow Bike
24.999
kr.
kr.
Lego Duplo
Wild Animals
17.999kr.
kr.
leikföng frá Costco
okkar uppáhalds
Breytilegt úrval milli verslana
Porsche Taycan Turbo
S á þegar besta tímann
fyrir rafdrifinn fram
leiðslubíl á Nurburg
ring en sá tími er 7
mínútur og 33 sek
úndur.
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2022 LAUGARDAGUR