Fréttablaðið - 22.10.2022, Síða 24
Sjálf hafði
ég ítrekað
séð óvið-
eigandi
hegðun af
hans hálfu
í ferðum og
vissi að
það hefði
oft verið
talað við
hann um
það.
Anna Dóra Sæþórsdóttir
sagði nýverið af sér sem
forseti Ferðafélags Íslands.
Ákvörðunin var sár, en eftir
að hafa reynt að breyta ýmsu
innan frá fann hún sig nauð-
beygða til að láta félagsfólk
vita af viljaleysi stjórnar
til að taka á kynferðislegri
áreitni og f leiri meinum.
Við hittumst á skrifstofu
Önnu Dóru í Tækni-
garði Háskóla Íslands
þar sem hún starfar
sem prófessor í ferða-
málafræði. Anna Dóra er doktor í
landfræði með gríðarlegan áhuga
á íslenskri náttúru og útivist sem
hún byrjaði að stunda með Ferða-
félaginu á barnsaldri. Tengslin við
félagið eru því djúp og ákvörð-
unin sem hún tók undir lok síðasta
mánaðar henni bersýnilega ekki
léttvæg.
„Mamma mín átti ekki bíl svo í
sumarfríum fórum við með rútu
upp á hálendið, gistum í skálum
Ferðafélagsins og gengum á dag-
inn,“ segir Anna Dóra sem var mjög
ung þegar faðir hennar féll frá.
„Þetta skapaði auðvitað grunn-
inn, þarna fann ég gleðina og
fegurðina,“ segir Anna Dóra um
ferðirnar í bernsku.
Á háskólaár unum ferðaðist
Anna Dóra með skólafélögunum í
landfræðinni en mikil ferðamenn-
ing ríkti í deildinni. „Ég hef alltaf
stundað mikla útivist og ferðast
mikið um landið.“
Hún segir útivist og hreyfingu sér
nauðsynlega en að hún hafi orðið
Fékk karlana
upp á móti sér
Anna Dóra Sæþórsdóttir sagði upp eftir rúmt ár á forsetastóli Ferðafélags Íslands. Hún segir það ólíkt sér að gefast upp en hún hafi séð sig knúna til að segja frá ástandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
markvissari þegar börnin þrjú urðu
eldri.
„Það losnaði um mikinn tíma
þegar börnin voru komin með bíl-
próf og maður var ekki lengur á
fullu að keyra og sækja. Ég ákvað
þá, í stað þess að fara bara að vinna
meira, að rifja upp hvað mér þætti
gaman.“
Svarið var jökla- og fjallaferðir
sem minna hafði farið fyrir á
meðan börnin voru lítil og Anna
Dóra skráði sig í Landvætti og
Landkönnuði Ferðafélagsins og svo
bættust við fjallahlaup.
„Þarna rifjaðist upp hvað mér
þótti gaman og ég er búin að vera
í þessu síðan.“
Anna Dóra tók sæti í stjórn
Ferðafélagsins árið 2019 eftir að
hafa af þakkað það nokkrum árum
áður.
„Þegar ég var svo beðin aftur
ákvað ég að segja já. Þannig gæti ég
haft meiri áhrif með þeirri þekk-
ingu sem ég bý yfir, enda Ferða-
félagið umsvifamikið á hálendinu
þar sem ég hef mest stundað rann-
sóknir,“ segir Anna Dóra.
„Ég var búin að klifra upp hinn
akademíska stiga í Háskólanum,
orðin prófessor og var deildarfor-
seti til sex ára. Ég er líka formaður
í faghópi rammaáætlunar sem sér
um að forgangsraða virkjanakost-
um í landinu og stýri þar tíu manna
faghópi. Ég er því vön ýmiss konar
stjórnunarstörfum.“
Vön karllægri menningu
Anna Dóra var deildarforseti í líf-
og umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands þar til síðasta sumar en
deildin heyrir undir Verkfræði- og
náttúruvísindasvið.
„Þar eru helstu karlavígstöðvar
Háskólans,“ segir Anna Dóra og
hlær. „Konur eru víða komnar í
meirihluta en ekki á þessu sviði.
Ég var eina konan í stjórn sviðsins
og það truflaði ekki neinn. Það er
því ekki það að ég eigi erfitt með að
vinna með körlum eða í karllægri
menningu,“ segir Anna Dóra.
Með kjöri Önnu Dóru til forseta
Ferðafélagsins á síðasta ári var
brotið blað í þá 94 ára sögu félags-
ins, enda Anna Dóra fyrsta konan á
forsetastóli.
„Konur eru meirihluti viðskipta-
vina félagsins, þær eru duglegri í
skipulagðri útivist og þar af leiðandi
eðlilegt að kona komi að stjórn
félagsins sem forseti einhvern tíma
á tæplega 100 ára sögu þess,“ segir
Anna Dóra, sem sagði af sér sem for-
seti eftir rúmt ár í því hlutverki.
Ekkert gert í kvörtunum
Haustið 2021, þegar Anna Dóra var
að fóta sig í nýju hlutverki sem for-
seti, var MeToo-umræðan hávær í
samfélaginu.
„Ég sá f ljótlega að ekki voru til
nægjanlega skýrar reglur innan
félagsins varðandi einelti og kyn-
ferðislegt of beldi eða áreiti. Ég var
því byrjuð að skrifa þær fyrir félag-
ið þegar fyrsta málið kemur á borð
til mín.“
Það mál varðaði Helga Jóhann-
esson, þáverandi fararstjóra og
stjórnarmeðlim í Ferðafélaginu.
Anna Dóra segir Sigrúnu Valbergs-
dóttur, þáverandi varaforseta félags-
ins – núverandi forseta, hafa hringt í
sig og sagt frá símtali sem hún hefði
fengið er varðaði Helga en í því hefði
kona talið upp slóð mála sem varða
kynferðislega áreitni hans gagnvart
ýmsum konum.
„Sigrún sagði mér að fyrir fjórum
árum hefði henni fyrst verið sagt að
hann hefði haft frammi gróft kyn-
ferðislegt of beldi gagnvart ungri
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
konu, en hún hefði á þeim tíma-
punkti ákveðið að gera ekkert í
málinu.“
Anna Dóra segir sín viðbrögð hafa
verið að benda á að Helgi væri ekki
aðeins stjórnarmeðlimur heldur
einnig fararstjóri í ferðum á vegum
félagsins. Félags þar sem konur væru
í meirihluta þeirra sem tækju þátt
í ferðum og oft væri gist í fjalla-
skálum – því þætti henni brýnt að
taka á þessu máli af festu.
„Framkvæmdastjórinn sagði mér
svo í framhaldinu að hann hefði
reyndar vitað af þessu í langan tíma
en ákvað bara að gera ekki neitt
með málið, frekar en Sigrún.“
Lýsti grófu kynferðislegri áreitni
Stúlkan sem um ræddi, Elísabet
Bjarnadóttir, kom svo á fund Önnu
Dóru og Páls framkvæmdastjóra.
„Þar lýsti hún grófu kynferðislegu
áreitni af hálfu Helga til margra ára
sem hófst á því að hann tróð sér upp
í koju til hennar í fjallaskála. Hún
hefði ítrekað rekið hann í burtu en
hann ekki hætt. Það er 28 ára ald-
ursmunur á þeim, hún var ungur
námsmaður og hann stjörnulög-
fræðingur svo valdamunurinn var
gríðarlegur. Áreitnin stóð svo yfir
í langan tíma og þetta fór verulega
illa með hana,“ segir Anna Dóra en
Elísabet birti sjálf færslu á Facebook
með þessari frásögn.
„Sjálf hafði ég ítrekað séð óviðeig-
andi hegðun af hans hálfu í ferðum
og vissi að það hefði oft verið talað
við hann um það.“
Anna Dóra segist þá hafa rætt
við Pál framkvæmdastjóra um það
hvort ekki væri eðlilegt að Helgi
yrði ekki lengur fararstjóri á vegum
félagsins.
„Við ákveðum að kalla Helga á
fund þar sem hann viðurkennir
stóran hluta af því sem hann var
ásakaður um. Hann var þó veru-
lega ósáttur við að það ætti að reka
hann úr starfi fararstjóra og spurði
hvort það ætti að reka hann líka úr
24 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ