Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 25
Hann segist hafa verið
svo fullur að hann
muni ekkert eftir atvik-
inu og spyr hvort ekki
sé í lagi að hann haldi
bara áfram í sama
hlaupahóp og hún.
stjórn. Áður en ég næ að koma upp
orði, verður Páll til svars og segir:
„Nei, þú ert náttúrlega vinur okkar.“
Í framhaldinu sagði Helgi sig þó úr
stjórn að minni áeggjan og þann-
ig tel ég að mér hafi tekist að forða
því að Ferðafélagið drægist inn í þá
umræðu sem síðar fór í gang um
hann.“
Fékk karlana upp á móti sér
Anna Dóra segir stjórnina þó ekki
hafa kunnað henni neinar þakkir
fyrir.
„Þetta varð kveikjan að því að ég
fékk nokkra karla í stjórninni upp
á móti mér.“
Anna Dóra segir einn mann
öðrum fremur hafa verið ósáttan
við að Helgi hefði ekki verið ráðinn
í frekari fararstjóraverkefni, en það
var Tómas Guðbjartsson, stjórnar-
maður og vinur Helga.
„Tómas varð alveg brjálaður og
sagði: „Við verðum að standa í lapp-
irnar og megum ekki láta dómstól
götunnar ákveða hvað Ferðafélagið
gerir. Hann er vinur okkar!“
Í framhaldinu mætti Anna Dóra
að eigin sögn mikilli óvild á stjórn-
arfundum. „Ég var spurð hvort
ég ætlaði að skipta mér af öllu og
hversu gömul mál ég ætlaði eigin-
lega að rifja upp. Einn spurði hvort
ég ætlaði að taka hann fastan ef
hann keyrði fullur.“
Smám saman komu svo upp fleiri
mál.
„Einn fararstjóri braut siðareglur
félagsins í ferð sumarið 2021. Þegar
framkvæmdastjórinn sagði mér frá
því lét hann fylgja með að á hverju
ári þyrfti hann að taka hann tali
vegna alls konar mála, ekki bara
varðandi áreitni, heldur vegna dóna-
skapar og samskiptaörðugleika.“
Anna Dóra segist hafa spurt hvers
vegna slíkur maður væri enn í vinnu
hjá félaginu enda væru fararstjórar
ekki fastráðnir heldur ráðnir í ein-
stök verkefni.
„Ég sagði að ef ég væri fram-
kvæmdastjóri myndi ég ekki ráða
þennan mann, eða alla vega veita
honum skrif lega áminningu, þar
sem hann væri varaður við því að
ef slíkt kæmi upp aftur fengi hann
ekki fleiri verkefni.“
Enginn vilji til að taka á málum
Á næsta stjórnarfundi segist Anna
Dóra hafa verið skömmuð fyrir
þessa tillögu.
„Þá áttaði ég mig á því að allt sem
færi á milli mín og framkvæmda-
stjórans læki beint til stjórnar og
það væri enginn vilji innan stjórnar
til að taka á málum af þessum toga,
alla vega ekki ef stjórnarfólk þekkti
viðkomandi einstakling.“
Málin héldu áfram að berast á
borð forsetans.
„Síðar kom svo í ljós að Pétur
Magnússon stjórnarmaður hafði
orðið illa fullur í ferð á vegum
félagsins sumarið 2021 þar sem
hann hafi áreitt aðstoðarfarar-
stjóra ferðarinnar og fleiri konur og
sýnt af sér aðra ósæmilega hegðun.
Slík hegðun stjórnarmanns í ferð
á vegum félagsins er auðvitað fyrir
neðan allar hellur.“
Hún segir fararstjóra ferðarinnar
hafa látið framkvæmdastjóra vita af
atvikunum og honum hafi þá verið
sagt að tala við stjórnarmanninn
sjálfur.
„Þannig átti almennur starfs-
maður að tala við stjórnarmann
en aðstöðumunurinn er augljós.
Fararstjórinn lét sig hafa það og
Pétur sagðist ætla að biðja konuna
afsökunar. Hann fer svo og ræðir
beint við þolandann, sem er óeðli-
legt og á engan hátt í samræmi við
verklagsreglur. Hann segist hafa
verið svo fullur að hann muni ekk-
ert eftir atvikinu og spyr hvort ekki
sé í lagi að hann haldi bara áfram
í sama hlaupahóp og hún,“ segir
Anna Dóra og hristir höfuðið.
„Þannig að þegar núverandi for-
seti Ferðafélagsins segir að búið
sé að leysa öll mál sem félaginu
hafi borist – þá er það svona
Anna Dóra sem
hafði stundað
útivist frá unga
aldri tók aftur
upp þráðinn
þegar börnin
urðu eldri.
MYND/AÐSEND
Húsið opnar
Setning Jafnréttisþings 2022
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Fundarstýra: Silja Bára R.
Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Staða kvenna af erlendum uppruna
á íslenskum vinnumarkaði
Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri
Verkakonur veraldarinnar. Um efnahagslega tilveru verkakvenna
og baráttu þeirra við arðránið
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Atvinnumöguleikar kvenna af erlendum uppruna sem búsettar
eru á Íslandi. Er grasið alltaf grænna hinu megin við lækinn?
Claudia Ashanie Wilson hdl.
Mannauður, menningarauður, félagslegur auður og mismunun:
Múslimskar innflytjendakonur á íslenskum vinnumarkaði.
(Human, cultural, and social capital and discrimination: Muslim
immigrant women's labour market participation in Iceland.)
Erindið verður flutt á ensku.
Fayrouz Nouh, doktorsnemi við Háskóla Íslands
Raddir kvenna af erlendum uppruna
– samstarf við félagið Hennar rödd.
Kahlé
Sófaspjall
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrir sófaspjalli með konum
af erlendum uppruna auk fulltrúa frá aðilum vinnumarkaðar.
Þátttakendur í sófaspjalli: Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur
í fræðslu og málefnum innflytjenda á skrifstofu ASÍ, Fida Abu
Libdeh, framkvæmdastýra Geosilica, Jasmina Vajzović Crnac,
stjórnarkona í félagasamtökunum Hennar Rödd, Paola Cardenas,
formaður innflytjendaráðs, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB,
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Tónlistaratriði
Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, skemmtikratur og
handritshöfundur.
Jafnréttisviðurkenning 2022
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra veitir jafnréttisviðurkenningu
Ráðstefnuslit
9.00
9.30
9.35
9.55
10.10
10.25
10.40
10.50
11.10
12.00
12.15
12.30
Skráning á stjornarradid.is
26. október
í Hörpu
JAFNRÉTTISÞING 2022
Staða kvenna af erlendum
uppruna á vinnumarkaði–
Aðgengi, möguleikar og hindranir
Dagskrá Jafnréttisþings 2022
Öll eru velkomin en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á
skráningarsíðu fundarins á stjornarradid.is. Gott aðgengi er
fyrir hjólastóla. Á þinginu er túlkað á íslensku/ensku. Þinginu er
streymt á visir.is
Helgin 25LAUGARDAGUR 22. október 2022 FRÉTTABLAÐIÐ