Fréttablaðið - 22.10.2022, Side 28
Ný lög
gerðu það
að verkum
að ákæru-
valdið í
Baltimore
gat opnað
aftur mál
Syed á
þessu ári
og skoðað
erfða-
efni með
nýjum
hætti.
Adnan Syed losnaði úr fangelsi
í október eftir að hafa setið
inni í 23 ár fyrir morðið á fyrr-
verandi kærustu sinni. Hann
hefur nú verið hreinsaður sök.
Rannsókn er enn opin.
Þann 13. janúar árið 1999
sást síðast til Hae Min Lee
á lífi. Fjölskyldan hennar
tilkynnti hana týnda eftir
að hún sótti ekki frænda
sinn í leikskólann seinni part þessa
örlagaríka miðvikudags. Lee var
á þessum tíma 18 ára og nemandi
við Woodlawn-gagnfræðaskólann
í Baltimoresýslu í Maryland-ríki
í Bandaríkjunum. Hae Min hafði
verið í skólanum þennan dag og
höfðu þó nokkrir séð hana yfirgefa
skólann við lok skóladagsins.
Stra x við tilk y nningu f jöl-
skyldunnar byrjaði lögreglan að
rannsaka málið. Fulltrúar hennar
hringdu í vini hennar og náðu svo í
fyrrverandi kærasta hennar, Adnan
Syed, um klukkan 18.30, sem sagðist
hafa séð hana við lok skóladagsins.
Um 1.30 um nóttina náði lögreglan
í kærasta hennar sem sagðist ekki
hafa séð hana um daginn.
Handtekinn og ákærður
Þann 9. febrúar fannst líkið grafið í
grunnri gröf í Leakin-almennings-
garðinum sem er um kílómetra
frá skólanum. Adnan Syed var
svo handtekinn og ákærður fyrir
morðið þann 28. febrúar og sak-
felldur árið eftir.
Í síðustu viku losnaði Adnan Syed
úr fangelsi eftir að hafa setið inni í
23 ár. Þegar hann var handtekinn
var hann aðeins 17 ára gamall, og
því barn. Eitt af því sem gerði það
að verkum að hann er laus eru ein-
mitt ný lög í Maryland-ríki sem
gerði ákæruvaldinu kleift að skoða
Syed er nú frjáls
maður eftir
að hafa setið
í fangelsi í 23
ár. Fjölskylda
Hae Min Lee
hefur áfrýjað
ákvörðuninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
aftur mál einstaklinga sem höfðu
setið inni í meira en tuttugu ár og
voru á barnsaldri þegar glæpurinn
var framinn.
Þegar málið var fyrst tekið fyrir
treysti ákæruvaldið að miklu leyti
á vitnisburð vinar Syed, Jay Wilds,
sem sagði að hann hefði hjálpað
Syed að grafa líkið. Auk þess treystu
þau á farsímagögn úr farsímaturn-
um sem þóttu sýna fram á að Syed
hafi á þeim tíma sem Hae Min Lee
var myrt verið nærri almennings-
garðinum þar sem hún svo fannst.
Í hlaðvarpinu Serial, sem alls eru
tólf þættir, kom þó ýmislegt annað
á daginn. Eins og vitni sem sagðist
hafa verið með Syed þegar Lee var
myrt. Vitnið, Asia McClain, segir
í þáttunum að hún hafi á sínum
tíma viljað bera vitni en lögmaður
Syed, Maria Cristina Gutierrez,
hafi ekki haft samband við hana.
Það má í þessu samhengi taka það
fram að árið 2001 missti Gutierrez
lögmannsréttindi sín eftir að fjöldi
kúnna hennar kvartaði undan
henni.
Þá var í þáttunum einnig dreginn
í efa trúverðugleiki símagagnanna
og sýnt fram á að sönnunargögn
sem var safnað árið 1999 voru aldr-
ei borin saman við erfðaefni Syed.
Serial kemur út
Málið er mörgum kunnugt en árið
2014 kom út hlaðvarpið Serial í
stjórn blaðamannsins Söruh Koe-
nig. Eftir það byrjaði boltinn að
rúlla í máli Syed sem hafði þó á
þeim tíma setið inni í 14 ár.
Í febrúar árið 2015 samþykkti
dómstóll í Maryland áfrýjun frá
Syed. Í nóvember sama ár sam-
þykkti svo dómari að Syed gæti lagt
fram ný gögn fyrir dómara. Eftir að
hafa skoðað gögnin, þar sem lög-
menn Syed sýndu fram á vanhæfi
verjanda hans, drógu farsímagögn-
in í efa og lögðu fram vitnisburð
McClain, samþykkti dómarinn að
hafa ný réttarhöld í máli Syed.
Lögmennirnir óskuðu þess að
Syed fengi að ganga laus gegn trygg-
ingu en því var hafnað. Eftir að ný
réttarhöld voru samþykkt tjáði
fjölskylda Lee mikil vonbrigði með
ákvörðun dómarans og sagði að
þau tryðu því enn að rétt ákvörðun
hefði verið tekin þegar Syed var sak-
felldur.
Það var svo 2018 sem Adnan hafði
aftur betur í sérstökum áfrýjunar-
dómstóli í Maryland. Þeim úrskurði
Laus eftir
23
í fangelsi
ár
Lovísa
Arnardóttir
lovisa
@frettabladid.is
var hins vegar snúið við hjá æðri
dómstól ári síðar og sakfelling hans
staðfest á ný. Í nóvember sama ár
neitaði Hæstiréttur Bandaríkjanna
að taka málið fyrir og var þá útlit
fyrir að málinu væri lokið.
Gömul mál skoðuð aftur
Á sama tíma kom fram í nýjum
heimildaþáttum um mál Adnan
að ekkert erfðaefni fannst á líkama
Hae Min Lee eða á eigum hennar
sem gat tengt hann við málið.
Eftir þetta gerðist ekkert nýtt í
málinu í þrjú ár en í mars á þessu ári
samþykkti ákæruvaldið í Baltimore
að prófa erfðaefni á eigum Lee aftur
og vísaði til mikilla tækniframfara
og til nýju laganna sem heimilaði
þeim að skoða gömul mál barna.
Þann 14. september óskaði
ákæruvaldið þess að dómari felldi
úr gildi dóminn yfir Syed vegna
þess að við rannsókn hefðu þau
komist að því að tveir aðrir væru
grunaðir í málinu, auk þess sem
þau hefðu fundið sönnunargögn
sem ákæruvaldið hafði ekki afhent
lögmönnum Syed þegar málið fór
fyrir dóm árið 2000.
Þau óskuðu eftir að hann fengi
ný réttarhöld. Hinn 19. september
gekk Syed út úr fangelsinu og átti
þá að vera undir eftirliti á heimili
sínu þar til ný réttarhöld færu fram.
Þann 11. október lét ákæruvaldið
allar ákærur gegn Syed falla niður á
þeim grundvelli að erfðaefnið sem
var rannsakað útilokaði Syed en í
fyrsta sinn var rannsakað erfðaefni
sem fannst á jakka, skóm, sokka-
buxum og jakka Hae Min Lee.
Haft var eftir aðalsaksóknara
Maryland-ríkis eftir að Syed var
laus, Marilyn Mosby, að ákæru-
valdið hefði ekki fundið nein trú-
verðug sönnunargögn sem sönn-
uðu að Syed bæri ábyrgð á dauða
Lee. Það sem fannst við endur-
skoðun sönnunargagnanna voru
gögn sem bentu til aðildar tveggja
aðila, annars sem hafði sagt að
hann myndi láta Lee hverfa og
drepa hana. Sá hinn sami var síðar
sakfelldur fyrir að ráðast á konu í
bíl sínum. Hinn var sakfelldur fyrir
að nauðga fjölda kvenna og áreita
kynferðislega.
Morðið er enn til rannsóknar en
líkurnar litlar á því að fjölskylda
Hae Min Lee komist nokkurn tíma
að því hver var að verki. Þau hafa
áfrýjað ákvörðuninni um að fella
sakfellingu Syed úr gildi. n
1999
2000
2015 2016
2018
2019
2022
2014
n 13. jan. Hae Min Lee myrt
(kyrkt), hún var þá nemandi við
Woodlawn High School í Balti-
more-sýslu, Maryland.
n 9. feb. Lík
Hae Min Lee
finnst í Leakin-
almennings-
garðinum.
n 28. feb. Syed
er handtekinn
og ákærður
fyrir morðið.
n 6. júní Syed
er dæmdur
í lífstíðar-
fangelsi fyrir
morðið.
n 3. okt. Fyrsti
þáttur Serial er
frumsýndur.
n Syed fær að
áfrýja og leggja
fram ný gögn.
n Júní: Dómari
samþykkir ný
réttarhöld.
n Syed hefur betur í sérstökum
áfrýjunardómstóli og er hreins-
aður af sök.
n 8. mars
Æðsti áfrýj-
unardómstóll
Mary land snýr
dómnum við
og setur sak-
fellinguna aftur
í gildi.
n 28. mars
Nýjar rann-
sóknir á erfða-
efni geta ekki
tengt Syed við
morðið.
n 14. sept.
Ákæruvaldið
óskar þess að
dómari felli úr
gildi sakfell-
ingu Syed.
n 19. sept.
Syed losnar úr
fangelsi en er
með ökkla-
band.
n 11. okt. Allar ákærur gegn Syed
eru felldar niður og hann frjáls
maður.
28 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFréttabLaðið