Fréttablaðið - 22.10.2022, Síða 32
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Green Diamond eru einu um
hverfisvænu dekkin sem bjóðast
hér á landi. Við erum að endur
nýta eldri belgi sem er heilmikið
umhverfismál. Að auki eru Green
Diamond dekkin örugg og hafa
sýnt fram á að þau geta hæglega
leyst nagladekkin af hólmi en
þannig getum við stuðlað að því
að minnka svifryk,“ segir Kristinn
Sigurðsson, seljandi Green Dia
mond, og bætir við að samkvæmt
rannsóknum séu nagladekk lang
stærsti einstaki áhrifavaldur svif
ryks. „Naglarnir eru tímaskekkja,
þannig að þó að það sé löglegt að
setja nagladekk undir bílinn þá vil
ég hvetja sem flesta til að velta því
fyrir sér hvort það sé endilega rétt
niðurstaða, bæði fyrir þeirra eigið
öryggi og fyrir umhverfið,“ segir
hann.
Green Diamond harðkorna
dekkin eru íslensk hönnun fyrir
íslenskar aðstæður sem henta í
flestum tilvikum betur en nagla
dekk, menga margfalt minna og
endast einstaklega vel. „Green
Diamond eru einu umhverfisvænu
og vistvænu dekkin sem bjóðast
Íslendingum,“ segir Kristinn. „Það
sem er kannski skemmtilegast við
þetta er ekki bara að framleiðsla
dekkjanna sé byggð á íslensku hug
viti, heldur hvað þetta er flott gæða
vara,“ bætir hann við en í dekkin er
notað 100% náttúrulegt gæða
gúmmí í slitlagið sem blandað er
iðnaðardemanti. „Það eru á bilinu
300400 grömm af iðnaðardemanti
í hverju fólksbíladekki sem er marg
falt meira en í öðrum svokölluðum
kornadekkjum.“
Sjálfbærni að endurnýta dekk
„Belgurinn sem við notum í
dekkin er líka framleiddur til
að vera endurnýttur, en hann er
allt að 70% af nýja dekkinu. Við
spörum nálægt 100 lítra af jarð
efnaeldsneyti á einum dekkjagangi
og það er engin spurning að við
verðum að endurnýta allt sem við
getum. Hvert einasta kolefnisspor
skiptir okkur máli og margt smátt
gerir eitt stórt. Þeir sem hafa fylgst
með umræðum um loftgæðamál
hljóta allir að vera sammála mér
um þetta,“ segir Kristinn og leggur
áherslu á orð sín.
„Við eigum próf frá annarri af
tveimur stofnunum í heiminum
sem hafa alþjóðlega vottun til að
gera samanburðarrannsóknir
á dekkjum, VTI (Vej og Teknik
Institut),“ upplýsir Kristinn.
„Samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarstofu eru algengustu
óhappaskilyrðin hér á höfuðborg
arsvæðinu þegar það er blautur
ís við frostmark og þau skilyrði
voru endursköpuð á rannsóknar
stofunni. Green Diamond reyndist
hafa 36% meiri virkni í bremsu
prófi en það dekk sem kom næst
og 32% meiri virkni í beygjuprófi.
Hér skilur milli lífs og dauða,“
bendir Kristinn á og bætir við:
„Að forgangsbifreið Björgunar
sveitarinnar á á Flúðum sé í raun
sönnun á niðurstöðum prófanna
frá Svíþjóð, góð reynsla hlýtur að
vega þyngst, þegar upp er staðið.“
Svifrykið burt
Green Diamond eru augljós kostur
fyrir alla sem vilja hætta að nota
nagladekk til að vernda umhverfið
og auka öryggi sitt. „Mjög góð
reynsla hjá fjölmörgum aðilum
og sú staðreynd að þau valda mun
minni svifryksmengun en nagla
dekkin styður þennan valkost.
Ítarleg rannsókn dr. Haraldar
Sigþórssonar umferðarverkfræð
ings, þekkt undir nafninu „Falskt
öryggi“, gefur í fyrsta lagi sterkar
vísbendingar um að naglarnir geti
gefið falskt öryggi og ökumenn á
negldum hjólbörðum valdi hlut
fallslega fleiri slysum en aðrir.
Ökumenn á nöglum keyra hraðar,
sem þýðir lengri bremsuvega
lengd, og á höfuðborgarsvæðinu
er í nálægt 98% tilfella keyrt á
þurru eða blautu malbiki, en við
slík skilyrði er hemlunarvegalengd
bifreiða á nagladekkjum almennt
lengri. Þá þekkist það við ákveðnar
aðstæður að bílar á nöglum geta
„skautað“ og það skapar hættu.
Ég leyfi mér að orða það þann
ig að naglar drepa. Læknar segja
að allt að 6080 Íslendingar deyi
ótímabærum dauða árlega vegna
svifryksmengunar og mörg
hundruð glíma við ýmis heilsu
farsvandamál. Það má rekja allt
að 30% af uppsprettu svifryks til
nagladekkja,“ segir Kristinn.
„Þegar naglarnir sverfa göturnar
myndast djúp hjólför sem fyllast
af vatni og geta skapað aukna
slysahættu, auk þess sem tjaran úr
malbikinu sest á dekk og minnkar
veggrip. Green Diamond dekkin
sverfa malbikið hins vegar 14
sinnum minna. Nagladekk eru því
barn síns tíma,“ segir Kristinn og
bætir við að það sé alveg ljóst að for
gangsbifreið Björgunarsveitarinnar
á Flúðum væri ekki búin að vera á
Green Diamond dekkjum í 10 ár ef
þau væru ekki að virka.
Geta fækkað tjónum
„Ef Green Diamond virkar í upp
sveitum Árnessýslu þá þarf enginn
nagladekk á höfuðborgarsvæðinu.
Í mörg ár hafa margar stofnanir,
stærri fyrirtæki, sveitarfélög og
fjöldi einstaklinga kosið að skipta
við okkur og við erum stolt af
því. Staðreyndin er sú að á suð
vesturhorninu er veturinn orðinn
svo mildur að ávinningurinn af
notkun nagladekkja er hverfandi í
samanburði við skaðann af þeim,
þegar heildarmyndin er skoðuð,“
segir Kristinn.
Green Diamond dekkin geta
því fækkað tjónum heilmikið
og þannig sparað þjóðarbúinu
hluta af þeim kostnaði sem fylgir
umferðar óhöpp um, en sam
kvæmt Samgöngustofu er hann
áætlaður yfir 30 milljörðum á
hverju ári. „Athuganir sýna að
það virðast allt að þrisvar sinnum
meiri líkur á að ökumenn á
slitnum hjólbörðum valdi árekstri
en þeir sem eru á nýlegum hjól
börðum og f lestöll dekk byrja
strax að missa grip þegar þau
slitna,“ segir Kristinn. „Green
Diamond dekkin halda virkninni
aftur á móti miklu betur af því
að iðnaðardemanturinn er í öllu
slitlaginu, en ekki bara efst, og
það er sama góða gúmmíið í öllu
dekkinu. Green Diamond dekkin
geta því fækkað tjónum heilmikið
og þannig sparað þjóðarbúinu
hluta af þeim kostnaði sem fylgir
umferðaróhöppum.
Í ljósi stöðugt aukinnar umræðu
um mikilvægi umhverfisverndar
og bættra loftgæða trúum við
því að mörg fyrirtæki, stofnanir
og sveitarfélög hljóti að skoða til
hlítar þann möguleika að setja bif
reiðar sínar á umhverfisvæn Green
Diamond harðkornadekk,“ segir
Kristinn.
Eru Green Diamond dekkin sam-
keppnishæf í verði?
„Já, þau eru það. Green Diamond
dekkin eru ekki ódýrustu dekkin á
markaðnum, en maður ætti aldrei
að gefa afslátt af öryggi og þau eru
mjög endingargóð, þannig að þetta
eru sannarlega hagstæð kaup,“
segir Kristinn. „Það er vel þess virði
að fjárfesta í gæðadekkjum, bæði
til að tryggja öryggi og vernda
umhverfið, þar fyrir utan má nota
Green Diamond dekkin allt árið
og spara þannig kostnað og tíma
við umfelgun vor og haust ásamt
fjármagns og geymslukostnaði í
öðrum dekkjagangi,“ bætir Krist
inn við. n
Nánari upplýsingar má finna á
hard kornadekk.is og í síma 611
7799. Einnig má senda póst á info@
hardkornadekk.is. Þegar ákvörðun
um kaup liggur fyrir er dekkjunum
komið á tiltekið dekkjaverkstæði.
Naglarnir eru tímaskekkja, að sögn Kristins, sem telur þá hættulega umhverfinu vegna svifryks.
Íslenskt hugvit undir bílinn sem um leið er umhverfisvæn leið.
Green Diamond í tíu ár
„Björgunarsveitin Eyvindur
á Flúðum hefur notað Green
Diamond harðkornadekk undir
forgangsbifreiðina í tíu ár. Dekkin
standast allar okkar kröfur, fyrst
og fremst fyrir öryggi, mýkt
og endingu auk þess að vera
vistvæn. Þau koma fyllilega í stað
nagladekkja sem bæði valda
hættulegu svifryki og tjóni á
vegum.“
Borgþór Vignisson, formaður
Green Diamond
harðkornadekkin
eru íslensk hönnun fyrir
íslenskar aðstæður sem
henta í flestum tilvikum
betur en nagladekk,
menga margfalt minna
og endast einstaklega vel.
2 kynningarblað A L LT 22. október 2022 LAUGARDAGUR