Fréttablaðið - 22.10.2022, Page 86

Fréttablaðið - 22.10.2022, Page 86
„Dagslátta er vönduð og falleg ljóðabók, sem endur- speglar mikla reynslu og mannhyggju höfundarins.“ KRISTJÁN JÓHANN JÓNSSON / FRÉTTABLAÐIÐ Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA tsh@frettabladid.is Árni Már Erlingsson opnar sýn- inguna Öldur aldanna – Útfjara í Listamönnum galleríi í dag. Í sýn- ingartexta segir að sýningin sé eins konar lokahóf eða hápunktur þess tímabils sem Árni Már hefur dvalið í undanfarin ár. „Fyrsta sýningin mín á þessum verkum hét Öldur aldanna sem er vísun í verkið Alda aldanna eftir Einar Jónsson. Þetta fæðist í raun- inni þegar ég f lyt heim frá Þýska- landi 2015, þá byrjar hjá mér algjör þráhyggja varðandi sjó. Ég verð yfir mig heillaður af því hvað sjórinn er yfirgripsmikill, stunda sjósund mjög grimmt, og þetta fæðist svona í kjölfarið,“ segir Árni Már. Af hverju ákvaðstu að ljúka þessu tímabili núna? „Í ljósi þess hversu einföld verkin eru þá fannst mér eins og það yrði að koma einhver endapunktur á þetta. Ég get ekki endalaust haldið áfram að gera þessar myndir.“ Hvernig vinnurðu verkin? „Ég vinn þetta allt með verkfær- um og á þessari sýningu er ég með tvær mismunandi sköfur. Annars vegar límsköfur sem ég möndla aðeins með, þannig dreg ég stærri myndirnar með þessum gárum í. Svo er ég bara með stóran, góðan spartlspaða í hinum verkunum.“ Árni Már segir málverkin vera ákveðna hugleiðingu um vinnuferl- ið en með kaupum fylgir spaðinn sem Árni notar til að mála verkin. „Þegar ég horfi á þetta sjálfur þá finnst mér þetta bara stálheiðar- legt málverk. Vissulega er kannski einhver hugmyndafræði á bak við þetta. En þú horfir ekki beint á þetta og það fyrsta sem þú sérð er sjór.“ Ertu þá alveg búinn að segja skilið við öldumálverkin? „Já og nei. Það eru einhverjar pant- anir sem ég á eftir að útvega sem verða gerðar eftir þessa sýningu. En planið var að taka þetta svolítið lengra og þróa eitthvað áfram. Þann- ig að í rauninni eru þetta kannski síðustu verkin sem ég geri í þessari mynd og svo munu þau bara koma í einhverju allt öðru eðli.“ Sýningin verður opnuð klukkan 16 í dag í Listamönnum á Skúla- götu 32. n Þráhyggja fyrir sjónum Árni Már Erlingsson myndlistar- maður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR BERG Contemporary vígir nýjan sýningarsal í dag með á Feneyjaverki Sigurðar Guðjónssonar. Salurinn er sérstaklega hugsaður fyrir vídeólistaverk auk stórra og flókinna innsetninga. tsh@frettabladid.is Galleríið BERG Contemporary opnar í dag nýjan sýningarsal sem er sérstaklega helgaður vídeó list. Salurinn er vígður með verkinu Ævarandi hreyfing eftir Sigurð Guðjónsson sem vakti mik la athygli á Feneyjatvíæringnum í ár. „Ég hef verið með þennan draum lengi, að fá sal með góðri hæð. Ég hef mikinn áhuga á að sýna vídeó- list og við erum náttúrlega með marga vídeólistamenn í galleríinu, þar á meðal Sigurð Guðjónsson og Vasulka-hjónin sem eru brautryðj- endur á heimsmælikvarða í þessum geira,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, stjórnandi BERG Contemporary. Sýningarsalurinn er partur af umfangsmikilli viðbyggingu sem byggð var við galleríið í porti þess á milli Klapparstígs og Smiðjustígs og var hönnuð af arkitektinum Davíð Pitt. „Þetta er hannað með það í huga að hingað sé hægt að bjóða hinum ýmsu stéttum sem tengjast mynd- listarheiminum. Sýningarstjórum, safnstjórum, listamönnum og list- fræðingum sem skrifa um og rann- saka myndlist. Þar er ég ekki síst að hugsa um þá miklu arf leifð sem Vasulka-hjónin skilja eftir sig og er efni í margar doktorsritgerðir. Það er frábært að geta boðið fólki að koma og opna á samtal út í heim,“ segir Ingibjörg. Alveg eins og í Feneyjum Í vikunni opnaði Listasafn Reykja- víkur einnig umfangsmikla yfirlits- sýningu á verkum Sigurðar Guð- jónssonar í Hafnarhúsinu. Spurð hvort Ævarandi hreyfing verði eins og í Feneyjum segir Ingibjörg: „Það verður alveg eins. Það eru sömu hlutföll í stærð á verkinu, sama lofthæð og slíkt en það er talsvert rýmra um verkið hér held- ur en var úti. Salurinn er rúmlega helmingi stærri heldur en salurinn úti og ef eitthvað er þá ætti það að hjálpa þessu frábæra, fallega verki.“ Hvernig finnst þér verkið Ævar- andi hreyfing tala inn í feril Sigurð- ar Guðjónssonar? „Sigurður er þekktur fyrir þessi tímatengdu verk sín þar sem hann Opnar á samtal út í heim Ingibjörg Jónsdóttir hefur stýrt galleríinu BERG Contemporary á Klapparstíg síðan 2016. Hana hefur lengi dreymt um að opna sýningarsal sérstaklega fyrir vídeólist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sigurður Guð- jónsson var fulltrúi Íslands á Feneyja- tvíæringnum með verkinu Ævarandi hreyf- ing (e. Perpetual Motion). MYND/VIGFÚS BIRGISSON er að vinna með leifar af vélum og manngerðum tæknihlutum. Það má segja að þetta sé rökrétt fram- hald á því ferðalagi. Hann skoðar smæstu eindir og blæs þær upp í miklar stærðir, sem er mjög áhuga- vert. Þetta er heimur sem við kom- umst inn í sem við höfum annars engan aðgang að.“ Eitt fyrsta gagnvirka verk heims Næsta verkið sem verður sýnt í nýja sýningarsalnum verður hin umfangsmikla innsetning Brother- hood eftir tékkneska listamanninn Woody Vasulka sem verður sett upp 2023. „Það er verk sem var pantað af ICC-stofnuninni í Tókýó. Hann fer þangað og er marga mánuði með stóru teymi 1996. Þetta er eitt af allra fyrstu gagnvirku verkunum sem eru sköpuð í heiminum. Þetta er mjög mikilvægt verk í listfræði- legu og listasögulegu samhengi,“ segir Ingibjörg. Verkið var upphaf lega sýnt í Tókýó árið 1998 en hefur aldrei verið sýnt aftur í heild sinni og voru hlutar nýja sýningarsalarins hrein- lega hannaðir í kringum verkið. „Síðustu árin höfum við verið að tína verkið saman og endurgera hluta þess. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1998 sem verkið er sýnt í heild sinni. Það hafa verið sýndir einstakir hlutar bæði í Tékklandi og Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta skipti sem það er endurgert algjörlega,“ segir Ingibjörg. Vídeóið muni styrkjast Að sögn Ingibjargar er nýi salurinn ekki hugsaður fyrir hefðbundnar gallerísýningar heldur fyrir stærri og f lóknari verk. Þá hentar hann verkefnaskrá gallerísins einkar vel en margir vídeólistamenn eru á skrá BERG. „Við auðvitað höfum listamenn sem vinna í alla miðla, mér finnst mikið atriði að það séu listamenn á öllum aldri og það sem hefur vakið áhuga í hverjum miðli fyrir sig, frekar heldur en að það sé bundið við einhvern ákveðinn miðil. Ég er samt eiginlega sannfærð um að vídeóið sé eitthvað sem muni styrkjast. Kynslóðirnar núna eru miklu tengdari þeim miðli.“ Ingibjörg stofnaði BERG Con- temporary árið 2016 og segist hafa farið að leggja drög að nýja sýn- ingarsalnum strax um það leyti. Framkvæmdin tók rúm þrjú ár og var mjög viðamikil enda þurfti að grafa og sprengja fyrir nýja salnum. „Að fá lofthæðina skipti miklu máli og ég þurfti að sannfæra marga um að það væri nauðsyn- legt. Inni í miðbænum fer maður nú ekki hátt upp í loftið, það er auðvitað deiliskipulag og ýmislegt sem þarf að taka tillit til. Svo það lá beint við að fara niður í jörðina,“ segir hún. n 50 Menning 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.