Fréttablaðið - 22.10.2022, Qupperneq 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
13 ára afmæli
30%
AFSLÁTTUR
af dýnu og 10%
af botni.
AFMÆLIS
Verðdæmi: 180 x 200 cm. Fullt verð: 204.900 kr.
Nú 156.430 kr.
Nú 83.940 kr.
Nú 127.425 kr.
Nature’s LUXURY
heilsurúm með Classic botni
Frábær heilsudýna með yfirdýnu fyrir enn betri hvíld.
STELLA sófi
3ja sæta sófi, blátt eða grænt áklæði.
221 x 85 x 78 cm. Fullt verð: 139.900 kr.
KOLDING
hægindastóll
Stillanlegur hægindastóll
með skammel. Svart rautt
eða grátt leður/PVC.
Fullt verð: 169.900 kr.
40%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
ninarichter@frettabladid.is
Ísgerður Gunnarsdóttir leikkona
hefur borið ýmsa hatta í gegnum
tíðina. Hún hefur gegnt stöðu verk
efnastjóra samfélagsmiðla á RÚV,
verið umsjónarmaður Krakka
frétta og sinnt leiklistinni samhliða.
Aðspurð hver frétt vikunnar er að
hennar mati, svarar Ísgerður:
„Því er auðsvarað. Það er þessi
tólf ára stelpa sem er efst í huga
allra, eftir þessa viku. Ég er búin að
vera að hugsa svo rosalega mikið
um þetta. Ég hef blendnar tilfinn
ingar gagnvart því að það hafi verið
tekið viðtal við hana á þessum tíma
punkti, undir nafni og myndbirt
ingu. Viðtal við tólf ára barn sem
reyndi að fyrirfara sér daginn áður.
Fyrir utan allt sem hefur gengið
á fram að því. En nú er þetta búið
og gert,“ segir Ísgerður. „Ísabella er
mér efst í huga. Svona snertir alla en
gerir það enn meira þegar maður er
sjálfur foreldri,“ segir hún.
„Börn eru hópur sem veit af þessu.
Það er hægt að tala mjög hreint og
beint um þetta. Þetta er þeirra
veruleiki og hlutir sem þau eru sum
hver að lenda í. Ég held að það sé
mikilvægt að benda krökkunum á
að setja sig í spor þeirra sem eru að
lenda í þessu. Spyrja hvernig þeim
myndi líða ef einhver væri svona
við þau. Það eru svo margir þátt
takendur og það er svo skrýtið að
svona stór hópur taki þátt í svona
framkomu. Mér finnst að skólinn
og foreldrar þessara krakka ættu
að taka saman höndum og ganga
í þetta mál. Þetta er fullkomlega
óásættanlegt.“ n
Blendnar tilfinningar gagnvart viðtali um einelti
n Frétt vikunnar
Ísgerður Gunnarsdóttir
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir
Í Mexíkó er farin litrík leið
til að eiga við sorg og missi
Þann 29. október verður
slegið upp veislu í Gamla bíó
í anda dags hinna dauðu.
Hefðin á uppruna sinn að
rekja til Mexíkó og snýst um
hefðir þar sem látinna ást
vina er minnst.
ninarichter@frettabladid.is
Svanlaug Jóhannsdóttir söng
kona stendur að viðburðinum en
hún þekkir þennan menningar
heim vel, ásamt því að hafa kynnst
sorginni og erfiðum missi með til
heyrandi úrvinnslu.
„Hjarta mitt slær rosalega mikið í
takt við spænskumælandi Ameríku,“
segir Svanlaug sem bjó í Ekvador í
eitt ár, hálft ár í Argentínu og sumar
í Mexíkó. „Ég tala rosalega góða
spænsku og tónlistin
hreyfir alveg virkilega
við mér,“ segir hún.
Svanlaug bjó ásamt
eiginmanni sínum á Spáni.
Þa r eig nuðu st
þau s on á r ið
2015 sem lést mán
aðargamall. „Þá fór ég
að hugsa hvað er að missa
einhvern og hvað
það er erfitt fyrir
aðstandendur. Maður
er fullur af sorg sjálfur en
það er ekkert hægt að gera
fyrir mann. Hvernig getur fólk
sem þykir vænt um mann sýnt
það?“ segir Svanlaug.
Síðar f luttu hjónin heim til
Íslands. „Besta vinkona mín á
Íslandi er frá Mexíkó og ég fór að
velta fyrir mér þeirra hefðum og
hvernig þau gera þetta.“ Svanlaug
segist hafa upplifað að íslenskar
hefðir hjálpuðu ekki mikið í sorg
arferlinu. „Fyrir nokkrum árum
áttu allir að vera bara leiðir í smá
tíma, en svo áttu þeir bara að
komast yfir þetta. Það var krafan
frá samfélaginu,“ segir hún.
„Ég fór að hugsa að við eigum
ekkert mikið af hefðum. Það er
jarðarförin og svo er það bara
búið. Þegar kemur að sorg og því
að standa með fólkinu sínu snýst
þetta líka um að búa til tækifæri
til að vera saman.“
Svanlaug nefnir sem dæmi
gamlar hefðir í Mexíkó, þar sem
jarðarfarir eru haldnar í fjögur ár
eftir andlátið. „Þá segir fólk: Við
ætlum að standa með þér núna og
líka eftir ár, og árið á eftir og líka
árið þar á eftir. Af því að sorgin
breytist svo mikið á þessum
tíma,“ segir hún.
Svanlaug nefnir skírnarvotta
í íslenskum sið í því samhengi.
„Þá er þetta svona: Ég ætla að
vera með þér, litla barn, ég ætla
að vera fortið þitt og hjálpa þér.
En jafnframt mæta vinir og ætt
ingjar í erfidrykkjur og jarðar
farir. Gætum við ekki búið til
nýjar hefðir? Gætum við ekki
hugsað: Ég skal vera öxlin þín?“
spyr Svanhildur.
Að sögn Svanhildar líkist dagur
hinna dauðu íslensku jólunum að
því leyti að þar er undirbúið og
hlakkað til. Mikil samvera felist
í deginum og mikið sé skreytt.
„Það er þessi undirbúningur,
eftirvænting, góður matur
og heilagleiki. Það eru
ekki margar þjóðir sem
hafa þennan heilag
leika, hjá mörgum eru
jólin bara partí,“ segir
hún. „En svo er ég líka
söngkona og elska
að segja sögur og hef
gert það á ýmsan hátt.
Ég hef gert sögur sem fá
fólk til að hugsa um lífið
á nýjan hátt: Hei, eigum
við ekki að gera eitthvað
öðruvísi?“
Á s a mt Sva n laug u
stígur mexíkóski tón
listarmaðurinn José
Luis Anderson á svið.
Miðasala fer fram á tix.
is og hægt er að kaupa
þríréttaðan kvöldverð á
meðan sýningu stendur. n
Svan-
laug Jóhanns-
dóttir söngkona
stígur á svið og flytur
tónlist ásamt mexíkóska
tónlistarmanninum José Luis
Anderson, á hátíð í anda dags
hinna dauðu, sem er ekki
hrekkjavaka heldur annað
og meira. MYND/EYDÍS
EYJÓLFSDÓTTIR
56 Lífið 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ