Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2022, Side 2

Skessuhorn - 19.10.2022, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 20222 Þýskur kór á Akranesi AKRANES: Ungmenna- kórinn Schaumberger frá Bückeburg í Þýskalandi, kemur í heimsókn til Akraness þann 20. október og býður til tónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni. Sérstaða þessa kórs er óvenjuleg raddsetning þar sem tenórröddin er sungin af djúpum altröddum, sem gefur kórnum einstaklega mjúkan og fallegan hljóm. Kórinn hefur á undanförnum árum haldið tónleika víða um heim, í Mið- -Evrópu, Bandaríkjunum, Japan, Afríku og í Rússlandi. Stjórnandi kórsins er Steph- anie Feindt og undirleikari er Artur Pacewicz. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20.00 og aðgangur er ókeypis. -gbþ Boðar til lýðheilsuþings ALLT LANDIÐ: Willum Þór Þórsson heilbrigðisráð- herra boðar til heilbrigðis þings 2022 sem að þessu sinni verður helgað lýðheilsu. Þingið verður haldið 10. nóvem ber á hótel Hilton Reykjavík Nord- ica. Þingið er öllum opið en fulltrúar heilbrigðisstofnana, fræðasam félagsins, sveitar- félaga, skólanna, íþróttahreyf- ingarinnar og annarra félaga- samtaka sem láta sig málið varða eru sérstaklega hvattir til þátttöku. Sjá nánar á stjornarradid.is. -gj Frístundavagn hefur akstur AKRANES: Í dag, miðviku- dag, hefst akstur frístunda- strætisvagns á vegum Akranes- kaupstaðar í samstarfi við Hópferðabíla Reynis Jóhanns- sonar. Tilgangurinn er að auðvelda börnum og ung- mennum að komast á íþrótta- æfingar og annað frístundastarf eftir að skóla lýkur á daginn. Vagninn er viðbót við núver- andi innanbæjarstrætisvagn og er ætlað að létta á honum á álagstímum. Vagninn mun hafa sjö stoppistöðvar og fer vagninn hring þrisvar á hverri klukkustund frá klukkan 13.30 til 15.47. -vaks Strandveiði­ félagið styður tillögu ALLT LANDIÐ: Strandveiði- félag Íslands styður fyllilega við tillögu til þingsályktunar frá 15. sept. sl um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfis- ins sem lögð var fram af Bjarna Jónssyni, ásamt meðflutnings- mönnunum Steinunni Þóru Árnadóttur, Jódísi Skúladóttur, Orra Páli Jóhannssyni og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur. Í þingsályktunartillögunni kemur fram að Alþingi felur matvælaráðherra að efla félags- lega hluta fiskveiðistjórnar- kerfisins með aukinni hlutdeild þess í heildarafla. Hlutdeildin fari úr 5,3% upp í 8,3%. Ráð- herra er einnig falið að endur- skoða skiptingu aflamagns innan kerfisins og markmiðum aðgerða innan þess með það að markmiði að efla hlut strand- veiða. -fréttatilkynning Til minnis Nú styttist í fyrsta frostið og því kannski upplagt að kíkja í skúffurnar og finna sér hlýja vett- linga, trefil og ullarsokka til að vera við öllu búinn. Veðurhorfur Á fimmtudag snýst í austan og norðaustan 3-8 m/s. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 6 stig en víða vægt frost á Norð- austur- og Austurlandi. Á föstu- dag verður norðaustan 3-8, skýjað og dálítil él við norður- og austurströndina en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost í innsveitum. Á laugar- dag er útlit fyrir hæga suðlæga eða breytilega átt, skýjað með köflum og dálítil væta syðst. Hiti 0 til 5 stig á Suður- og Suðvestur- landi, annars um eða undir frost- marki. Á sunnudag og mánu- dag má búast við suðlægri átt og rigningu á vestanverðu landinu en að mestu þurrt austan til. Hiti 1 til 7 stig. Spurning vikunnar Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hvað finnst þér leiðinlegasta veðrið?“ Aðeins minna en helmingur eða 41% setti slyddu efst á blað, 28% var tíðrætt um rokið, 11% var ekki sátt við skafrenninginn og minnst leiðinlegasta veðrið var rigning, snjókoma eða glamp- andi sól. Í næstu viku er spurt: Hvað finnst þér mest heillandi við makann? Vestlendingur vikunnar Fjölskyldufyrirtækið Ragnar og Ásgeir í Grundarfirði stefnir að því að rafmagnsvæða allan flutninga- bílaflotann sinn fyrir árið 2030. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru Vestlendingar vikunnar. Í Langaholti í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi hefur í tíu ár verið haldin bjúgnahátíð að hausti. Undan- skilin eru síðustu tvö ár þar sem ekki var hægt að halda hátíðina vegna samkomutakmarkana út af COVID 19. Næsta laugardag, 22. október, verður hins vegar blásið aftur til veislu og eru staðarhaldarar spenntir fyrir því að geta loks aftur matreitt dýrindis pylsur, bjúgu og slátur ofan í gesti. „Þetta er svona hátíð fyrir þann mat sem er hvað mest litinn hornauga,“ segir Þorkell Símonarson eigandi Langaholts. „Það er talað um að bjúgu og pylsur séu svona ódýr matur sem þarf ekki að kunna að elda. En nú snúum við þessu á haus, við setjum þennan mat á stall og gerum veislumat, þannig að þetta er hátíð bjúgans.“ Gaf þjóðinni loforð um hátíð bjúgans Hugmyndin að bjúgnahátíð- inni kviknaði í beinni útsendingu á Rás 2. Þorkell var tíður gestur í þætti sem Guðni Már Hennings- son, fyrrverandi dagskrárgerðar- maður, stýrði á sunnudögum. Í þeim þáttum kom Þorkell reglu- lega með innlegg um matseld og þar fram eftir götunum. Svo fór að þeir félagar ræddu í nokkur skipti um bjúgu, uppruna þeirra og hefðir og voru þeir sammála um að það mætti gera bjúgum hærra undir höfði. „Guðna var tíðrætt um að bjúgu ættu skilið almennilega hátíð og hann fékk mig til að lofa því, í beinni útsendingu, að halda bjúgna- hátíð,“ segir Þorkell, en á hátíðinni eru pylsur, bjúgu, slátur og allt það kjöt sem er í einhvers konar lengju eldað á furðulegan hátt. Bernaise og karrý­kókos Meðal þess sem í boði hefur verið eru bjúgu með Bernaise-sósu, pylsur í kókos-karrý og Róna- hryggur, en það er bjúga sem skorið er eftir endilöngu og opnað. Barbíkjúsósa er svo sett ofan á bjúgað og það bakað í ofni. Þá eru líka á boðstólum hefðbundnari útfærslur eins og bjúgu með jafn- ingi. „Við höfum í gegnum tíðina fengið bjúgun frá Kjarnafæði og við fáum í rauninni alla línuna hjá þeim, pulsur, bjúgu og slátur. Svo höfum við bara hugsað um hvað við getum gert sem er öðruvísi og gott. Það er auðvitað misgott það sem manni dettur í hug að gera, en í heildina er matseldin athyglisverð og spennandi,“ segir Þorkell. Á fyrstu bjúgnahátíðunum stóð hann sjálfur í eldhúsinu og matreiddi ofan í gestina, en síðustu ár hefur hann verið með kokka í vinnu sem sjá um að elda. „Ég ætla auðvitað að standa yfir kokkunum og segja þeim til um hvað eigi að prófa og þannig, og leiðbeina þeim um hvernig fólkið hér vill að matur- inn sé.“ Taka rösklega til matar síns Fram að þessu hefur bjúgnahá- tíðin verið vinsæl og vel sótt og segir Þorkell að hann hafi fengið skammir frá fólki í þau skipti sem hún hafi fallið niður. „Það er blandaður hópur fólks sem mætir hingað til okkar, bæði heimamenn og aðkomufólk, en þeir sem mæta eiga það sammerkt að taka rösk- lega til matar síns og hér er alltaf góð stemning,“ segir Þorkell og bætir við: „Svo hefur líka mynd- ast sú hefð að í eftirrétt sé Royal- -búðingur. Sá góði og stórmerki- legi eftirréttur er líka settur á stall og margir gestir hafa opnað sig um að það sé uppáhalds eftirrétturinn þeirra,“ segir Þorkell að lokum. Salurinn í Langaholti tekur um 50 manns í mat svo það er tak- markað pláss. Þeir sem vilja tryggja sér sæti á hátíðinni er bent á að senda tölvupóst á netfangið langa- holt@langaholt.is gbþ Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholts- hrepps hefur sent bréf til allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi um sameiningarviðræður. Er það gert á grundvelli skoðanakönnunar meðal íbúa um sameiningarmál. Afgerandi vilji Skoðanakönnunin var gerð jafn- framt sveitarstjórnarkosningunum 14. maí. Þar greiddu 58 íbúar atkvæði um nokkra kosti varðandi sameiningu og voru eftirfarandi niðurstöður afgerandi í þágu þess að allt Snæfellsnes myndi samein- ast. Í Eyja- og Miklaholtshreppi voru í ársbyrjun 2022 alls 102 íbúar og hafði fækkað um 17 milli ára. • Auðir 2 atkv. • Ógildir 3 atkv. • Vafaatkvæði 4 atkv. • Borgarbyggð 8 atkv. • Stykkishólmur/Helgafellssveit/ Grundarfjörður 4 atkv. • Stykkishólmur/Helgafellssveit 9 atkv. • Allt Snæfellsnes 28 atkv. Umræður um frekari sameiningar á Snæfellsnesi eru ekki nýjar af nál- inni og hafa verið í gangi í ýmsu formi síðustu ár. Grundarfjarðar- bær hefur boðið hinum fjórum sveitarfélögunum á Snæfellsnesi til óformlegs fundar um samein- ingarmál og kosið var um sam- einingu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps árið 2021 en hún ekki samþykkt. Stykkishólms- bær og Helgafellssveit sameinuð- ust á þessu ári og Dalabyggð hefur gert könnun meðal íbúa um nokkra möguleika á sameiningu við nær- sveitarfélög. Kolbeinsstaðahreppur og Skógarströnd hluti Snæfellsness Þess ber að geta að Kolbeinsstaða- hreppur og Skógarströnd hafa þegar sameinast Borgarbyggð og Dalabyggð en eru engu að síður landfræðilega hluti Snæfellsness. Félag Snæfellinga og Hnapp- dæla samþykkti ályktun á aðal- fundi sínum vorið 2019 þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri þróun á Snæfellsnesi, að gleymst hafi að þessi svæði teljist til héraðsins Snæfellsness. „Þessu veldur sam- eining þessara hreppa við Borgar- byggð og Dalabyggð. Landfræði- lega, sögulega og menningar- lega hafa þessir hreppar öldum saman, verið órofa hluti Snæfells- ness. Héraðaskipun á Íslandi snýst ekki aðeins um stjórnsýslueiningar, heldur er hún stór hluti af sjálfs- mynd íbúa, ekki síst þeirra sem dvelja ekki lengur á æskuslóðum. Það á ekki að gera Skógstrendinga að Dalamönnum og Kolhreppinga að Borgfirðingum. Saga, menn- ing og landslag verður ekki flutt milli byggðarlaga,“ sagði orðrétt í ályktun fundarins. Nágrannasveitarfélög Eyja- og Miklaholtshrepps munu væntan- lega taka erindi hreppsins fyrir á næstu vikum og bregðast við þeim með einhverjum hætti. Skessuhorn mun fylgjast með framvindu mála. gj Bjúgnahátíð endurvakin eftir heimsfaraldur Eyja­ og Miklaholtshreppur ræðir sameiningu Það skyldi þó ekki vera að Bárður Snæfellsás ætti eftir að sjá sameinað Snæfellsnes. Ljósm. gj. Hér er dýrindis hlaðborð á síðustu bjúgnahátíð sem haldin var 2019. Hvers kyns kjöt sem kemur í lengjum er matreitt á ýmsa vegu. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Pizza klikkar seint.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.