Skessuhorn - 19.10.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 20226
Endurskoða
regluverk
Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga
Síðustu stóru breytingar á
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
voru gerðar árið 1990. Þetta
kom fram í máli Árna Sverris
Hafsteinssonar, sérfræðings í
Innviðaráðuneytinu, á Fjár-
málaráðstefnu sveitar félaga
nýverið. Sveitarfélögum hefur
síðan þá fækkað úr 204 niður
í 64 og því eru nú allt aðrar
væntingar en voru þá, m.a.
til þjónustu sveitarfélaganna.
Auk þess hafa hlutverk þeirra
og skyldur gagnvart íbúum
vaxið mjög. Í fyrirlestri sínum
kynnti Árni Sverrir drög að
nýju líkani til að nota við
útreikninga Jöfnunarsjóðs.
Það sameinar tekjujöfnun,
útgjaldajöfnun, fasteignaskatt
og almennt grunnskólafram-
lag í eitt jöfnunarframlag.
Markmiðið með líkaninu er að
framlög Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga nýtist betur til að jafna
mismunandi útgjaldaþörf og
skatttekjur sveitarfélaga. Um
leið er horft til þess að það
geri fyrirkomulagið gagnsærra
og nálgunina nútímalegri. Þær
meginforsendur sem horft
er til eru ólíkir tekjuöflunar-
möguleikar sveitarfélaga,
ólík útgjaldaþörf og sérstakar
áskoranir, en einnig er litið til
fleiri þátta, svo sem íbúafjölda.
-gbþ
Akranes hlaut
viðurkenningu
AKRANES: Akraneskaup-
staður var eitt af sex sveitar-
félögum sem hlutu viðurkenn-
ingu Jafnréttisvogarinnar í ár,
en auk sveitarfélaganna hlutu
viðurkenningu 59 fyrirtæki
og 11 opinberir aðilar. Viður-
kenningarnar voru veittar á
ráðstefnu Jafnvægisvogar-
innar, Jafnrétti er ákvörðun,
sem var haldin við hátíðlega
athöfn þann 12. október. Jafn-
vægisvogin er hreyfiaflsverk-
efni Félags kvenna í atvinnu-
lífinu (FKA) og er tilgangur
verkefnisins m.a. að auka á
jafnvægi kynja í efsta lagi
stjórnunar fyrirtækja í íslensku
viðskiptalífi með það að mark-
miði að árið 2027 verði hlut-
fallið á milli kynja a.m.k. 40/60
í framkvæmdastjórnum fyrir-
tækja á Íslandi. Þá er horft til
þess að reyna að virkja íslenskt
viðskiptalíf til að verða að
fyrir mynd jafnréttis fyrir aðrar
þjóðir. Jafnvægisvogin veitir
því viðurkenningar og dregur
þannig fram í sviðsljósið fyrir-
tæki sem hafa náð markmiðum
verkefnisins. Þess má geta að
á ráðstefnu Jafnvægisvogar-
innar árið 2021 voru viður-
kenningarhafar 53 talsins en í
ár voru þeir samtals 76. -gbþ
Meðferð við
kæfisvefn
aðgengilegri
ALLT LANDIÐ: Heil-
brigðisráðherra hefur
ákveðið að veita Sjúkra-
tryggingum Íslands fjár-
magn til kaupa á 1.000
svefnöndunarvélum til með-
höndlunar á kæfisvefni.
Ákvörðunin tengist auk-
inni getu Landspítala til að
veita meðferð við kæfisvefni
með ráðningu aðstoðarfólks
við eininguna sem kemur að
þessari þjónustu. Rúmlega
1.000 einstaklingar bíða nú
meðferðar og er biðtíminn
um 12 mánuðir. Með átak-
inu stefnir Landspítali að því
að bið eftir meðferð stytt-
ist verulega og verði í fram-
tíðinni aðeins nokkrar vikur.
Sjá nánar á stjornarradid.is.
-fréttatilkynning
Fjör á
Vesturlandi
VESTURL: Mikið er
framundan næstu vikuna á
Vesturlandi en dansleikir
eru í Búðardal og í Borgar-
nesi næsta laugardag ásamt
bjúgnahátíð á Snæfells-
nesi að Langaholti en
Haustfagnaður FSD verður
haldin hátíðlega um helgina
í Dölum. Rökkurdagar
voru að klárast á Grundarf-
irði síðustu helgi og Norð-
urljósahátíð hefst komandi
helgi Stykkishólmi. Vöku-
dagar hefjast einnig á Akra-
nesi í næstu viku. Það er
því víst að Vestlendingum
ætti ekki að þurfa að láta sér
leiðast en nánar má lesa um
komandi viðburði á síðu 21 í
blaðinu. -sþ
Til að bæta aðgengi fyrir fiskiskip,
farþegaskip og önnur þau skip sem
höfnin á Akranesi þjónustar verður
ytri hluti aðalhafnargarðsins þar
lengdur um 120 metra á næsta ári.
Heildarlengd þess hluta bakkans
verður þá 220 metrar í stað 100
metra.
Áætlað er að framkvæmdin
verði boðin út í lok árs 2022 og að
framkvæmdir hefjist á fyrri hluta
næsta árs. Útboð á stálkaupum fór
fram á árinu 2022 og var afhent á
Akranesi nú í september. Vert er
að taka fram að 100% af stálinu er
gert úr endurunnu stáli og sam-
ræmist það stefnu Faxaflóahafna.
Framkvæmdatími verksins er áætl-
aður 1,5 – 2 ár og verður bakkinn
því tilbúinn til fullrar notkunar árið
2024, segir Inga Rut Hjaltadóttir,
sviðsstjóri Framkvæmdasviðs.
Að sögn Sigurðar Jökuls Ólafs-
sonar markaðsstjóra Faxaflóahafna
hefur stækkun bryggjunnar þegar
verið kynnt útgerðum farþegaskipa
og var framkvæmdinni mjög vel
tekið. Hún mun þýða að farþega-
skip í millistærð munu geta lagst að
bryggju í Akraneshöfn. Nú þegar
hafa verið bókaðar skipakomur
á Akranes fyrir sumarið 2023 og
áætlað er að þær verði enn fleiri
sumarið 2024 þegar bryggjan
verður tilbúin.
Sigurður Jökull segir stækkunina
vera mikilvægan lið í þeirri upp-
byggingu sem er að eiga sér stað á
Akranesi. Hún muni bæta aðstöðu
fyrir fiskiskip og stærri skip sem
sækja í auðlindir á hafi. Tækifæri
samhliða stækkun segir hann t.d.
vera að sækja á fengsæl Akranes-
mið í botnfiski eða uppsjávarfiski.
Einnig séu möguleikar fólgnir í
miðum grjótkrabba í Faxaflóa og
í að styðja við ný verkefni í lofts-
lagstengdri ræktun á sjávargræn-
meti og kræklinga- eða ostru-
ræktun. Farþegar millistórra far-
þegaskipa munu frekar eiga kost
á að upplifa það sem Akranes og
nærumhverfi hefur upp á að bjóða,
t.d. Guðlaugu við Langasand, vita-
svæðið á Breið, Byggðasafnið í
Görðum og frábæran golfvöll. Sig-
urður Jökull segir að uppbygging
hafnarinnar muni auka forskot
Vesturlands alls í að taka virkari
þátt í ferðaþjónustu og að mörg
tækifæri séu í sjónmáli. Í byrjun
ársins 2021 var haldinn íbúafundur
á meðal Akurnesinga þar sem ýmsir
hagaðilar í ferðaþjónustu komu
saman og var afrakstur fundar-
ins skemmtilega uppsett skjal með
leiðbeiningum fyrir gesti um hvað
væri gaman að sjá og gera á Akra-
nesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri þar tekur undir þetta: „Við á
Akranesi eigum margt inni og erum
full tilhlökkunar að móta Akra-
nes sem spennandi og eftirsóknar-
verðan ferðamannastað.“
gj
Faxaflóahafnir lengja
aðalhafnargarðinn á Akranesi
Endurunnið stál notað í framkvæmdina
Frá vinstri: Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, Inga Rut
Hjaltadóttir, Sviðstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna og Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri á Akranesi. Ljósmynd: Faxaflóahafnir.
Yfirlitsmynd fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir sem sýna lengingu bakkans og
fyrirhugaða dýpkun á svæði. Faxaflóahafnir.