Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2022, Qupperneq 15

Skessuhorn - 19.10.2022, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 15 Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í verkið: Flatahverfi Hvanneyri 2022. Verlok eru 15. júní 2023. Áfanga 1 skal lokið 30. apríl 2023 og áfanga 2 (yfirborðsfrágangur) skal lokið 15. júní 2023. ÚTBOÐ Verkið felur í sér gerð á nýjum götum í Flatahverfi á Hvanneyri, Þrastarflöt, Ugluflöt og Hrafnaflöt. Einnig felur verkið í sér yfirborðsfrágang á Rjúpuflöt og Arnarflöt innan sama hverfis þar sem nú þegar er búið að jarðvegsskipta og leggja veitulagnir. Verktaki skal jarðvegsskipta götustæðum samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag, burðalag og malbika götur og gangstíga ásamt því að steypa kantsteina. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, reisa ljósastaura, leggja ljósastaurastreng og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annara veitulagna. Helstu magntölur eru að finna á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 13. október 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Orra Jónsson hjá Eflu Vesturlandi með tölvupósti á netfangið orri.jons@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögn send í tölvupósti. Tilboðum skal skila á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi fyrir kl. 10:00 föstudaginn 28. október 2022, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Skallagrímur úr Borgarnesi hóf tímabilið í 1. deild karla í körfuknattleik síðustu vikuna í september og hefur farið ágæt- lega af stað á þessu tímabili. Þjálf- ari liðsins er Atli Aðalsteinsson og aðstoðarmaður hans er Hafþór Ingi Gunnarsson. Blaðamaður Skessu- horns heyrði í Atla í síðustu viku og spurði hann aðeins út í framhaldið. Nú enduðuð þið í sjöunda sæti á síðasta tímabili og voruð aldrei nálægt því að komast í úrslitakeppn- ina. Hver var skýringin á þessu slaka gengi? „Síðasta tímabil var mjög erfitt fyrir margar sakir. Við vorum með flottan hóp þegar allir voru heilir en það var hins vegar ekki nógu langt tímabil sem það náði að haldast þannig. Við áttum í stökustu vandræðum með að halda almennilegar æfingar svo vikum skipti og þá er útkoman yfirleitt svona, stundum gott og stundum alls ekki gott. Æfingar endurspegla spilamennsku og ef lið ná ekki almennilegum takti í æfingar þá er gengið alltaf mjög brothætt. Við lærðum samt mikið og leikmenn í hópnum öðluðust reynslu sem þeir munu taka með sér inn í komandi leiktíðir. Því erum við þakklátir á sama tíma og við erum auðvitað hundsvekktir með hvernig gekk.“ Hópurinn sterkari en í fyrra Hefur leikmannahópurinn eitt- hvað breyst frá síðasta tímabili og er hann sterkari en í fyrra? „Leik- mannahópurinn hefur breyst tölu- vert frá síðasta tímabili en sjálf hugmyndafræðin á bak við upp- byggingu hans ekki. Við erum að endurheimta leikmenn aftur eftir mislanga fjarveru. Björgvin Haf- þór Ríkharðsson er kominn aftur eftir veru í úrvalsdeildarliðum Tindastóls og Grindavíkur, Ragnar Magni Sigurjónsson sem hefur verið með Selfossi og Hamar í 1. deildinni og Almar Orri Kristins- son eftir nokkur ár í yngri flokka starfi Stjörnunnar. Ólafur Þorri hélt utan til náms en aðrir eru áfram frá því sem var í fyrra. Við teflum fram tveimur erlendum leikmönnum, þeim Keith Jordan Jr. og Jason Ricketts. Þeir eru hugsaðir sem uppfylling og stuðningur við liðið á þeim sviðum sem við höfum bara alls ekki fundið einstaklinga í á stór Borgarfjarðarsvæðinu. Ef við náum að mynda góðan takt í æfingum og menn haldast þokkalega heilir þá myndi ég telja að hópurinn væri ívið sterkari en í fyrra en þó mjög breyttur þannig að það er erfitt að bera það saman.“ Brennum fyrir klúbbinn okkar Nú er þetta þitt þriðja ár sem þjálfari liðsins. Hverjar eru þínar aðaláherslur og hvernig finnst þér hafa gengið síðan þú tókst við? „Við Hafþór höfum verið saman með liðið síðastliðin þrjú ár og það hefur gengið á ýmsu. Við eigum það sameiginlegt báðir tveir að við brennum fyrir klúbbinn okkar og viljum gefa okkar leikmönnum tækifæri á að bæta leik sinn og öðl- ast reynslu sé til staðar áhugi og dugnaður hjá viðkomandi. Við höfum verið með puttana í ýmsum málum utan vallar sem við kemur aðbúnaði liðsins og menningunni almennt í kringum körfuboltann í Borgarnesi og mér finnst við hafa náð árangri á þeim sviðum. Þegar horft er á starf þjálfara í 1. deild karla á Íslandi frá minni bæjarfé- lögum úti á landi þá finnst mér það helvíti hart ef menn horfa bara í úrslit leikja á hverjum föstudegi en líta fram hjá því starfi sem unnið er alla daga í klúbbnum. Við erum að sjálfsögðu keppnismenn og viljum alltaf vinna. En það er á sama tíma mikilvægt að við gerum það rétt, að við séum ekki að spenna bog- ann í botn og kaupa okkur hér lið sem svo fer eins og lauf í vindi þegar tímabilinu lýkur. Við höfum metnað fyrir því að gera deildina okkar sjálfbæra og hafa þá alltaf ákveðinn grunn af heimamönnum. En til þess þurfa þeir rými til þess að þroskast og spila alvöru mínútur og við erum tilbúnir að gefa þeim það. Við munum halda áfram þar til við verðum hreinlega beðnir um annað. Það er okkar einlæga ósk að við skiljum eftir okkur góðar mann- eskjur og frambærilega körfubolta- menn og á sama tíma sigurvegara sem hafa unnið fyrir hlutunum og komist þannig langt.“ Varðandi stuðninginn við liðið segir Atli að áhuginn fyrir liðinu finnist honum mikill og stuðn- ingurinn sé til staðar þegar á þurfi að halda. „Ég held það megi allir viðurkenna að við getum alltaf gert betur. Þar erum við leikmenn og þjálfarar ekki undanskildir og er það alltaf í krafti fjöldans sem lið í bæjarfélögum eins og okkar ná upp stemningu og árangri. Það þarf margar hendur á dekk til að drífa dallinn áfram en við finnum fyrir stuðningi stjórnar og fólksins í bænum sem er vel.“ Stefna á úrslitakeppnina Hvaða lið verða að þínu mati í baráttunni að komast í úrslita- keppnina og hver eru markmið liðsins fyrir tímabilið? „Þessi deild er alltaf eins og lottómiði, það geta allir unnið alla. Með reglu um erlenda leikmenn sem KKÍ setti á fyrir tímabilið þá er enn erfiðara að spá fyrir um hvaða lið fara í úrslitakeppnina þar sem liðin geta tekið gríðarlegum breytingum í leikmanna gluggum í gegnum tímabilið. Okkar markmið er samt skýrt og það er að við ætlum okkur að þróa leik okkar áfram og bæta okkur viku frá viku. Að því sögðu þá stefnum við ótrauðir á úrslita- keppni og tökum svo stöðuna að lokinni deildarkeppni hvar við stöndum.“ Eitthvað að lokum? „Það þarf margar hendur til hinna ýmsu verka og það á jafnt við um utan- umhald í kringum yngstu flokkana sem og núverandi meistaraflokk. Við viljum að það séu framtíðar leikmenn eða þá félagsmenn sem eru að æfa hjá okkur í yngri flokk- unum. Ég skora á alla þá sem hafa eitthvað til málsins að leggja, sama hversu lítið það er, að slást í lið með okkur þó svo það sé ekki nema bara að mæta á pallana og leyfa sér að segja eins og einu sinni rausnarlega KOMA SVO BORGARNES!“ vaks „Við erum keppnismenn og viljum alltaf vinna“ Rætt við Atla Aðalsteinsson þjálfara Skallagríms í körfunni Atli Aðalsteinsson þjálfari Skallagríms. Ljósm. glh Starf flokkstjóra hjá þjónustustöðinni á Borgarfirði er laust til umsóknar Helstu verkefni og ábyrgð Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega á starfssvæði Vegagerðarinnar á Borgarfirði. Ýmis vinna í starfsstöð Hæfniskröfur • Almennt grunnnám • Almenn ökuréttindi og meirapróf bifreiðastjóra • Vinnuvélaréttindi æskileg • Reynsla af ámóta störfum æskileg • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp • Góðir samstarfshæfileikar • Gott vald á íslenskri tungu • Góð öryggisvitund Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag Vesturlands hafa gert. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá hæfnikröfur sem óskað er eftir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 24.10.2022 Nánari upplýsingar Kristinn Gunnar K. Lyngmo deildarstjóri kristinn.g.k.lyngmo@vegagerdin.is Sími: 522 1000 Pétur Björnsson Guðmundsson yfirverkstjóri petur.bjornsson.gudmundsson@vegagerdin.is Sími: 522 1000 SK ES SU H O R N 2 02 2 Flokkstjóri Borgarnes ÖRYGGI FRAMSÝNI ÞJÓNUSTA FAGMENNSKA Sótt er um á heimasíðu Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/laus-storf/

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.