Skessuhorn - 19.10.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 19
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir er
frá Bakkakoti í Stafholtstungum
í Borgarfirði og hún starfar sem
alþingismaður. Hún var viðmæl-
andi Steinunnar Þorvaldsdóttur
í nýjasta hlaðvarpsþætti Skessu-
horns. Í viðtalinu fór Lilja yfir
hvernig hún kynntist manni sínum,
brúðkaup þeirra og vegferð hennar
inn á alþingi. Hún kynntist Ólafi
Daða Birgissyni eiginmanni sínum
þegar þau voru saman í bekk í
Verslunarskóla Íslands. Þau tóku
snemma ákvörðun um að setjast að
í Bakkakoti, giftu sig 24 ára gömul
og eiga í dag tvö börn saman sem
þau áttu á 21. og 24. aldursári.
Byrjuðu saman
fyrir slysni
Eins og áður var sagt kynntust
Lilja og Óli þegar þau lentu saman
í bekk, á öðru ári sínu í Verslunar-
skólanum. Þau urðu fljótt góðir
vinir og ákváðu að vinna saman
vestur í Dölum sumarið eftir
útskrift. ,,Ég var að fara að vinna
á Eiríksstöðum en frænka mín rak
staðinn á tímabili og ég ætlaði að
vinna hjá henni. Óli var þá besti
vinur minn en hann langaði eitt-
hvað út á land að vinna yfir sum-
arið. Svo ég bauð honum að koma
með mér að starfa á Eiríksstöðum,
sem úr varð. Áður en sumarið
byrjaði vorum við svo fyrir ein-
hverja slysni byrjuð saman. Svo við
höfum varla verið aðskilin síðan þá,
þangað til ég fór að starfa á Alþingi
þar sem dagarnir geta verið langir,“
segir Lilja Rannveig.
Tíu manna brúðkaup
Lilja og Óli giftu sig um jólin
2020 þegar hámark samkomutak-
markana ríkti en þau gátu einungis
haft tíu manns í brúðkaupinu. ,,Óli
bað mín óformlega á nýársdag
það ár og þá var markmiðið að
gifta sig fyrir árslok. Við að sjálf-
sögðu stóðum við það þrátt fyrir
miklar samkomutakmarkanir. Svo
giftum við okkur á annan í jólum í
tíu manna samkomubanni þannig
við ákváðum að hafa brúðkaupið
í streymi. Þetta er samt smá win-
-win því hann vildi lítið brúðkaup
og ég vildi stóra veislu. Hann er
búinn að fá litla brúðkaupið sitt og
ég á eftir að halda stóru veisluna
mína, það eru ekki allir svo heppnir
að fá að nota brúðarkjólinn sinn
tvisvar. Brúðkaupið var samt svo-
lítið fyndið. Stelpan okkar var bara
nokkurra mánaða og vildi ekki
sofna fyrir brúðkaupið. Í athöfninni
sjálfri fór hún bara að hágráta svo
það heyrðist ekki í neinum í upp-
tökunni svo við þurftum að texta
hana eftir á. Fólk sá okkur samt
setja upp hringa og kyssast svo það
gerðu svona flestir ráð fyrir að þetta
hefði gengið vel og við bæði sagt
já,“ segir Lilja hlæjandi.
Vill vera í kyrrðinni
heima
Í Bakkakoti eru þrjú íbúðarhús
en fjórar kynslóðir fjölskyldunnar
búa á jörðinni. ,,Við Óli erum í
elsta húsinu, mamma og pabbi
við hliðina á okkur og svo afi og
amma í þriðja húsinu. Svo við erum
með gott stuðningsnet sem kemur
sér heldur betur vel þegar maður
starfar á Alþingi með tvö lítil börn
heima.“ En af hverju tókuð þið þá
ákvörðun að setjast að í Bakkakoti?
,,Mig langar bara að vera heima,
það er eiginlega ekki flóknara en
það. Við tókum mikla umræðu
um þetta samt, sérstaklega upp á
háskóla að gera þegar við vorum að
byrja í námi. Við vorum þó bæði að
fara í nám sem við gátum stundað í
fjarnámi en ég fór í kennaranám og
Óli í uppeldis- og menntunarfræði,
þannig við ákváðum að setjast að
hér frekar en í Reykjavík. Ég kann
svo vel við kyrrðina í sveitinni, ég
átti alveg smá erfitt með það að búa
í Reykjavík þegar ég flutti þangað í
menntaskóla. Mér finnst líka mikil
forréttindi að ala börnin mín upp
í sveit. Mamma og pabbi eru með
búskap á bænum og krakkarnir
algjört dýrafólk og þau fara oft með
ömmu og afa út eftir leikskóla. Óli
er svo úr Grafarvoginum en var
bara furðulega mikið til í þetta sem
var bara frábært.“ Sjáið þið fyrir
ykkur að taka við búskap foreldra
þinna? ,,Ég veit það ekki alveg, ég
veit að ég vil vera uppi í sveit en ég
veit ekki hvort sauðfé er mín fram-
tíðarsýn. En það gæti alveg verið.
Foreldrar mínir eru ennþá það ung
að ég þarf ekki að hugsa út í þetta
alveg strax og hef nóg að gera í
mínum störfum eins og er.“
Hefur áhuga á mörgu
En hvernig er Alþingi sem
vinnustaður? ,,Það koma alveg
skrítnir tímar en almennt líður
mér mjög vel á þessum vinnu-
stað. Það er góður mórall í þing-
flokknum hjá okkur og við erum
mjög mikið saman. Dagarnir geta
verið mjög langir en í hverri viku
er ég á mörgum fundum og þing-
fundir geta dregist langt fram eftir
kvöldi eða nóttu. Það gengur ágæt-
lega að sameina þetta fjölskyldu-
lífinu með ung börn, en það koma
samt dagar og jafnvel vikur þar sem
ég sé þau ekki. En það verður til
þess að ég nýt þess betur að vera
með þeim þegar ég er heima. Mér
finnst samt mjög góð staða að vera
almennur þingmaður.“ En hvað
sæir þú fyrir þér að gera ef starfi
þínu á Alþingi myndi ljúka? ,,Ég
hef áhuga á svo mörgu. Mér hefur
meira að segja dottið í hug að fara
að læra iðngreinar, málarann eða
húsasmiðinn t.d. En mér finnst
líklegt að ég myndi halda eitthvað
áfram í námi.“ Hlusta má á viðtalið
í heild sinni á skessuhorn.is eða
soundcloud.com/skessuhorn.
sþ
Alþingismaður en gæti alveg
hugsað sér að læra húsasmíði
Lilja Rannveig og Ólafur Daði með börnin sín tvö, Hauk Axel 5 ára og Kristínu
Svölu 2 ára.
Krossgáta Skessuhorns
Beiðni
Þegn
Skoða
Ney/
Flý3
Góss
Vissa
Tautar
Fré= Dans
Upphr.
Annars
Þófi
Ríki-
dæmi
Æði
Aðstoð
Fjöldi
1
Drykkur
Heila
Benda
Möndull
9
Fagur
Fruma
Villt
Menn
Klæði
Til
Rót
Flan
Óvi3
Korn
Blómi
5
Sner3ll
Þúfa
Spurning
Fag
Bönd
Kátri
Virðir
Sefa
4
Kvaka
Stangar
Ögn
Mælir
Lak Ras
Eins um u
Reipi
Nefnd
Hljóp
Gufa
Klafi
Fersk
Epjast
Furðar
Bára
3
Áflog
Nískur
Sund
Snagi
Suðar
Til
7
Dekra
við
Kven-
fugl
Þrey3r
Háhýsi
Unir
Sár
Púkar
Korn
Maka
Óreiða
Herma
Líka
Kæk
Rimla-
kassi
Skjól
Sögn
Læ3
Svara
Utan
Sk.st. Sæ3
Drif
Aflaði
Sk.st.
Dár
Ó=ast
Bera
Koll
6
Samhlj.
Tægja
Ófús
Elfur
Félaga
S3kar
Hugsun
Ryk
Ásakar
8
1 2 3 4 5 6 7 8 9
1
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Krossgáta er birt í
blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnar-
orð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánu-
dögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilis-
fang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Garðabraut 2A, 300 Akra-
nesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að
hún birtist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bók að launum frá bókaútgáfunni Sæmundi.
Í síðustu krossgátu var rétt lausn „Gott er að prýða hærur með æru.“
Heppinn þátttakandi var Guðbjartur A. Björgvinsson, Borgarbraut 57,
310 Borgarnesi.
M
V Æ N T I N G A R Á S T Ú
A R A R N Á L G A S T R
R A S A N Á Ö R K J Á T
K Á K F A N G A K R A R A
Á Ð U R N A G U N E K
R A R Ó T T G R Ó A N D
N N G L Ó R A Á T R A
I T E M M E R K I Á L K U
S K U G L A L A U N
L Æ K U R E L U R P E N
Ú R X Ö S L R Ó A R
T I L A N S T Í Ð S T Ó
A N Á N A R H Æ T I Ð
Ó G N A F S A R G U N U
S J Ó A S K L E I R G R
A T O R K A D Y R A
L Á U Ý L N O S T R
Ú A K A R L A D R A U M
G O T T E R A Ð P R Ý Ð A H
1