Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2022, Side 22

Skessuhorn - 19.10.2022, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 202222 Spurning vikunnar Hver er draumabíllinn? Spurt á N1 í Borgarnesi Bjarki Þór Grönfeldt Gunnars- son ,,Ég var einmitt að kaupa mér Toyota Aygo, algjör draumur!“ Sveinn Björnsson ,,Toyota Hilux“ Árni Már Hauksson ,,Toyota Supra MK5“ Jón Hall Ómarsson ,, Tesla Cybertruck“ Youness Abba ,,Audi Q7“ Haustmót og æfingabúðir Glímu- sambands Íslands fóru fram um síðustu helgi á Hvolsvelli. Öflugur hópur ungmenna frá Vesturlandi tók þátt og stóðu sig með prýði. Helstu úrslit voru þessi: Þórarinn Páll Þórarinsson GFD bar sigur úr býtum í sínum flokki og er því Haustmótsmeistari hjá 13 ára strákum, en þar lenti Mikael Hall Valdimarsson GFD í fjórða sæti. Benóní Kristjánsson GFD sigraði sinn flokk og er Haustmótsmeistari hjá 14 ára strákum. Alexandra Agla Jónsdóttir GFD hlaut annað sætið hjá 13 ára stúlkum og Erika Ýr Vig- fúsdóttir UMSB varð í því þriðja. Kristey Sunna Sigríðardóttir GFD tók þriðja sætið hjá 15 ára stúlkum. Þá varð Dagný Sara Viðarsdóttir GFD í þriðja sæti hjá+70 kg flokki unglinga og einnig í opnum flokki kvenna. gbþ. / Ljósm. Svana Hrönn Jóhannsdóttir Kraflyftingakonan Kristín Þór- hallsdóttir tók þátt í Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fór fram í Frakklandi á laugar- daginn. Alls var tólf keppendum boðið að taka þátt á mótinu og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sex sterkustu konur franska landsliðsins tóku þátt auk sex keppenda sem eru í fremstu röð í Evrópu. Markmið mótsins var einnig að vekja athygli á og vera fjáröflun fyrir baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Kristín varð í öðru sæti á mótinu og fékk alls 1500 evrur í verðlaunafé. Frábær árangur hjá þessari borgfirsku kraftlyftinga- konu sem keppir fyrir Kraflyftinga- félag Akraness. Mótið í Frakklandi var hluti af undirbúningi Kristínar fyrir Evrópumeistaramótið sem verður í Póllandi í desember en þar hefur hún titil að verja. vaks Leiknir Reykjavík og ÍA mætt- ust í þriðju umferð í úrslitakeppni í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Breiðholti. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á því að halda sæti sínu í deild þeirra bestu og því mikið undir. Leiknir komst yfir strax á þriðju mín- útu með marki frá Emil Berger en Skagamenn voru fljótir til svars því þremur mínútum síðar jafnaði Aron Bjarki Jósepsson með skalla eftir aukaspyrnu frá Steinari Þor- steinssyni. Leiknir komst síðan aftur yfir í leiknum á 26. mínútu þegar Emil átti sendingu á fjær- stöng Skagamanna þar sem Bjarki Aðalsteinsson var einn og óvald- aður og skoraði auðveldlega með skalla. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var jafnt enn á ný þegar Steinar átti góða sendingu á Viktor Jóns- son sem skallaði boltann í netið af miklu öryggi og jafnt í hálfleik, 2-2. Seinni hálfleikur var ekki eins fjörugur og sá fyrri en fyrsta færið fékk títtnefndur Emil sem átti gott skot að marki eftir tíu mínútna leik sem Árni Snær Ólafsson varði meistaralega í stöngina en hann var aftur kominn í markið eftir langa fjarveru. Lítið markvert gerðist eftir þetta fyrir utan nokkur hálf- færi og leikurinn rann út í sandinn án mikilla tíðinda, lokatölur því 2-2 og ljóst að bæði ÍA og Leiknir eru nánast fallin úr Bestu deildinni. ÍA er í neðsta sæti deildarinnar með 19 stig og er sex stigum frá öruggu sæti þegar einungis tvær umferðir eru eftir. ÍA hefur verið í efstu deild síðustu fjögur tímabil eða allt frá því liðið vann fyrstu deildina árið 2018. Í viðtali eftir leik staðfesti Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA að hann yrði áfram þjálfari Skagamanna á næstu leiktíð hvort sem liðið fellur úr deildinni eður ei. Næsti leikur ÍA og síðasti heimaleikur sumarsins er gegn ÍBV næsta laugardag og hefst klukkan 14. vaks Haustmót Glímusambands Íslands Flottur hópur ungmenna úr Glímufélagi Dalamanna og UMSB. Alltaf stutt í spaugið. Kristín í öðru sæti á boðsmóti í Frakklandi Kristín var ánægð með annað sætið. Ljósm. FB síða Kraftlyftingafélag Akraness Skagamenn nánast fallnir eftir jafntefli á móti Leikni Skagamenn þurfa að öllum líkindum að spila í Lengjudeildinni á næsta ári. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.