Skessuhorn - 19.10.2022, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 23
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri
á Vesturlandi. Íþróttamaður vik-
unnar að þessu sinni er hnefaleika-
kappinn Ketill Ingi úr Reykhóla-
sveit.
Nafn: Ketill Ingi Guðmundsson
Fjölskylduhagir? Ég er fram-
haldsskólanemi í FVA í húsasmíði
og er fæddur og uppalinn í Reyk-
hólasveit. Ég á eina systur og tvo
bræður.
Hver eru þín helstu áhuga
mál? Hnefaleikar, Hondan mín og
sveitastörf.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Ég vakna
um klukkan átta og mæti í skólann
klukkan hálf níu. Er í skólanum til
klukkan tvö, fæ mér að borða og
kíki á heimavinnuna mína. Ég fer
svo á æfingu klukkan 17.30 og æfi
í einn og hálfan klukkutíma. Eftir
það fer ég í mat til systur minnar
og svo að skokka um kvöldið.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Ég er samviskusamur
og duglegur að vinna og er yfirleitt
tilbúinn að aðstoða. Ég á það til að
gleyma mér og er gleyminn. Svo
er ég svolítið sérvitur. Þrjóskur.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi
fimm sinnum í viku í eina og hálfa
klukkustund í senn og svo fer ég
og skokka á kvöldin.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Muhammad Ali.
Af hverju valdir þú ólympíska
hnefaleika? Það er frábært að fá
útrás og geta sinnt mínu helsta
áhugamáli.
Hver er fyndnastur af þeim
sem þú þekkir? Kolbeinn Óskar
Bjarnason, snillingur og vinur
minn.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast er að keppa en
leiðinlegast er hversu fáir iðka
hana.
vaks
Skemmtilegast að keppa
Íþróttamaður vikunnar
ÍA og Selfoss mættust í 32-liða
úrslitum í VÍS bikar karla í
körfuknattleik á mánudagskvöldið
og fór viðureignin fram á Akra-
nesi. Liðin áttust við í deildinni á
föstudagskvöldið þar sem Selfoss
vann stórsigur 116:87 og því ljóst
að Skagamenn ættu erfiðan leik
fyrir höndum. Þá vantaði þrjá leik-
menn í lið ÍA en fyrirliðinn Þórður
Freyr Jónsson, Jalen Dupree og
Gabriel Adersteg voru fjarverandi.
Gestirnir byrjuðu betur og voru
komnir með sjö stiga forystu eftir
rúman fimm mínútna leik. ÍA gekk
illa að minnka muninn en Davíð
Alexander Magnússon sá til þess að
forskot gestanna var níu stig þegar
hann skoraði þriggja stiga körfu á
síðustu andartökum fyrsta leik-
hluta, staðan 18:27. Heimamenn
byrjuðu ekki vel í öðrum leik-
hluta því þeir skoruðu aðeins tvö
stig á fyrstu sjö mínútunum gegn
14 stigum gestanna en náðu síðan
aðeins að koma til baka og staðan
í hálfleik 32:45 fyrir Selfosspiltum.
Lítið gekk hjá heimamönnum að
saxa á forskot gestanna í þriðja leik-
hluta, munurinn var aldrei minni
en tíu stig og staðan 50:63 fyrir Sel-
foss við flautið. Það sama var síðan
upp á teningnum í fjórða og síðasta
leikhluta. Skagamenn voru aldrei
líklegir til að koma sér inn í leikinn,
Selfyssingar hleyptu þeim aldrei
nálægt og unnu að lokum öruggan
sigur, lokatölur 63:77 Selfossi í vil.
Davíð Alexander Magnússon
var stigahæstur hjá ÍA með 23 stig,
Lucien Christofis var með 19 stig
og þeir Hjörtur Hrafnsson og Felix
Heiðar Magnason með 6 stig hvor.
Hjá Selfossi var Arnaldur Gríms-
son með 15 stig og þeir Gerald
Robinson og Srdan Stojanovic með
13 stig hvor.
Skagamenn hafa því lokið leik
í bikarnum og geta nú einbeitt
sér að deildinni. Næsti leikur er
heimaleikur gegn Ármanni næsta
föstudag og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skallagrímur og Þór Akur-
eyri mættust í 1. deild karla í
körfuknattleik á föstudagskvöldið
og fór leikurinn fram í Fjósinu í
Borgarnesi. Það má með sanni segja
að Skallagrímsmenn hafi byrjað
af krafti í leiknum og nánast gert
út um hann strax því þeir komust
í 18:2 eftir tæpan fimm mín-
útna leik. Þórsarar náðu þó síðan
áttum og héldu í við heimamenn
í stigaskorun en staðan eftir fyrsta
leikhluta 28:11 fyrir Skallagrími.
Þór kom síðan af krafti inn í annan
leikhluta og náði að minnka mun-
inn í 31:27 eftir fjórar mínútur en
þá gáfu Skallagrímsmenn aftur í,
skoruðu næstu sjö stig og komu sér
í þægilega stöðu á ný. Þegar flautað
var til leikhlés var munurinn orðinn
14 stig og ljóst að róðurinn gæti
orðið erfiður fyrir gestina, staðan
53:39 fyrir Sköllunum.
Í þriðja leikhluta juku heima-
menn forystuna jafnt og þétt og
náðu tuttugu stiga forskoti undir
lok hans en staðan 80:57 þegar
flautan gall og aðeins spurning um
hve sigurinn yrði stór. Í fjórða leik-
hluta slógu Skallagríms menn ekk-
ert af og bættu enn við forskotið,
lokatölur 106:74 fyrir Skallagrími.
Stigahæstir hjá Skallagrími voru
þeir Keith Jordan Jr. sem var með
35 stig, Davíð Guðmundsson var
með 21 stig og Bergþór Ægir Rík-
harðsson með 13 stig. Hjá Þór var
Tarojae Brake með 23 stig, Smári
Jónsson með 14 stig og Kolbeinn
Fannar Gíslason með 12 stig.
Næsti leikur Skallagríms er á
móti Hrunamönnum næsta föstu-
dag á Flúðum og hefst leikurinn
klukkan 19.15.
vaks Snæfell og Ármann mættust í 1.
deild kvenna í körfuknattleik síð-
asta miðvikudagskvöld og var leik-
urinn í Stykkishólmi. Snæfell skor-
aði fyrstu sjö stigin í leiknum en
Ármann tók þá svipaða rispu og
bætti um betur með tíu stigum
í röð. Eftir það var jafnt á öllum
tölum og jafnt eftir fyrsta leikhluta,
14:14. Í stöðunni 20:22 fljótlega í
öðrum leikhluta náðu heimakonur
góðum kafla, skoruðu ellefu stig án
svars frá gestunum og staðan í hálf-
leik 33:25 fyrir Snæfelli.
Ármann minnkaði muninn í tvö
stig í byrjun þriðja leikhluta og bar-
áttan hélt áfram í leiknum. Undir
lok leikhlutans var Snæfell komið
með ellefu stiga forskot en Ármann
átti síðasta orðið og minnkaði
muninn í sex stig, staðan 43:37
fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Ármann hélt áfram að klóra í bakk-
ann og reyndi að nálgast Snæfell en
heimakonur náðu aftur góðri for-
ystu um miðjan leikhlutann, 58:47.
Eftir þetta komust gestirnir aldrei
það nálægt að spenna kæmi í leik-
inn á ný og Snæfell vann öruggan
átta stiga sigur að lokum, lokatölur
62:54.
Cheah Rael Whitsitt var stiga-
hæst í liði Snæfells með 19 stig og
20 fráköst, Rebekka Rán Karls-
dóttir var með 16 stig og Preslava
Koleva með 13 stig og 10 fráköst.
Hjá Ármanni var Schekinah Bimpa
með 21 stig, Jónína Þórdís Karls-
dóttir með 11 stig og Viktoría Líf
Önnudóttir Schmidt með 10 stig.
Staðan í deildinni er nú þannig
að Stjarnan er efst með tíu stig og
Snæfell og Þór Akureyri jöfn í öðru
og þriðja sæti með átta stig. Næsti
leikur Snæfells er í kvöld, miðviku-
dag, á móti Hamar/Þór í Stykkis-
hólmi og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skagamenn úr leik í bikarnum
eftir tap gegn Selfossi
Lucien Christofis skoraði 19 stig gegn Selfossi. Hér í leik gegn Hamri fyrr í vetur.
Ljósm. vaks
Skallagrímur með öruggan
sigur á Þór Akureyri
Snæfell með fjórða
sigurinn í röð
Keith Jordan Jr. var öflugur á móti Þór og var með 35 stig. Ljósm. glh
Snæfellskonur eru í góðum gír þessa dagana. Ljósm. sá