Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2022 5
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Dagskrá í Hallgrímskirkju í
Saurbæ í tilefni af ártíð Hallgríms
Péturssonar
Fimmtudagur 27. október kl. 20
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín flytur erindi, en
hann vinnur nú að ritun ævisögu Hallgríms.
Laugardagur 29. október kl. 16
Tríóið Sírajón flytur verk eftir Katchaturian,
Atla Heimi Sveinsson og Hjálmar H.
Ragnarsson. Aðgangseyrir 2.500 kr.
Sunnudagurinn 30. október kl. 20
Kvöldmessa kl. 20
Sunnudagur 30. október
Akraneskirkja
Búningadagur í fjölskyldumessu kl. 11
Miðvikudagur 2. nóvember
Bænastund kl. 12:10 – súpa í Vinaminni
að stund lokinni
Karlakaffi kl. 13:30 – Björn Þór Björnsson
segir frá 100 ára knattspyrnusögu Akraness
Akranes.is
AKRANESKAUPSTAÐUR ÓSKAR EFTIR
TILBOÐUM Í RAFORKUKAUP
Um er að ræða alla almenna raforkunotkun sveitarfélagsins auk götulýsingar samkvæmt
þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð. Tilboðsgjafi skal hafa
raforkusöluleyfi á Íslandi sbr. 18. grein raforkulaga nr. 65 frá 2003.
Samningur nær til þriggja ára með möguleika á framlengingu í tvö skipti, eitt ár í senn.
Helstu magntölur eru fyrir hvert ár eru:
Almenn notkun 1.260.000 kWh
Götulýsing 850.000 kWh
Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef sem er aðgengilegur á útboðsvef:
https://akranes.ajoursystem.net/tender
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti
sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim
skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað
tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum
leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma
og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 fimmtudaginn 24. nóvember 2022
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á Útboðsvefnum eftir að
skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í
kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar
Borgnesingurinn Inga Björk Mar
grétar Bjarnadóttir tók sæti á
Alþingi í liðinni viku þegar hún fór
inn sem varaþingmaður fyrir Sam
fylkinguna í Suðvesturkjördæmi.
Inga Björk flutti til Hafnarfjarðar
fyrir fjórum árum og tók 3. sæti á
lista flokksins í Kraganum fyrir síð
ustu kosningar en er hún nú annar
varaþingmaður í kjördæminu. Inga
Björk hefur í mörg ár vakið athygli
á málefnum fatlaðs fólks og flutti
hún jómfrúarræðu sína þess efnis.
Hún vakti þar athygli á hags
munum fatlaðs fólks í hamfara og
neyðarástandi og hvatti stjórnvöld
til að hefja þegar í stað vinnu til að
tryggja að enginn verði skilinn eftir
við erfiðar aðstæður.
Nördabarn sem fylgdist
með Alþingi í æsku
Inga Björk starfar sem upplýs
ingafulltrúi Þroskahjálpar og er
sjálf í hjólastól. Málefni fatlaðs fólks
snerta hana því djúpt. Hún segist
lengi hafa haft áhuga á stjórnmálum
og tekið virkan þátt frá 17 ára aldri
en í dag er hún 29 ára. ,,Ég er búin
að vera í pólitík síðan ég byrjaði
að taka þátt í starfi Samfylkingar
innar í Borgarbyggð þegar ég var
17 ára. Ég er þess vegna ein af þeim
sem kemur úr útungunarvél stjórn
málaflokkanna má segja. Ég er fyrst
núna að taka sæti á Alþingi eftir
að hafa verið viðloðandi stjórnmál
í þónokkur ár. Mér finnst svolítið
merkilegt að koma þarna inn þar
sem þetta er stóra sviðið í pólitík
inni og það er mjög gaman að fá
vinnunna á Alþingi beint í æð. Ég
er svona ,,nördabarn“ sem fylgdist
með Alþingi í æsku en þetta er allt
öðruvísi en ég hélt. Þingmenn fá
mikinn stuðning sem er mjög flott
og allt gert til að aðstoða fólk við að
koma málum sínum að,“ segir Inga
Björk í samtali við Skessuhorn.
Mikilvægt að þekkja
málefnin á eigin skinni
Inga Björk segir upplifun sína af
Alþingi jákvæða en hún fékk góða
aðstoð við að móta mál sín. ,,Þing
menn eru allir mjög almennilegir,
fólk í öllum flokkum tók vel á móti
mér, margir varaþingmenn komu
inn þessa vikuna vegna utanlands
ferða hjá einhverjum nefndum. Ég
var búin að undirbúa mig vel og
kom inn með þrettán mál tilbúin.
Það var gaman að fá hvatningu frá
eldri þingmönnum eftirá, ég hafði
greinilega nýtt þessa viku vel. Ég
tala almennt fyrir mannréttinda
málum, málefnum fatlaðra og loft
lagsmálum. Ég hef fengið ótrúlega
góð viðbrögð við mínum málum
en ég er svona týpa sem finnst
svo mikið óréttlæti í samfélaginu
þannig ég var búin að búa til langan
lista sem mér finnst mikilvægt að
við horfum á og bætum í samfé
laginu. Ég fékk aðstoð frá starfs
fólki Alþingis og þingmönnum til
að móta málin. Jaðarsettir hópar
tóku eftir að þarna er komin mann
eskja sem talar fyrir þeirra mál
efnum en mér finnst mikilvægt að
hafa fólk sem þekkir þau á eigin
skinni. Þingmenn þurfa að endur
spegla svo stóran hóp og þess vegna
finnst mér mikilvægt að það sitji
fjölbreyttur hópur fólks á þingi.“
Þakklát fyrir að komast
að ræðustólnum
Ingu Björk var boðið í heimsókn
í Alþingishúsið fyrir innkomuna
til að taka út aðgengi fyrir hjóla
stól hennar. ,,Aðgengi fyrir hjóla
stól í Alþingishúsinu er bara prýði
legt. Það hafa verið fatlaðir var
þingmenn áður og það eru þing
menn starfandi núna sem notast
við hjálpartæki. Mér var boðið í
heimsókn mánuði áður til að taka
út húsnæðið áður en ég kæmi inn
svo hægt væri að laga það sem
þyrfti að laga. Freyja Haraldsdóttir
gat t.d. ekki notað ræðustólinn
vegna aðgengis til að byrja með en
aðgengið var svo bætt í kjölfarið svo
ég hef henni að þakka að hafa kom
ist upp að ræðustólnum,“ segir Inga
Björk að endingu.
sþ/ Ljósm. aðsendar.
Inga Björk tók sæti á Alþingi
Inga Björk undirritar drengsskaparheit sitt.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir tók sæti á Alþingi í síðustu viku sem annar
varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.