Skessuhorn - 26.10.2022, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2022 11
RAFRÆN UMSÓKNARGÁTT
Á vef SSV er rafræn umsóknargátt
Kynnið ykkur vel reglur og viðmið
varðandi styrkveitingar
Allar nánari upplýsingar á
www.ssv.is
OPIÐ ER FYRIR UMSÓKNIR Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ
17. NÓVEMBER 2022
20
23
ÚTHLUTUN JANÚAR 2023
STYRKIR TIL ATVINNUÞRÓUNAR & NÝSKÖPUNAR
VERKEFNASTYRKIR TIL MENNINGARMÁLA
STOFN- & REKSTRARSTYRKIR TIL MENNINGARMÁLA
ATVINNU- & NÝSKÖPUNARVERKEFNI:
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707
AÐSTOÐ VIÐ UMSÓKNIR
MENNINGARVERKEFNI:
Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is 698-8503
Apótek Vesturlands opnaði sitt
þriðja útibú um miðjan mánuðinn
og er það staðsett í Borgarnesi.
Apótekið er að Digranesgötu 6, í
sama húsnæði og Bónus, Lífland og
Geirabakarí, og mun það vera opið
alla daga vikunnar.
,,Við opnuðum okkar fyrstu
lyfja búð á Akranesi 30. júlí 2007,
svo keyptum við lyfjabúðina í
Ólafsvík, mínum gamla heimabæ,
í október 2020. Borgarnes er því
þriðja útibúið sem rekið er undir
merkjum Apóteks Vesturlands. Við
opnuðum laugardaginn 15. október
og unnið er að merkingum hússins
að utan ásamt því að verið er að
auka vöruúrval í lyfjabúðinni og
finna út hvaða vörur viðskiptavinir
okkar leggja áherslu á að við séum
með. Við hjá Apóteki Vesturlands
leggjum mikið upp úr góðri þjón
ustu við viðskiptavini okkar, en auk
þess kappkostum við að vera með
gott vöruúrval á hagstæðu verði.
Við bjóðum upp á vélskömmtun
lyfja í samstarfi við Lyfjaver og auk
þess bjóðum við bæði upp á mæl
ingar á blóðsykri og blóðþrýstingi.
Við veitum að sjálfsögðu almenna
og sérhæfða ráðgjöf um allt er
varðar lyf og lyfjanotkun enda með
reynda lyfjafræðinga og vel þjálfað
starfsfólk á staðnum. Opnunartími
okkar er hluti af því að veita góða
þjónustu. Á Akranesi er opið alla
daga vikunnar og hefur verið allt frá
opnun en við ætlum einnig að hafa
opið alla daga vikunnar í Borgar
nesi,“ segir Ólafur Guðmundur
Adolfsson, eigandi Apóteks Vestur
lands í samtali við Skessuhorn.
sþ
Það var létt yfir félögum í Bridge
félagi Borgarfjarðar síðastliðið
mánudagskvöld þegar blaðamaður
leit við í félagsheimilinu Logalandi
í Reykholtsdal. Yfirleitt fer starfið
rólega af stað fyrst á haustin, en
síðan fjölgar jafnt og þétt í hópnum
eftir því sem haustönnum lýkur. Á
mánudagskvöldið var tvímenningur
spilaður á sjö borðum. Næstkom
andi mánudag verður aftur stakur
tvímenningur á dagskrá, en mánu
daginn 7. nóvember hefst aðal
tvímenningur félagsins á slaginu
klukkan 20. Hann verður spilaður
öll mánudagskvöldin í nóvember
en árangur þriggja bestu kvöldanna
telur. Nú er svo komið að Bridge
félag Borgarfjarðar er eina félagið
sem enn heldur úti reglulegri starf
semi í héraðinu. Af þeim sökum
fjölmenna í Logaland áhugasamir
spilarar frá Akranesi, Borgarnesi og
raunar víðar að. Stjórn BB býður
alla áhugasama spilara velkomna.
Úrslitin á mánudagskvöldið síð
asta urðu þau að Heiðar Baldurs
son og Logi Sigurðsson báru sigur
úr býtum með 59% skori. Ingi
mundur Jónsson og Anna Heiða
Baldursdóttur urðu í öðru sæti
með 56,9% en þeir Eyjólfur Krist
inn Örnólfsson og Lárus Pétursson
vermdu þriðja sætið með 56,3%.
mm
Vetrarstarf
briddsfélagsins
byrjað af krafti
Hér takast á í lokaleik kvöldsins pörin sem höfnuðu í 1. og 3. sæti.
Apótek Vesturlands hefur
opnað útibú í Borgarnesi
Ólafur í Apóteki Vesturlands leggur mikið upp úr góðri þjónustu. Á myndinni er Svala Konráðsdóttir lyfjafræðingur.
Nýjasta apótekið undir merkjum Apóteks Vesturlands er staðsett að Digranes-
götu 6 í Borgarnesi.