Skessuhorn - 26.10.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 202212
Í gærkvöldi var haldin Bleik kvöld
messa í Borgarneskirkju og var hún
í samstarfi Borgar, Reykholts og
Stafholtsprestakalla. Séra Anna
Eiríksdóttir, séra Hildur Björk
Hörpudóttir og séra Heiðrún
Helga Bjarnadóttir Back stjórn
uðu athöfninni og var markmiðið
að eiga notalega kvöldstund saman
í kirkjunni.
Lesið var úr ljóðabókinni Mein
varpi eftir séra Hildi Eir Bolla
dóttur. Safnað var fyrir Krabba
meinsfélag Borgarfjarðar og mættu
um eitt hundrað manns í messuna.
Steinunn Árnadóttir lék á orgel,
Benjamín Fjeldsted á gítar og kór
Borgarneskirkju leiddi sálmasöng.
vaks/ Ljósm. af FB síðu Borgarnes-
kirkju.
Á sunnudaginn var bleik messa í
Akraneskirkju, í tilefni af bleikum
október. Kirkjan var þétt setin og
þurfti að bæta við stólum svo allir
fengju sæti. Kirkjugestir voru nær
200, af öllum kynjum, og segir sr.
Ólöf Margrét Snorradóttir greini
legt að allir láti sig þetta verkefni
varða, það er Bleiku slaufuna og
árveknisátak Krabbameinsfélagsins.
Formið á messunni var tölu
vert öðruvísi en hefðbundið er en
það voru til dæmis einungis kven
raddir í kórnum. Það var kvenna
kórinn Ymur ásamt konum úr Kór
Akraneskirkju og Saurbæjarpresta
kalls sem sungu fyrir kirkjugesti.
„Það má segja að það hafi verið
100 bleikir tónar í messunni þetta
kvöld. Það voru allir í bleiku og
það var mikil gleði, von og þakklæti
í loftinu þótt undirtónninn væri
alvarlegur,“ segir sr. Ólöf en hún
leiddi messuna. Tinna Grímars
dóttir var ræðumaður kvöldsins.
Hún er slaufuberi Krabbameinsfé
lags Akraness í ár og segir Ólöf að
einlæg frásögn hennar hafi hreyft
við öllum en þar var líka áberandi
hvað vonin er mikilvægt verkfæri,
sem og æðruleysið.
Undir lok messunnar lásu konur
úr kórnum almenna kirkjubæn þar
sem beðið var sérstaklega fyrir
krabbameinsgreindum og aðstand
endum þeirra og fyrir heilbrigðis
þjónustu en dagur heilbrigðisþjón
ustu var í gær. gbþ
Hundrað bleikir
tónar í Akraneskirkju
Tinna Grímarsdóttir, slaufuberi, var ræðumaður kvöldsins.
Ljósm. Helga Ólöf Óliversdóttir.
Bleik kvöldmessa
Kór Borgarneskirkju leiddi sálmasöng.
Borgarneskirkja er bleik þessa
dagana.
Dagur í lífi...
Umhverfisfulltrúa í
Hvalfjarðarsveit
Nafn: Arnheiður Hjörleifsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Bý á
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði ásamt
Guðmundi Sigurjónssyni bónda
og dóttir okkar Guðbjörg Bjartey
Guðmundsdóttir kemur í heim
sókn þegar hún má vera að.
Starfsheiti/fyrirtæki: Umhverfis
fulltrúi Hvalfjarðarsveitar í 50%
starfi og svo heimavinnandi.
Áhugamál: Flest sem byrjar á S!
Dagurinn: Sem betur fer eru
dagarnir afar fjölbreyttir og mik
ill breytileiki milli daga og innan
ársins, a.m.k. í sauðfjárræktinni
og ferðaþjónustunni. Ég geri eig
inlega ráð fyrir því að sama eigi
við í umhverfisfulltrúastarfinu, en
reynslan á eftir að leiða það betur
í ljós, þar sem ég byrjaði bara í því
starfi núna í vor. En mánudagur er
oft besti dagur vikunnar. Þá fer ég
yfirleitt rólega af stað eftir anna
sama helgi og nýt fyrsta kaffiboll
ans með eiginmanninum og Jónasi
vini mínum og nágranna í aldar
gömlum sófa frá tengdaömmu.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vakna flesta morgna
klukkan 6.45. Þessa dagana er
fyrsta verk að kíkja á Krumma litla,
bordercollie hvolp sem má segja að
sé nýjasti fjölskyldumeðlimurinn.
Hvað borðaðirðu í morgun
mat? Sama og venjulega, tvöfaldan
espresso.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Það væri virkilega gaman
að geta sagt að ég hafi farið á
henni Pálínu til vinnu í morgun.
En það væri lygi. Ég fór bara
akandi í vinnuna í morgun og lagði
af stað rétt fyrir klukkan níu.
Fyrstu verk í vinnunni? Heppnin
var með mér! Gugga var með
afmæliskaffi svo ég byrjaði á mar
engs og bleikri bollaköku!
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Á mjög svo áhugaverðum og mikil
vægum fundi á Umhverfisstofnun
ásamt tveimur sveitarstjórnar
fulltrúum. Hvalfjarðarsveit er svo
ótrúlega fjölbreytt og spennandi
sveitarfélag með snertifleti við
svo margt þegar kemur að stjórn
sýslunni og umhverfismálunum.
Umhverfisstofnun og sér
fræðingarnir þar eru mikilvægir
samstarfsaðilar eins og fjölmargir
aðrir sem sveitarfélagið hefur sam
skipti við.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði hádegismat með vinnufé
lögunum. Heimagert lasagne. Ég
bjó það reyndar ekki til sjálf heldur
mamma, sem gerir besta lasagne
sem ég hef smakkað. Uppistaðan
auðvitað beint frá býli. Meðlætið;
súrkál sem ég deildi með Arnari
byggingafulltrúa. Hann verður
mér ævinlega þakklátur.
Hvað varstu að gera klukkan 16?
Á leiðinni á söngæfingu með Elfu
vinkonu minni og söngfuglunum
hennar. Söngurinn og tónlistin
er ákveðin heilun og ómissandi
partur af hinu daglega lífi myndi
ég segja. Við ætlum meira að segja
að halda tónleika 31. október, allir
velkomnir og frítt inn!
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Hætti í
vinnunni um klukkan 15 og end
aði daginn á samtali við starfsmann
Íslenska gámafélagsins. Framundan
eru miklar breytingar í úrgangs
stjórnun sveitarfélaga og laga
breytingar sem munu taka gildi um
næstu áramót. Það er því í mörg
horn að líta og spennandi tímar
framundan í úrgangsmálunum!
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Söng
eins og engill (!) skellti mér í jóga
þar sem ég stóð m.a. á höndum
(sannleikur!) og endaði daginn á
að taka sundsprett með allra besta
sundhópnum mínum. Smá gufa og
heitur pottur í lokin. Ég sagði það,
mánudagar eru bestir!
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var ljúffengur salt
fiskur sem hún Brynja samstarfs
kona mín eldaði í kvöldmat
inn fyrir nokkra smiði sem eru
að vinna hér í nágrenninu og fá
kvöldmat á Bjarteyjarsandi um
þessar mundir. Þetta er einfaldur
réttur sem slær alltaf í gegn og
ég var heppin því það var smá
afgangur!
Hvernig var kvöldið? Næs. Kíkti
aðeins í tölvuna, horfði á Bonus
familjen á RÚV og svo bara hátta
tími.
Hvenær fórstu að sofa? Fyrir
miðnætti!
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Senda skilaboð á Bjarteyju mína.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Held ég verði að segja
handstaðan!
Eitthvað að lokum? Já, þú spyrð
um Pálínu… Hún er sem sagt
rafhjól, sem ég gaf sjálfri mér
í afmælisgjöf um það leyti sem
ljóst var að ég myndi hefja störf
hjá Hvalfjarðarsveit. Markmiðið
var sem sagt að hjóla í vinnuna
en það hefur ekki aaalveg gengið
eftir, a.m.k. ekki alla daga. Saman
höfum við Pálína samt farið um
600 kílómetra en betur má ef duga
skal!