Skessuhorn - 26.10.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 202214
Inga Dóra er alin upp á bænum
Jarðbrú í Svarfaðardal til 15 ára
aldurs. Foreldrar hennar bjuggu
þar með blandaðan búskap, en
hún er yngst sex systkina og eina
stelpan í systkinahópnum. ,,Elsti
bróðir minn er 18 árum eldri en ég
og yngsti bróðir minn er sjö árum
eldri en ég en við erum öll alsystk
ini. Ég sagði við mömmu að ég væri
algjör bútasaumur, bara búin til úr
einhverjum restum,“ segir Inga
Dóra hlæjandi. ,,Pabbi og mamma
bregða búi 1986 og flytja inn á
Akureyri svo ég byrja í mennta
skólanum þar. Pabbi deyr svo ári
seinna en hann var hjartasjúklingur.
Þannig að við mæðgur búum þarna
saman menntaskólaárin mín en
eftir útskrift vissi ég ekki alveg hvað
ég vildi gera. Ég skráði mig reyndar
í hjúkrunarfræði við Háskólann á
Akureyri en ég var ekki alveg til
búin og hætti við. En það er svona
svolítið skondið í dag þar sem ég er
núna komin hingað á Brákarhlíð,“
segir Inga Dóra þegar blaðamaður
Skessuhorns settist niður með
henni í spjall.
Fluttu frá Noregi
til Borgarness
Eiginmaður Ingu Dóru er Páll
Snævar Brynjarsson, fram
kvæmdarstjóri Samtaka sveitarfé
laga á Vesturlandi, en þau fluttu
m.a. til Noregs til að stunda nám
áður en þau fluttu í Borgarnes. ,,Ég
eignast dóttur mína, Ástdísi, árið
1993 og var bara ein með hana.
Ég flutti suður og vann þar til að
byrja með í SPRON en skráði mig
síðan í félagsfræði með atvinnulífs
fræði sem aukagrein við Háskóla
Íslands. Það var ákaflega gagn
legt og skemmtilegt nám. Áður
en ég byrjaði í háskólanum var ég
búin að kynnast Palla. Það hafði
alltaf blundað í mér að fara í nám
erlendis en mig langaði líka til
að víkka sjóndeildarhringinn. Ég
fann þarna nám í Noregi í bæ sem
heitir Volda en það er háskóla
bær ekki langt frá Álasundi. Við
Palli skráðum okkur í sama námið
sem var blanda af stefnumótun og
stjórnun. Við kláruðum námið og
fluttum svo þaðan í Borgarnes.“
Fengu símtal
frá Borgarnesi
Hrein tilviljun varð til þess að
hjónin enduðu í Borgarnesi, en
þau höfðu enga tengingu á svæðið.
,,Þegar við erum að ljúka námi í
Volda árið 2002 vorum við stað
ráðin í því að flytja heim en við
vissum ekki alveg hvert. Páll er úr
Skagafirðinum en hann var sveit
arstjóraefni þar í kosningum sem
stóðu yfir á þessum tíma. Svo æxl
uðust hlutirnir þannig að það gekk
ekki eftir, en þá var stefnan tekin
á að flytja í Eyjafjörðinn og sam
tal um starf þar langt komið þegar
að allt í einu kemur símtal úr Borg
arnesi eftir kosningarnar þar sem
honum var boðin staða bæjarstjóra
í Borgarbyggð.
Við höfðum engar tengingar
hingað en höfðum keyrt um Borg
arfjörðinn sumarið sem við fluttum
út og höfðum þá orð á því að það
væri ábyggilega mjög gott að búa
í héraðinu. Í kjölfar þessa sím
tals leggjumst við undir feld en
við fengum tvo sólarhringa til að
taka ákvörðun ef ég man rétt. Við
þurftum t.d. að ræða málin við Ást
dísi en henni leist ekkert á þetta
fyrst, en við sýndum henni m.a.
myndir á netinu úr Borgarfirði,
t.d. af sundlauginni og þá keypti
hún þetta alveg. Við ákváðum að
láta slag standa og sjáum ekki eftir
því,“ segir Inga Dóra um ákvörðun
þeirra hjóna að flytja í Borgarnes.
Hefur sinnt sama
starfi síðan 2006
Inga Dóra tók til þeirra ráða að
skrá sig í kór til að kynnast samfé
laginu. ,,Við eignumst Brynjar Snæ,
son okkar, úti og komum með hann
heim átta mánaða gamlan, þannig
að ég var heimavinnandi til að
byrja með. Páll var fljótur að kom
ast inn í samfélagið í sínu starfi en
ég ákvað að skrá mig í kór og fór
í Samkór Mýramanna. Mér fannst
það mjög góð leið til að tengjast
fólkinu í héraðinu og einnig til að
kynnast t.d. þessum stóru ættum
og læra aðeins á tengingar fólks
ins. Það að fara í þennan kór gaf
mér mjög mikið. Ég fæ síðan starf
hjá Samtökum sveitarfélaga á Vest
urlandi, en í þeirri vinnu kom
ég m.a. að gerð vaxtarsamnings
sem var og hét og við t.d. lögðum
grunn í þeirri vinnu að búsetuskil
yrðakönnun sem hefur verið keyrð
síðan og er núna notuð á landsvísu.
Mjög skemmtilegt að sjá það í dag,
þarna er verið að afla upplýsinga
um samfélagið og búsetuskilyrði,
eitthvað sem skiptir heilmiklu máli.
Fyrst var þetta bara hjá SSV, síðan
fór þetta að stækka og það er ekk
ert svo langt síðan að þessi könnun
var gerð á landsvísu. Þetta var 2004
en árið 2005 byrja ég að vinna sem
ráðgjafi hjá Símenntunarmiðstöð
inni, ég leysi svo forvera minn af
sem framkvæmdastjóra 2006. Hún
ákveður síðan að koma ekki aftur
og mér var boðið starfið. Ég hef
sinnt því starfi síðan þá og þangað
til núna 1. nóvember 2022.“
Vill taka þátt
í þróuninni
Inga Dóra segist spennt fyrir við
fangsefnunum í nýju starfi. ,,Ég var
farin að hugsa mér til hreyfings,
þetta var orðinn ágætis tími hjá
Símenntunarmiðstöðinni. Mjög lif
andi og skemmtilegur geiri, maður
fær mikla innsýn í atvinnulífið í
landshlutanum og í raun á landinu
öllu. Svo sá ég þetta starf auglýst
og það kallaði á mig, bæði hef ég
gaman af stjórnun, ég hef gaman af
því að vinna með fólki og af mann
legum samskiptum. Mér finnst við
fangsefnin spennandi en ég er að
læra mikið af nýjum hlutum. Þetta
er mjög ólíkt því sem ég hef verið
að gera, nema það að auðvitað mun
ég leggja mikla áherslu á fræðslu
málin fyrir starfsfólkið. Af því að ég
þekki það og veit hvað það skiptir
miklu máli fyrir þróun fyrirtækja
og stofnana. Svo eru auðvitað öld
runarmálin stór málaflokkur og fer
stækkandi. Hlutfall þjóðarinnar fer
sífellt stækkandi sem heyrir undir
þennan málaflokk og það er mik
ilvægt að þeim málaflokki sé sinnt
vel. Það má alltaf gera betur og mig
langar að taka þátt í þessari þróun
og leggja mitt af mörkum ef ég
mögulega get. Það þarf t.d. líka að
vinna að nýsköpun í þessum geira
eins og öðrum,“ segir Inga Dóra.
Ætlar að gefa sér
tíma til að kynnast
starfseminni
Starfsemi Brákarhlíðar er umfangs
mikil en Inga Dóra segist ekki
koma inn með fastmótaðar hug
myndir. ,,Þetta er stór vinnustaður
en hér eru tæplega 90 manns á
launaskrá. Þessi staður snertir líka
svo marga í samfélaginu og ég er
mjög þakklát fyrir að hafa verið
ráðin í þetta starf. Heimilisfólkið,
aðstandendur og starfsfólkið, þetta
er stór hópur sem kemur við á
heimilinu og hefur tengingar út um
allt. Fólk kemur ekki bara úr hér
aðinu, heldur víða að þannig þetta
er gríðarlega umfangsmikil starf
semi. Ég tek hérna við mjög góðu
búi. Ég ætla að gefa mér tíma til að
kynnast starfseminni, hvernig hún
er byggð upp og út frá því mun ég
svo örugglega mynda mér skoð
anir á því hvernig hægt sé að breyta
hlutum til betri vegar.“
Heilbrigðisgeirinn
stendur frammi
fyrir áskorun
Hjúkrunar og dvalarheimilin
standa frammi fyrir miklum áskor
unum, sem felast m.a. í aukinni
samkeppni um mannauðinn og eins
er það fjármögnunin á þjónustunni
sem veitt er. ,,Að sama skapi er
mikilvægt að vera með gott aðgengi
að læknum og ekki síður að það
séu ekki alltaf sífellt að koma nýir
Hætti við að fara í hjúkrunarfræði en er nú
nýr framkvæmdastjóri Brákarhlíðar
Rætt við Ingu Dóru Halldórsdóttur sem nýlega tók við starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar-
og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi. Hún lætur af störfum 1. nóvember sem
framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands eftir 16 ár í því starfi.
Inga Dóra Halldórsdóttir í bakgarði Brákarhlíðar þar sem nýtt gróðurhús mun rísa á næstu misserum. Ljósm. sþ.