Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2022, Side 19

Skessuhorn - 26.10.2022, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2022 19 Kynning á Sögu laxveiða í Borgarfirði Landbúnaðarsafn Íslands stendur fyrir kynningarfundi um verkefnið Saga laxveiða í Borgarfirði. Aðalbygging Landbúnaðarháskóla Íslands, Ásgarður. Hvenær? 27. október kl. 20:00. Í boði verða kaffiveitingar og áhugavert efni. Vonumst til að sjá sem flesta! BÓKAÚRVALIÐ er hjá okkur AUSTURVEGI 22 Opið mán.–lau. 12–18 ÁRMÚLA 42 Opið mán.–fös. 11–18 lau. 11–16 Matthías Margrétarson er ungur myndlistarmaður sem heldur nú sýningu með verkum sínum á bókasafninu í Borgarnesi. Matti, eins og hann er yfirleitt kallaður, bjó í Borgarnesi á sínum yngri árum en býr nú og starfar í Röros í Noregi. Hann starfar við leirgerð ásamt því að teikna tölvugerðar myndir og mála olíumálverk sem nú eru til sýnis á bókasafninu. Býr til bolla og teiknar myndir Matti vinnur í leirvinnslubúð þar sem hann lærir að renna leir og búa til bolla sem hann setur myndir sínar á. Verkin sem hann sýnir núna á bókasafninu teiknar hann svo í frí­ tíma sínum. ,,Myndirnar mínar eru tölvugerðar, ég vinn með penna á teiknibretti og skjá og það tók sinn tíma að æfa sig á þetta. Það tók um eitt til tvö ár að ná færni sem ég var ánægður með. Þetta er aðallega sjálf­ lært, ég horfi kannski á myndbönd til að læra en það er ekki til neinn lista­ skóli sem kennir kannski nákvæm­ lega svona teikningu. Þetta er enda­ laus æfing, í byrjun gerði ég kannski eitt verk á viku en núna get ég gert eitt á tveimur dögum og þá með betri tækni. Svo mála ég líka olíu­ málverk en það er erfiðara að flytja þær myndir til Íslands vegna þess hvað þær taka mikið pláss í flutn­ ingi. Tölvumyndirnar get ég bara prentað út hérna heima. Ég vinn svo við leirvinnu núna og bý til bolla, en ég vinn sem sagt í leirvinnslubúð þar sem eigandinn kennir mér að renna leirinn. Þannig að teikningarnar eru svona meira til gamans,“ segir Matti. Teiknaði mikið í Covid Matti skapar með myndum sínum ákveðinn heim og eru allskyns verur helstu viðfangsefni myndanna. ,,Ég bjó í Borgarnesi til fimm ára aldurs og svo fluttum við til Reykjavíkur. Ég var svo ellefu ára þegar við fluttum til Noregs. Núna bý ég í Röros sem er sirka í miðju Noregs og það er mjög fínt. Að teikna er svona helsta áhugamálið en ég hef enga ákveðna framtíðarsýn með þetta, það ger­ ist sem gerist. Flestar myndirnar á sýningunni eru frá árinu 2020 en þá teiknaði maður náttúrulega svo mikið vegna Covid. Myndirnar mínar endurspegla ákveðinn heim sem ég er að búa til þannig að það er mikið af allskyns ævintýraverum á myndunum mínum,“ segir Matti. Hélt fyrstu sýninguna ellefu ára Matti tók örfá olíumálverk með sér til Íslands sem erfitt er þó að flytja milli landa. ,,Þetta er fyrsta sýn­ ingin með þessum myndum, ég hélt eina sýningu hérna í Borgar­ nesi þegar ég var ellefu ára en það var nú bara gamalt krot. Nú er ég með aðeins fínni myndir og ég er með mikið magn af myndum núna. Ég fer að líta inn í það kannski núna að halda sýningar í Noregi og þá get ég kannski sýnt fleiri olíu­ málverk. Ég held ég sýni olíumál­ verkin ekki hérna heima nema ég flytji til Íslands og nái að mála þau hérna heima. Ég kom með nokkur olíumálverk með mér til Íslands núna en ég sérsmíðaði kassa utan um þau og það var svolítið dýrt að flytja þau, en mér þætti mjög gaman að sýna þau í Noregi. Sýn­ ingin hér verður uppi þangað til um miðjan janúar svo hún verður uppi í góða stund og allir sem vilja ættu að hafa tækifæri til að koma og skoða,“ segir Matti að lokum. sþ Heldur myndlistarsýningu á bókasafninu í Borgarnesi Matthías Margrétarson, eða Matti listamaður. Myndlistasýning Matta verður uppi fram á nýtt ár. Hér gefur að líta tvö verkanna á sýningunni.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.