Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 21

Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2022 21 grisjunarþörfin í skógum þar og er nú. Hann segir eiginlega beint við okkur að Skógræktin hafi gerst reddarar fyrir verktakana á þessum vélum sem voru verklausar,“ segir Jens en hann vildi í framhaldinu fá langtímasamning við Skógrækt­ ina svo svona gerðist ekki aftur. Þröstur vildi meina að það væri ekki hægt að gera slíkan samn­ ing því við erum á evrópska efna­ hagssvæðinu og það sé því bannað því öll meiriháttar verkefni eigi að bjóða út. Þá spurðum við hvort ekki hefði átt að bjóða þetta út, þetta verk fyrir austan, en þá var hann ekki með svar við því, segir Guð­ mundur. Árleg grisjun ræðst af eftirspurn eftir timbri Hreinn Óskarsson sviðsstjóri Þjóð­ skóga Skógræktarinnar staðfestir í samtali við Skessuhorn að síðustu ár hafi verið grisjaðir um 2000 m3 í Þjóðskógum á Íslandi. Það sé ekki ákveðið hverju sinni hve mikið á að grisja árlega heldur er horft til þess hvort það séu kaupendur að timb­ rinu sem til fellur vegna grisjunar­ innar. Skógar eru því einungis grisjaðir ef kaupendur eru að timbrinu. Þegar það er kaupandi að efni þá er valið hvar sé brýnast að grisja. Við grisjum á sjálfbæran hátt svo við töpum ekki niður við­ arvexti til lengri tíma, segir Hreinn. Stærstu kúnnarnir síðustu ár hafa verið verksmiðjurnar Elkem á Grundartanga og PCC á Bakka. Elkem hafi keypt allt að 2000 m3 af timbri árlega síðustu tíu ár, að undanskildum síðustu tveimur árum. PCC á Bakka hafi svo keypt um 1000­1500 m3 á ári síðustu tvö ár. Þá er einhver hluti timburs seldur til sögunarmylla og Skóg­ ræktin sjálf gerir að einhverjum hluta, t.a.m. kurl og arinvið. „Vélarnar voru þarna verkefnalausar“ Aðspurður um samninginn sem Skógræktin á við Jens og Guð­ mund, svarar Hreinn: Sá samn­ ingur felur ekki í sér að þeir séu einu mennirnir sem megi grisja fyrir Skógræktina heldur er þetta svona meiri viljayfirlýsing um að skipta við þá. Þá segir Hreinn að nú í sumar hafi fyrirtækið Tandraberg ehf. flutt inn erlenda grisjunar­ verktaka austur á Hérað, en fyrir­ tækið er staðsett á Eskifirði. Til stóð að þeir verktakar myndu grisja í bændaskógum en það gekk svo ekki eftir. Það voru færri skógar­ bændur en þeir gerðu ráð fyrir sem voru til í að semja við þá um grisjun,“ segir Hreinn og bætir við að af því vélarnar hafi verið stað­ settar fyrir austan var ákveðið að nýta þær til að grisja ákveðna reiti í Þjóðskógum. Það var grisjunarþörf í þessum reitum og menn gripu tækifærið og létu grisja þá reiti sem var mikil grisjunarþörf í því vél­ arnar voru þarna verkefnalausar, þannig séð, því þær voru búnar að grisja það sem þær gátu í bænda­ skógunum.“ Vissu að von væri á skógarhöggsvélum til landsins Jens og Guðmundur segja að frá því þeir fóru að hugsa um að fjár­ festa í skógarhöggsvélunum hafi þeir vitað af því að von væri á skógarhöggsvélum til landsins, austur á Héraði. „Skógræktin sagði okkur frá því áður en við skrifuðum undir samninginn að það væri von á skógarhöggsvélum til landsins þarna fyrir austan. Okkur var sagt að það væru smávélar, mikið minni en okkar, sem myndu henta í allt önnur verkefni en okkar vélar,“ segir Jens og bætir við að þeir hafi ekki haft neitt við það að athuga. Slíkar smávélar henti vel til vinnu í bændaskógum og í margs konar verkefni sem Gremo vélarnar eru of stórar í. „Svo heyrum við ekk­ ert meira af því fyrr en við fáum ábendingu frá utanaðkomandi aðila um að stórar skógarhöggsvélar séu byrjaðar að grisja í Þjóðskógum á Héraði. Skógræktin hafði ekkert sagt okkur um það,“ segir Jens en þegar það verkefni var í gangi voru vélar Jens og Guðmundar verk­ efnalausar. Guðmundur segir þá Jens hafa fengið lögfræðilegt álit um að þessi ákvörðun Skógræktarinnar væri brot á samningnum við þá. Við höfum auðvitað ekki neinn einkarétt á þessum verkefnum, að höggva fyrir Skógræktina. En af því að vélarnar okkar voru verklausar á þeim tíma, sem þessir aðilar voru að höggva í Þjóðskógum, þá er það mat okkar lögfræðings að það sé samningsbrot, segir Guðmundur. Þá segir Jens að það að eiga svona stórar og sérhæfðar vélar sé að ein­ hverju leyti glórulaust, þegar ekki er meiri vinnu út á þær að fá. „En að fá svo hinar vélarnar að utan og erlenda verktaka er í raun bara nagli í kistulokið á þessari íslensku vélgrisjunarverktöku, hvort sem við Guðmundur gerum þetta út eða einhver annar. Það er undir Skógræktinni komið hvort hún vilji halda svona grisjunarvélum á Íslandi eða reiða sig á erlenda verk­ taka því það koma vissulega og fara skip í hverri viku,“ segir Jens. Stóð til boða að kaupa grisjunarþjónustu Þröstur Eysteinsson skógræktar­ stjóri segir í samtali við Skessu­ horn að Skógræktinni hafi verið boðið að kaupa grisjunarþjónustu af verktökum á vegum Tandrabergs og í heildina hafi þeir grisjað fyrir Skógræktina á þremur stöðum í Þjóðskógum. „Okkur stóð þetta til boða. Þessar vélar voru verklausar því það var enn verið að bíða eftir svari frá öðrum skógareigendum og vegna þess að svarið kom frá okkur fyrst þá fengum við þá,“ segir Þröstur og bætir við að ef Skóg­ ræktin hefði ekki séð ágóða fyrir sig af viðskiptum við þessa verktaka hefðu þeir ekki skipt við þá, þörf hafi verið á grisjun í þessum reitum sem og hafi verið þörf á timbri. „Grisjunin þarf að greiðast af sölu afurða, þegar við verðum vör við eftirspurn eftir timbri þá grisjum við,“ segir Þröstur. Inntur eftir því hver hafi keypt timbrið sem til féll segir hann að það sé ekki búið að selja það allt en verið sé að vinna í því núna. Timbrið sé eftir því sem hann best veit ennþá í skógunum. „Ég geri ráð fyrir að hluti þess fari til sögunarmylla og eflaust verður svo hluti af þessu timbri selt til Tandrabergs, þeir kaupa timbur,“ segir Þröstur. Hér má aftur nefna að forsenda samn­ ings Skógræktarinnar við Guð­ mund og Jens er sú að kaupandi sé af timbrinu og segir Jens að Skóg­ ræktin hafi sagt við þá frá upphafi að ekkert sé grisjað nema efnið sé selt. Í samtali við Skessuhorn segir Þröstur að verktakarnir á vegum Tandrabergs hafi klárað sín verk í Þjóðskógunum fyrripart sumars. Má þá gera ráð fyrir því að timbrið sem enn sé í skógunum hafi legið þar í um 4 mánuði. Prófa mismunandi verktaka Aðspurður af hverju Jens og Guð­ mundi hafi ekki verið boðin þessi verk, svarar Þröstur: „Samningur­ inn við þá Jens og Guðmund er ekki þannig að við séum ekki líka að kaupa verk af öðrum verktökum. Það er ólöglegt að gera slíkan ein­ okunarsamning. Við erum að prófa mismunandi verktaka og þegar það koma verktakar frá útlöndum sem eru atvinnumenn og vanir vél­ grisjun þar þá finnst okkur það áhugavert,“ segir Þröstur og bætir við að Skógræktin hafi verið mjög ánægð með þeirra vinnubrögð. Þá virðist líka ríkja almenn ánægja með vinnu Jens og Guðmundar fyrir Skógræktina og segir Rúnar Ísleifsson, skógarvörður á Norður­ landi, að þeir hafi staðið sig prýði­ lega í verkum sínum á Norðurlandi og ekkert sé út á þeirra vinnu að setja. Hvenær á að bjóða út grisjunarverk? Þröstur segir að Skógræktin hafi hingað til ekki boðið út vélgrisjunar verk. Það sé vegna þess að það hafi ekki verið margir grisjarar á Íslandi. Þeir sem hafa verið í vinnu fyrir Skógræktina hafi gert þau verk sem Skógræktin hafi haft handa þeim hverju sinni. Þá segist hann ekki vita hvað upp­ hæð á verki þarf að vera há til að það sé útboðsskylt. Hann segist ekki geta staðfest að Tandraberg hafi unnið fyrir Skógræktina fyrir 26 milljónir króna eins og heim­ ildir Skessuhorns herma en segir að það geti vel verið, það sé þó líklega ekki verð fyrir eitt verk heldur falli nokkur smærri verk þar undir. Í lögum um opinber innkaup (1. mgr, 23. gr.) segir að; „Öll innkaup opinberra aðila á vörum og þjón­ ustu yfir 15.500.000 kr. og verkum yfir 49.000.000 kr. skal bjóða út og gera í samræmi við þau inn­ kaupaferli sem nánar er kveðið á um í IV. kafla.“ Þá segir enn fremur (í 4. mgr, 25. gr.) að; „Óheim­ ilt er að skipta upp verki eða inn­ kaupum á vöru og/eða þjónustu í því skyni að innkaup verði undir viðmiðunarfjárhæðum, nema slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlut­ lægra ástæðna”. Jens segir það vera sjálfsagt að ákveðin stór verk séu boðin út, þar sem Ísland er á evrópska efnahags­ svæðinu. „En síðan heyrum við af því að annar verktaki sé búinn að vinna fyrir Skógræktina fyrir upp­ hæð sem nemur 26 milljónum og það var aldrei hringt í okkur og verkin voru aldrei boðin út, en Skógræktin veit svo sem hvaða verðmiða við erum með,“ segir Jens en hann og Guðmundur eru þessa dagana í viðræðum við Skóg­ ræktina um hvort forsenda sé fyrir einhvers konar áframhaldandi sam­ starfi. „Við erum að ræða saman en það er vissulega svo að traustið er laskað. Það að eiga þessar vélar og þurfa að leggja á sig löng ferðalög og fleira til þess að skila sinni vinnu, maður nennir ekki að standa í þessu þegar maður fær svona blauta tusku í andlitið,“ segir Jens. Þegar frost er í jörðu Þeir Jens og Guðmundur segj­ ast alla jafnan hafa næg verkefni í annars konar verktöku. Þeir ákváðu að kaupa skógarhöggsvélarnar til þess að hafa verk í hendi sér yfir háveturinn þegar lítið er að gera í annarri verktöku á meðan frost er í jörðu en þá er einmitt æskilegast að fella tré. Svo hafi þeir reyndar þurft að hliðra til og fresta öðrum verkum til þess að koma til móts við Skógræktina í sambandi við grisjun. „Til dæmis núna í ágúst þegar það er háannatími hjá okkur í öðrum verkefnum, þá þurftum við að hlaupa til og koma til móts við Skógræktina því það þurfti að grisja einmitt þá,“ segir Guðmundur. Í öðrum löndum þar sem skóg­ rækt er mikil er grisjun hætt yfir sumartímann m.a. vegna hættu á gróðureldum og sveppamyndun. Erlendu verktakarnir á vegum Tandrabergs virðast því hafa komið til Íslands einmitt á þeim tíma þegar engin vélgrisjun er í gangi erlendis vegna tíðarfars en samkvæmt heim­ ildum Skessuhorns komu þær til landsins um miðjan apríl og hófu fljótlega grisjun. Enn fremur hefur Skessuhorn heimildir fyrir því að fyrsta verk vél­ anna hafi verið að grisja í skógarreit á Höfða en fljótlega hafi þar þurft frá að hverfa vegna bleytu. Höfði er ríkisjörð og á henni er skógarreitur sem er í umdæmi Þjóðskógarins á Hallormsstað, ábúandi á Höfða er Þröstur Eysteinsson skógræktar­ stjóri. Þá eiga vélarnar, skv. heim­ ildum Skessuhorns að hafa farið á Vallarnes og þaðan út á Klaustur og Buðlungarvelli og svo í Hafursá/ Freyshóla og yfir í Mjóanes. Að Vallarnesi undanskildu, sem er bændaskógur, falla allir þessir reitir í umhirðu Skógræktarinnar á Hall­ ormsstað. „Vill Skógræktin sem slík hafa svona vélar á Íslandi eða ekki“ „Það koma og fara skip í hverri viku,“ segir Jens þegar blaðamaður spyr hann um framhald málsins. „Fyrst Skógræktin hefur núna not­ ast við erlenda verktaka af hverju ættu þeir ekki að gera það aftur? Við höfum ekkert við vélarnar að gera ef þær standa verklausar og skila okkur ekki tekjum. Það eina í stöðunni fyrir okkur er eiginlega að selja tækin úr landi því eflaust finnst enginn hér á landi til að gera út svona sérhæfð tæki,“ segir Jens. Þá gagnrýnir hann að Skógræktin prufi að skipta við erlenda atvinnu­ menn í vélgrisjun til að bera saman við verk þeirra sjálfra. Það sjái það hver maður að menn sem hafa menntun og atvinnu af vélgrisjun árið um kring í stórum skógum erlendis séu ekki samanburðarhæfir áhugamönnum á Íslandi sem hafi samanlagt fimm mánaða heildar­ reynslu af skógarhöggi. „Vill Skóg­ ræktin sem slík hafa svona vélar á Íslandi eða ekki, það er spurn­ ingin,“ segir Jens að lokum. gbþ Sprungur eru í viðnum vegna hraðrar þurrkunar í stæðu eftir að hann var felldur í sumar, en sumrin eru sá tími sem síst ætti að fella tré. Nýleg loftmynd af Klaustri. Ofan við útihúsin sjást tveir stórir staflar með drumb- um sem samtals eru um 500 m3. Stafli af trjádrumbum á Klaustri. Þar hefur viðurinn staðið í stæðum frá því hann var felldur fyrri part sumars.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.