Skessuhorn - 26.10.2022, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2022 23
Erindi barst byggðarráði Borgar
byggðar í síðustu viku vegna ástands
á losunarstað sveitarfélagsins við
Bjarnhóla. Þar fer fram móttaka
jarðvegsúrgangs sem fellur til m.a.
við byggingaframkvæmdir í sveitar
félaginu. Svæðið er lítið mótað og
aðkoma óskipulögð. Hingað til
hefur sveitarfélagið einungis borið
kostnað af móttökunni sem kominn
er að mörkum fjárhagsáætlunar.
Byggðarráð styður að lágmarks
þjónustu sé viðhaldið á svæðinu en
loka þurfi því þegar aðstæður eru
metnar óboðlegar, m.a. þegar ekki
er hægt að sinna lágmarksþjónustu,
eða vegna aurbleytu. Í fundargerð
segir: ,,Byggðarráð beinir til því til
umhverfis og landbúnaðarnefndar
að útfæra gjaldtöku á svæðinu eins
fljótt og auðið er og vísar til vinnu
í sveitarstjórn við fjárhagsáætlun
2023 að færa aðstæður á svæðinu
til betri vegar.“ Umhvefis og land
búnaðarnefnd mun því vinna til
lögu að gjaldskrá í Bjarnhólum.
sþ
Félag sauðfjárbænda í Dölum
(FSD) stóð fyrir Haustfagnaði á
ný eftir tveggja ára hlé um síð
ustu helgi. Fagnaðurinn slær loka
taktinn í haustannir bænda enda er
stutt eftir af sláturtíð og vel við hæfi
að koma saman fyrsta vetrardag og
gera sér glaðan dag. Haldnar voru
tvær lambhrútasýningar í sýsl
unni hjá ungum bændum beggja
vegna varnargirðingar þar sem alls
tóku um 70 hrútar þátt í flokkum
hyrndra, kollóttra og mislitra eða
ferhyrndra hrúta. Annars vegar
var sýning á föstudeginum að Val
þúfu á Fellsströnd í Dalahólfi þar
sem Rúna Blöndal og Sæþór Sindri
buðu heim í fjárhúsin og hins
vegar á laugardeginum að Dunki í
Hörðudal þar sem Berghildur og
Kári buðu heim.
Úrslit voru síðan veitt á upp
skeruhátíð í Dalabúð að báðum
sýningum loknum en þar var einnig
verðlaunað fyrir bestu fimm vetra
ærnar og best dæmdu gimbralömb
haustsins. Besta fimm vetra ærin
var til að mynda frá StóraVatns
horni í Haukadal nr. 17764 undan
Toppi 13964 en heildar BLUP
kynbótamatseinkunn hennar var
115,5 og hafði hún verið tvílembd
sem gemlingur og alltaf þrílembd
eftir það.
Við verðlaunaafhendinguna var
á boðstólnum lambalæri að hætti
sauðfjárbænda og í kjölfarið var
dansleikur. Vel fór á með bændum
þessa helgi enda uppsöfnuð þrá í við
burði líkt og hrútasýningar í góðum
félagsskap eftir síðustu tvö ár.
sla
Borgarbyggð hyggst hefja
gjaldtöku við Bjarnhóla
Uppskeruhátíð
sauðfjárbænda í Dölum
Sigurvegari í flokki kollóttra var 94 frá Skerðingsstöðum í
Hvammssveit, alls 87,5 stig.
Besti lambhrútur Dalasýslu þetta haustið var lamb nr. 28 frá
Vatni í Haukadal úr ræktun Sigurðar Jökulssonar og Maríu
Hrannar en hann hafði fyrir sýninguna hlotið 87,5 stig, þar
af 18,5 fyrir læri.
Veitt voru verðlaun fyrir bestu gimbrarnar en besta gimbrin var nr. 836 frá Klifmýri á Skarðsströnd en
hún hafði 40 mm bakvöðva með hæstu einkunn fyrir lögun, 9,5 fyrir frampart, 19,5 fyrir læri og 7,5 fyrir
ull. Rúnar Hermannsson lengst til vinstri tók við verðlaununum en hann er nýtekinn við búi og fer vel af
stað. Einnig fengu gimbrar frá Geirmundastöðum og Magnússkógum III verðlaun.
Jón Egill á Skerðingsstöðum í
Hvammssveit var einn þeirra sem lét
verkin tala á haustfagnaði FSD en hér
grillar hann pylsur á hrútasýningunni
að Dunki fyrir gesti og sýnendur.
Einnig stýrði hann uppskeruhátíðinni
með lagni.
Ráðunautur frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins skar út um hold og gæði hrútanna meðan eigendur halda spenntir í. Hér
eru efstu fimm hvítu hyrndu hrútarnir sem voru að Dunki.
Áhorfendur hugleiða hrútana á garðabandinu með sýningarskrána með fyrri
stigunum til samanburðar.
Sigurvegari í flokki mislitra og ferhyrndra var nr 356 frá Bæ í
Miðdölum, alls 86 stig.