Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 202230
Spurning
vikunnar
Hvað ertu
mest hrædd(ur) við?
Spurt á Akranesi
Ingunn Hallgrímsdóttir
„Mýs.“
Sandra Dögg Jónsdóttir
„Sigurrós.“
Sigurós Jónsdóttir
„Köngulær.“
Hammody Aleedy
„Þegar kærastan mín er pirruð.“
Hallur Freyr Sigurbjörnsson
„Að standa mig illa.“
Körfuknattleikslið ÍA frá Akranesi
hóf tímabilið í 1. deild karla í körf
unni síðustu vikuna í september og
hefur til þessa leikið fimm leiki,
unnið tvo og tapað þremur. Á síð
asta tímabili unnu þeir aðeins einn
leik, töpuðu 26 og féllu en fengu
síðan tækifæri í haust annað árið í
röð að taka sæti í 1. deild sem þeir
þáðu með þökkum. Skagamenn
réðu nýjan þjálfara fyrir tímabilið,
Nebosja Knezevic, sem er að
stíga sín fyrstu skref í meistara
flokksþjálfun en hann er fyrrum
leikmaður Vestra og Skallagríms.
Blaðamaður Skessuhorns heyrði
hljóðið í Fannari Frey Helgasyni
formanni körfuknattleiksdeildar ÍA
og segir Fannar að undirbúnings
tímabilið hafi byrjað í ágúst og
gengið mjög vel. Þeir hefðu spilað
nokkra æfingaleiki og síðan fengið
erlendu leikmennina í september.
Hefur leikmannahópurinn eitt
hvað breyst frá síðasta tímabili og
er hann sterkari en í fyrra? „Leik
mannahópurinn okkar hefur breyst
kannski hvað mest að því leyti að
ungu strákarnir okkar eru orðnir
árinu eldri. Við erum með mjög
ungt lið en með efnilega leik
menn. Við fengum svo til okkar
tvo nýja erlenda leikmenn, þá Jalen
Dupree og Gabriel Aspelund. Þeir
hafa styrkt hópinn mikið og kom
ist mjög vel inn í allt hjá okkur. Ég
tel að við séum með talsvert sterk
ari hóp heldur en í fyrra.“
Nú hefur Nebosja Knezevic
tekið við sem þjálfari liðsins. Hvað
kom til að hann var ráðinn og
hvernig líst ykkur á hann? „Við í
stjórninni þekktum Nebo ágæt
lega og sjálfur hef ég spilað oft á
móti honum þannig að við vissum
að hann er frábær karakter. Okkur
vantaði þjálfara og réðum hann.
Við erum mjög ánægð með Nebo
og hvernig hann hefur komið inn í
allt starfið hjá okkur.“
Fannar segir að stuðningur
inn við liðið sé mjög góður og fín
mæting hafi verið á leikjunum í
vetur. Hann lofar engu en segir
að það sé aldrei að vita nema það
verði boðið upp á einhverjar nýj
ungar á Vesturgötunni í vetur til
að gera stemninguna enn betri
í húsinu. En hvernig gengur
rekstur körfuknattleiksdeildar ÍA?
„Reksturinn gengur bara vel, að
minnsta kosti betur en undanfarin
ár. Þetta er þó alltaf mikil barátta
en okkur hefur gengið mjög vel að
safna styrkjum frá fyrirtækjum og
talsvert betur nú en síðustu ár.“
En að lokum, hvaða lið verða
að þínu mati í baráttunni að kom
ast í úrslitakeppnina og hver eru
markmið liðsins fyrir tímabilið?
„Góð spurning. Markmiðið okkar
í byrjun tímabils var að halda sæti
okkar í deildinni og sjá svo hvað
það leiðir okkur. Ég myndi halda
að Skallagrímur, Álftanes og Sindri
verði þarna í efri hlutanum. Annars
held ég að deildin hafi sjaldan verið
eins jöfn og erfitt að segja hverjir
muni blanda sér þarna í toppbar
áttuna. Vonandi ná mínir menn að
vera þarna líka.“
vaks
Sundmaðurinn Einar Margeir
Ágústsson úr Sundfélagi Akra
ness tók þátt í World Cup mótinu
í Berlín um liðna helgi. Alls voru
sex sundmenn frá Íslandi sem tók
ust á við sterkasta sundfólk heims.
Íslenska landsliðið stóð sig vel
á mótinu og voru margar góðar
bætingar. Einar Margeir synti mjög
vel þar sem hann bætti sig í þremur
af fjórum greinum sem hann synti.
Setti hann þrjú Akranesmet og auk
þess Íslandsmet í unglingaflokki.
Í 50 metra bringusundi synti
hann á 27,94 sem var bæting um
rúma sekúndu en gamla Akranes
metið átti hann sjálfur frá því í
júní. Með þessu sló hann einnig
unglingamet sem varði þó aðeins í
rúmar fimm mínútur þar sem Daði
Björnsson frá SH bætti það á tím
anum 27,61. Í 200 metra bringu
sundi synti hann á 2:17,49 og bætti
með því Akranesmet sem Hrafn
Traustason átti á 2:17,84 frá árinu
2009. Í 100 metra fjórsundi bætti
hann einnig metið sitt, synti á
58,80. Hann átti sjálfur tímann
58,84 frá því í september.
Næsta mót hjá sundfólkinu frá
Akranesi er Extramót SH sem fram
fer um næstu helgi og er það hluti af
undirbúningi fyrir Íslandsmeistara
mótið sem er haldið verður 18.20.
nóvember.
mm/kw
Snæfell tók á móti Hamar/Þór í 1.
deild kvenna í körfuknattleik síðasta
miðvikudagskvöld og fór leikurinn
fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór
rólega af stað en í stöðunni 5:6 náðu
gestirnir góðum spretti og skoruðu
tíu stig gegn aðeins tveimur stigum
Snæfells, staðan 7:16 fyrir Hamar/
Þór eftir rúman fimm mínútna
leik. Snæfellskonur voru þó fljótar
til að ná að jafna leikinn, þær skor
uðu níu stig í röð og staðan jöfn
16:16 þegar þrjár mínútur voru
eftir. Snæfell átti síðan síðasta orðið
og leiddi með fimm stigum við
lok fyrsta leikhluta, staðan 24:19.
Staðan breyttist lítið í öðrum leik
hluta og stigaskor liðanna alls ekki
til eftirbreytni því alls voru skoruð
ellefu stig samtals og ekkert síðustu
rúmar þrjár mínúturnar, staðan í
hálfleik 29:25 fyrir Snæfelli.
Baráttan var ennþá til staðar í
þriðja leikhluta og Hamar/Þór náði
að halda í við Snæfell, staðan 38:34
þegar tæpar fjórar mínútur voru
eftir. En þá náði Snæfell góðum
kafla og leiddi með tíu stigum
fyrir fjórða leikhluta, staðan 46:36.
Þær náðu síðan fimmtán stiga for
ystu fljótlega í leikhlutanum og
staðan orðin ansi erfið fyrir gestina.
Hamar/Þór náði síðan ekki að ógna
forskoti Snæfells að neinu marki,
það sem eftir lifði leiks var munur
inn alltaf í kringum tíu stigin og
Snæfell vann að lokum öruggan
sigur, lokatölur 63:54. Fimmti
sigur Snæfells í röð í deildinni og
staðan í deildinni er nú þannig að
Stjarnan er efst og taplaus eftir sex
leiki með tólf stig og KR og Snæfell
í öðru og þriðja sætinu með tíu stig.
Atkvæðamest hjá Snæfelli var
framherjinn Cheah Rael Whitsitt
sem var með 25 stig, 23 fráköst og 7
stoðsendingar, Rebekka Rán Karls
dóttir var með 12 stig og Preslava
Koleva með 7 stig og 14 fráköst. Hjá
Hamar/Þór var Jenna Mastellone
með 21 stig, Emma Hrönn
Hákonardóttir með 10 stig og Stef
anía Ósk Ólafsdóttir með 8 stig.
Næsti leikur Snæfells í deildinni
er í kvöld, miðvikudag gegn Aþenu/
Leikni/UMFK í Austurbergi í
Breiðholti og hefst klukkan 19.15.
vaks
„Erum með talsvert sterkari
hóp heldur en í fyrra“
Fannar Freyr formaður körfuknattleiksdeildar ÍA. Ljósm. aðsend
Snæfell enn á sigurbraut
Cheah Rael Whitsitt átti góðan leik á
móti Hamar/Þór. Ljósm. espn.com
Setti fjögur Akranesmet og eitt Íslandsmet